Vikan


Vikan - 10.10.1968, Síða 2

Vikan - 10.10.1968, Síða 2
r i Varalitir, 12 fallegir tízkulitir. MAKE-UP, 3 fallegir litir. Pressað púður, 4 fallegir beige litir. Cleansing Lotion hreinsar betur en sópa og er mildara en krem. Astrigent Tonic. Andlitsvatn fyrir þurra og feita húð. COVER GIRL snyrtivörur eru viðurkenndar af hin- um vandlótu. COVER GiRL fæst í öllum snyrtivöruverzlunum, Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12 - Sími 36620. m z. • NOXZEMA DEODORANT. NOXZEMA - DEODORANT SVITAEYÐIR. REYNIÐ OG ÞÉR MUNUÐ SANN- FÆRAST UM AÐ BETRI SVITAEYÐIR FÁIÐ ÞÉR EKKI. 2 VIKAN 40- tbl- Haustþankar um helgan stað Það haustar að og sumar- sólin lækkar á lofti, þótt allt annað hækki — nema kaup- ið. Veturinn leggst illa í marga, og Páll Bergþórsson spáir hafís og harðindum. Farfuglarnir eru flognir, og sömuleiðis þeir erlendu ferða- langar, sem h:ngað hafa kom- ið í sumar og vonandi hrif- izt af náttúrufegurð landsins. Að aka til Þingvalla er eins og að heimsækja gamlan og góðan kunningja. Staður- inn er jafn fallegur, hvort sem hann skartar haustlitum eða sumarskrúða. Það er yfir honum einhver helgi, sem óvíða er að finna annars stað- ar á landinu. Líklega er svo farið um fle'ri en undirritaðan, að fyrstu minningar þeirra um Þingvelli eru bundnar v'ið Almannagjá. Það er ógleym- anleg reynsla að aka niður á milli snarbrattra klettaveggia og sjá síðan allt í einu eins og í hillingum græna gróð- urrönd bera við bláan himin. Nú er þetta liðin tíð. Al- mannag’á hefur verið lokað, og enginn fær framar að aka niður hana. Leiðsögumenn erlendra ferðamanna hafa kvartað sáran yfir þessari ráðstöfun og raddir fiöl- margra annarra aðila benda til þess, að flestir sakni þess að fá ekki lengur að heim- sækia helgasta stað landsins á þann gamla og sérkennilega hátt að aka niður giána. Þingvallanefnd ætti að sjá sig um hönd og láta malb ka vegarspottann niður Al- mannagjá og leyfa einstefnu- akstur niður hana næsta sum- a.r. Því yrði fagnað heils- hugar, bæði af innlendum og erlendum ferðalöngum. G.Gr. L

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.