Vikan - 10.10.1968, Page 7
DRAUMUR UM
DRENG í VÖGGU
Mig langar til að fá þig til að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi fyrir nokkru. Mér
fannst ég vera ásamt manninum
mínum heima hjá okkur. Það
eina, sem mér fannst athugavert
við húsið í draumnum var, að
herbergin voru stærri en þau eru
í raun og veru. Inni í hjónaher-
berginu stóð vagga með litlum
dreng í (við eigum engin börn).
Mér fannst það vera sama, hve
oft maðurinn minn spurði, hvort
ég ætlaði ekki að hugsa um
drenginn. Eg vildi ekki snerta á
honum. Síðan komu til okkar
gestir og þá fyrst byrjaði ég að
hugsa eitthvað um drenginn.
Maðurinn minn spurði mig þá,
hvort ég ætlaði ekki að taka
drenginn með (ég veit ekki
hvert). Sg varð ákaflega ánægð
og svaraði því til, að ég myndi
aldrei vera svona kærulaus aft-
ur.
Við þetta vaknaði ég. Svo
þakka ég kærlega fyrir allt gam-
alt og gott með fyrirfram þakk-
læti fyrir ráðninguna.
Virðingarfyllst,
Þ. G.
P.S. Við erum bæði ung.
Þú hefur líklega liugsað mikið
um það að undanfömu, að reikna
mætti með, að þið lijónin cign-
uðust barn áður en langt um líð-
ur. Af meðfæddri samvizkusemi
og sakir æsku þinnar og reynslu-
leysis, óttastu innst inni, að þú
munir ekki reynast þeim vanda
vaxin að vera góð móðir. Þessi
kvíði kemur skýrt fram í
draumnum. En auðvitað er hann
ástæðulaus. Maðurinn þinn
treystir þér fullkomlega, og þeg-
ar þú finnur það eykst sjálfs-
traust þitt.
AÐ VERA LEIDDUR
Á HÖGGSTOKK
Að undanföi-nu hefur mig
dreymt þrívegis nákvæmlega
sama drauminn. Af þeim sökum
er þessi draumur orðinn mjög
skýr í huga mínum, og ég hef
miklar áhyggjur og beinlínis
óþægindi af honum.
Draumurinn er ósköp stuttur
og er á þessa leið:
Mig dreymir, að ég sé tekinn
höndum og varpað í fangelsi á
mjög ruddalegan og harkalegan
hátt. Á mig eru bornar þungar
sakir, en ég veit, að ég er sak-
laus af þeim með öllu. Mér er
þetta óskiljanlegt, því að ég veit,
að sakirnar eru upplognar og ég
er tekinn fastur af eintómri
mannvonzku og illgirni. Síðan
finnst mér ég vera leiddur á
höggstokk og það á að fara að
hálshöggva mig. En áður en það
er gert, þá tala ég við fólkið, sem
stendur allt í kringum mig og
ætlar að horfa á aftökuna. Á
meðal fólksins sé ég hvert and-
litið ó fætur öðru, sem ég þekki.
Þarna eru vinir mínir og ætt-
ingjar og ég hrópa til þeirra:
„Hvers vegna gerið þið ekki
eitthvað? Ætlið þið að horfa upp
á, að ég sé tekinn af lífi alsak-
laus?“ En enginn svarar mér.
Allir eru grafalvarlegir og stein-
þegja, eins og þeim finnist þetta
sjálfsagt og eðlilegt.
Síðan hef ég vaknað kófsveitt-
ur og tilfinningin í draumnum
hefur verið svo sterk, að mig
hefur næstum því verkjað í háls-
inn. Það eru engar ýkjur, að ég
hef setið á rúmstokknum og
strokið á mér hálsinn!
Eg hef hugsað mikið um þenn-
an draum, af því að það hefur
aldrei komið fyrir áður, að mig
hafi dreymt sama drauminn oft-
ar en einu sinni. Þegar mig hafði
dreymt hann í fyrsta sinn, hafði
ég nýverið séð leikritið Marat-
Sade í Þjóðleikhúsinu, en þar
er eins og kunnugt er verið að
hálshöggva menn sýknt og heil-
agt. Mér datt þess vegna í hug,
að draumur minn væri bara
áhrif frá leikritinu. Getur það
verið? En hvers vegna hefur
mig þá dreymt þetta aftur tvisv-
ar sinnum? Mér finnst þetta ekki
lengur einleikið og bið þig um
einhverja ráðleggingu.
Framhald á bls. 44.
OSRAM ljós
úr hverjum glugga
Viðarklœðninsar
á LOFT
og VEGGI
Höfum fyrirliggjandi
ýmsar tegundir s.s.:
FURU
OREGON PINE
EIK
ÁLM
ASK
CAVIANA
GULL-ÁLM
TEAK
Horðviðarsolan sf.
Þórsgötu 13.
Símar 11931 & 13670.
40. tw. VIKAN 7