Vikan


Vikan - 16.05.1968, Síða 50

Vikan - 16.05.1968, Síða 50
hvernig sem þér viljið. Ég líð engan dónaskap. Komi þeita fyr- ir aftur skal Lady Macfarlane fá að vita um það. Þér eruð vissu- lega gömul í hettunni hér, en hún tekur áreiðanlega ekki tillit til þess, það getið þér verið viss um. Hún trúði ekki sjálf á hótun sína, en frú Griffin var hræðslu- leg og Barböru leið vel með að hafa gefið henni þessa ofanígjöf, þótt ekki væri nema vegna þess að þessi kona hafði getað fengið af sér að vera andstyggileg við barn. Þetta var kannske ekki skynsamleg hegðun, en hún naut þess samt! Barbara fékk aðeins að sitja ofurlitla stund hjá Lady Macfar- lane í hvert skipli, því læknir- inn óttaðist að gamla konan of- reyndi sig ef hún talaði meira en góðu hófi gegndi. Barbara hafði skroppið inn til hennar til að segja góða nótt og sat nú í ruggustólnum og reyndi að lesa meðan hún beið eftir kvöldmat- arbakkanum, sem væntanlega yrði þægileg afþreying á þessu ianga, og einmanalega kvöldi, sem hún átti í vændum. Hún óskaði þess að gamla konan hefði ekki verið svona áfjáð í að láta hana búa í þessu gamla herbergi. Hún fann að hér myndi henni aldrei líða vel. Hér var allt of mikið sem minnti á þá óhamingjusömu, litlu stúlku, sem eitt sinn hafði átt hér heima. Jafnvel þótt skipt hefði verið um húsgögn.... Það var bankað á dyrnar og Daisy kom inn. En hún var ekki með neinn bakka. — Maturinn er til, sagði hún. — Herra Fraser bíður. — Herra Fraser bíður... Ég kæri mig ekkert um að borða með honum, heldur borða ég ekk- ert, hugsaði hún. Og síðan: — Ég hef ekki tíma til að hafa fata- skipti og þar að auki dytti mér aldrei í hug... Samt snyrti hún sig af mestu natni, auðvitað ekki til að hafa áhrif á hann, heldur aðeins til að auka sjálfri sér ör- yggi og þegar hún var tilbúin fann hún sig betur hæfa til að fara niður og borða með Rick. Hann stóð í salnum og blandaði í glas, þegar hún kom og þótt hún hefði ákveðið að vera sjálfs- örugg og blátt áfram, hikaði hún ósjálfrátt í dyrunum. — Ekki svona hræðsluleg! sagði hann og hló. — Ég borða aldrei litlar stúlkur í kvöldmat. Hvað má bjóða þér? Sherry? Vodka og lime? Þurran Martini? — Vodka, svaraði hún, af því að það var það sterkasta. — En af hverju ætti ég að vera hrædd? — Já, af hverju ættirðu að vera það? Hann kom til hennar með sitt glasið í hvorri hendi og rétti henni annað. - Ég hafði raunar hugsað mér að stinga upp á því að við legðum boxhanzk- ana á hilluna, bætti hann bros- andi við. — Ertu ekki sammála því að það væri þægilegara að við gætum umgengizt nokkurn veginn með vinsemd, þar sem við eigum nú að hafast við undir sama þaki? — Það er ekki ég sem hef stofnað til fjandskapar. — Nei, ég veit það. Hún hikaði aðeins til að athuga hvort hann hefði hugsað sér að biðjast afsökunar, en það gerði hann ekki og hún spurði tor- tryggin: — Hversvegna hefurðu skipt svona skyndilega um skoðun? Þú verður að fyrirgefa að ég á ofur- lítið erfitt með að trúa á það. — Tja, í fyrsta lagi lítur út fyrir að Lady Macfarlane ætli að ná sér og það skiptir mig miklu. Og í öðru lagi hef ég þá minna að biðjast afsökunar á, ef þú raunverulega ert Lísa. Bros hans var afar þokkafullt, en hún var samt á verði. Fannst hún samt óviss og eins og fest upp á þráð í návist hans og átti erfitt með að vera eðlileg, erfitt með að horfast í augu við hann. Þau drukku úr glösunum og hún þáði aftur í sitt, fann smám saman hvernig taugaspennunni létti. Og meðan þau boitöuðu gleymdi hún um hríð að hann var höfuðóvinur hennar. Ef þetta hefði verið í fyrsta sinn sem þau hittust og hann hefði verið borðherra hennar í kvöldverðarboði hefði hún hugs- að: — Hann er bara skemmti- legur og myndarlegur og það leynir sér ekki að hann er vanur að vera eftirsóttur. En nú var þetta bara að látast, og hún forð- aðist að hugsa slíkar hugsanir. •— Meira vín? spurði hann. Hún afþakkaði þar sem hún var farin að finna ofurlítið til vínsins