Vikan


Vikan - 16.05.1968, Qupperneq 47

Vikan - 16.05.1968, Qupperneq 47
Svintur fvrir telnir m Iniii Telpusvunta, stærð um 3|a ára. Efni: 45 cm af Ijósbleiku bómullarefni, dálítið af bláköflóttu léreftsefni til skreytingar, 3 m af skábandi, samlitu svuntuefninu, „aroragarn" 1 dk. af hverium lit af dökkgrænum, dökkblágræn- um og millibláum, dálítið af gullþræði og 1 gylltan hnapp. Búið sniðin til eftir skýringar- myndinni, mátið og gerið breytingar ef með þarf. Sníðið saumfarslaust og athugið að miðja að framan liggi eftir tvöfaldri og þráðréttri efn- isbrúninni og afturstykki liggi eins og sniðið á rúðunum. Saumið svuntuna saman á öxlum og hliðum með 3'h cm saumfari, leggið saman og gangið frá með zig-zag. Stingið síðan frá réttu 1—2 mm frá saumnum. Bryddið svuntuna allt í kring. Á þessari mynd er skábandið látið liggja á röngu og stungið tæpt í brún. Klippið nú úr bláköflótta efninu 20 litla hringi á stærð við 5 aura og 6 á stærð við 25 aura, hafið hringina annars í þeirri stærð er æskileg þykir. Búið til munstur af páfuglinum eftir skýring- armyndinni og teiknið á svuntuna. Staðsetjið hann á miðja svuntuna og um 1 cm frá neðstu brún hennar. Staðsetjið hringina eftir myndinni og hafið þá er lengst eru um 13 cm frá fuglinum. Saumið slðan hringina fasta með samlitu garni og tunguspori eða zig-zag. Saumið í hvern hring með mislita garninu og skreytið eftir smekk. Notið fræhnúta, lykkjuspors- rósir og strik. Saumið síðan með lykkjuspori rönd frá hverj- um hring og strik að fuglinum. — Saumið lítinn þríhyrning á legginn undir hverjum hring og strik með lykkjuspori sem fjaðrir við fuglinn. Saumið bol fuglsins með tvöföldu garni, sinn þráðinn með hvorum litnum og mislöngum spor- um. Saumið 1 rönd í kringum fuglinn með lykkjuspori. Saumið hnúta með Ijósu garni fyrir augu og nef og fjaðrir á hausinn með gull- þræðinum. Saumið einnig lítið spor með gullþræði á hvern hring. Saumið hnappagat á sprota hægra bakstk. og festið hnapp gegnt því á sprota vinstra bak- stykkisins. Drengjasvunta. Stærð um 2ja ára. Efni: Um 40 cm af grófu röndóttu bómullar- efni, 4 stk af 6 mm korsum, 1 m af snúru eða skáofnu bandi. Bangsinn er saumaður úr 20 cm af rauðu plusefni (eða öðru efni) og 1 dk. af svörtu aroragarni. Búið til sniðin og mátið eins og snið telpu- svuntunnar. Sníðið svuntuna með V2 cm saum- fari. Bryddið svuntuna með skábandinu og látið það liggja á röngu. Sníðið vasann, látið efnið snúa þvert í hon- um, og saumið á svuntuna. Látið setja korsana í hornin og dragið hæfilega langa snúru í götin. Bangsinn: Búið til sniðin eftir skýringamyndinni og sníð- ið eftir því 2 stk. Saumið augu og nef með svarta garninu. Saumið stykkin saman frá röngu, snúið við og stoppið. Hnýtið slaufu um hálsinn. 19. tM. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.