en samt fyllti hann glas- ið hennar og þegar hann skálaði við hana gat hún ekki fengið af sér að látast aðeins dreypa á. Þegar kaffið kom talaði hann ennþá um alla heima og geima og það var eins og hann tæki ekki eftir því að hana var farið að syfja og hún átti sífellt erfið- ara með að svara. Allt í einu sagði hann: — Á hvaða málaraskóla sagð- istu ætla í London? Nafnið á skólanum hafði næst- um hrokkið upp úr henni, þegar hún áttaði sig á því að hann hefði næstum veitt hana: — Það hef ég ekkert sagt um og hef ekki hugsað mér að segja neitt um. Nú brosti hann ekki lengur. — Þetta með skólann er kannske líka saga? — Kannske. — Hversvegna ertu með þetta ieynibrugg? Hvaða tilgangi á það eiginlega að þjóna ef þú ert raun- verulega Lísa. Hvernig á ég að geta trúað þér ef þú hagar þér svona? Þú hlýtur að sjá að þetta er tortryggilegt. — Ég get ekki gert að hvað þú hugsar. Nú reyndi hann ekki lengur að látast vingjarnlegur og fús að ræða um hlutina. Röddin var köld og augun lítil og hörð. — Ég vil vita hver þú ert og ég er vanur að hafa mitt fram á einhvem hátt. Hún hló. — Þú heldur víst að þú getir hrætt mig, en það get- urðu ekki. Hún tók bollann sinn og saup á honum til að sýna hvað hú(n væri sallaróleg, en höndin titraði og kaffið gusað- ist niður. •—• Get ég ekki? Nú rak hann upp hlátur. Hún reis á fætur, blóðrjóð og starði ævareið á hann. —■ Og þá er þessu litla sjón- hverfingaatriði þínu lokið, sagði hún. — Það er verst að þetta góða Vodka og öll þín fyrirhöfn skuli ekki hafa borið meiri ár- angur. Hann hætti að hlæja, og í þeirri sælu sigurvímu að hafa haft síðasta orðið skálmaði hún upp stigann og alla leið upp. Þar stóð taskan hennar, gal- opin. Og innan í lokinu, aðeins lokað með rennilás, voru papp- írar hennar. Vegabréf, fæðingar- vottorð og skari af myndum. Hún þornaði í kverkunum af skelf- ingu. Mikið hafði hún verið hugsunarlaus. Og það hefði held- ur ekki hjálpað að læsa töskunni. Ef Rick Fraser dytti í hug að leita í föggum hennar myndi hann áreiðanlega ekki láta einn lás standa í vegi fyrir sér. En hvar ætti hún að geyma þetta dót? Hún yrði að finna stað, þar sem Rick Fraser dytti ekki í hug að leita. En hvar? Um nóttina svaf hún með plöggin sín undir koddanum og dró kommóðuna fyr*ir dymarj, þar sem ekki var hægt að læsa þeim. Næsta morgun stakk hún plöggunum sínum í skópoka og gekk fram á ganginn. Hún horfði hikandi á röðina af dyrum, en þar myndi hann sjálfsagt leita! Lengst í burtu voru dyrnar að vestari álmunni og tuminum. Hægt og varlega gekk hún að þeim og tók í handfangið. Þær voru ekki læstar og gangurinn var ekki draugalegur í dagsljós- inu, bara rakur og kaldur. Stiginn upp í gráttuminn var vissulega brattur og þrepin ójöfn og kaðallinn sem kom í staðinn fyrir handrið var morkinn og slitinn í sundur á tveimur stöð- um, en sólin skein inn um glugg- ana, svo þetta var hreint ekki svo ömurlegt. Heldur ekki turnherbergið. Þar var ekki annað inni en illa farinn legubekkur, trékista sem sneri botni upp, haugur af hefilspón- um og vinnugalli. Hún stakk skópokanum inn í vinnugallann og faldi allt sam- an í spónahrúgunni. Svo læsti hún dyrunum, faldi lykilinn í gluggakistunni, hátt uppi á veggnum í ganginum og stökk niður aftur. Hún hafði ekki mátt seinni vera að koma plöggum sínum undan, því þegar hún kom inn í herbergið stóð Rick Fraser við rúmið hennar og rótaði 1 tösk- unni. Hann sýndist ekki kenna minnsta samvizkubits, heldur hélt óhikað áfram, því sem hann hafði fyrir stafni, þegar hún stillti sér upp með merkissvip og virti hann fyrir sér. r~ HIIAR ER WIN HAHS NÍA? Það er alltaf sami leikurinn í hennl Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Síðast er dregið var hlaut verðlaunin: Itristján G. Gunnarsson, Háaleitisbraut 42. Nafn Heimili Drkin er á bls. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnnr. 19. 50 VrKAN 19-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.