Vikan


Vikan - 09.01.1969, Blaðsíða 4

Vikan - 09.01.1969, Blaðsíða 4
( r ^5^18-24 30Z80-3Z2GZ Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum. Postulíns-veggflísar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm. Amerískar gólfflísar — Goocl Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur. Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvikur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóður — br. 55 cm. Veggfóður — br. 50 cm. V______________________________________________________________________) HAGSÝN HÚSMÓÐIR NOTAR LEIÐLEGAR VINKONUR Kæra Vika! Ég er orðin svo þreytt á öllum mínum gömlu vin- konum, að mér er orðin hreinasta þraut að hitta þær. Allar hafa þær nú eignazt börn og buru, og ég reyndar sjálf líka, en þær geta aldrei nokkurn tíma um annað talað en þessi blessuð börn sín, hvað þau hafi gert á þess- um og þessum aldri, hvað þau segi og hugsi og hvað þau séu dásamleg. Hvern- ig vinir þeirra séu og allt þar fram eftir götunum. Þetta fer orðið svo í taug- arnar á mér, að ég gæti ekki, þótt líf lægi við, tal- að um mín börn við nokk- urn utanaðkomandi mann, nema kannski beinlínis ef ég væri spurð um eitthvert ákveðið atriði. Um daginn var ég í saumaklúbb með þessum frúm sem oftar, þegar einni datt í hug að spyrja, hvort ég ætlaði nú ekki að segja eitthvað frá mínum börnum. Ég svar- aði: — Þau eru nú ekki svo miklu merkilegri en önnur börn, að um þau þurfi að ræða langtímum saman. Þau eru góð og þæg og mér þykir gaman að þeim sjálfri, en mér dettur ekki í hug, að ann- að fólk hafi mikinn áhuga fyrir þeim. Það var nátt- úrlega eins og ég hefði sprautað rjóma framan í allar stelpurnar og ein þeirra hreytti út úr sér, að ég væri snobbuð? Finnst þér ekkert þreytandi að heyra fólk segja gáfna- farssögur og brandara af börnunum sínum lon og don? Góða kenndu mér ráð til að koma inn öðru og smekklegra umræðuefni. Eða er ég kannski ómögu- leg mamma? Þriggja barna móðir. Við tökum heilshugar undir hað með hér. að fólk. sem ekki getur talað um annað en hörnin sín og lieimili sitt, þar sem það er í samkvæmi, er óþol- andi, og ætti skilyrðislaust að sitja heima yfir þessum dásamlegu afkvæmum sín- um. Hitt er svo annað mál, að ein og ein saga getur haft almennt gildi og ver- ið skemmtileg, eins og ótölulegur fjöldi barna- brandara sannar. Ekkert í bréfi þínu bendir til, að þú sért ómöguleg mamma, en því miður kunnum við engin ráð til að þagga nið- ur í barnasíhjalandi fólki -— nema svo gróf, að þau myndu valda fullum vin- slitum. Kannski er það eina ráðið — og finna sér svo nýja og skemmtilegri vini? VITLAUS LÖG Póstur góður! Ég skrifa þér í bræði minni yfir vitlausum lög- um og reglum, sem örugg- lega kosta fleiri mannslíf beint og óbeint, en nokkur getur látið sér óra fyrir. Eins og þú kannski hefur tekið eftir, er ausandi rigning í kvöld og skyggn- ið aldeilis hræðilegt, það er eins og svart malbikið gleypi í sig alla birtu og eyði henni, nema þessari litlu skímu, sem þyrlandi regnið safnar í sig framan við bílljósin og þeytir aft- ur í augun á okkur, þess- um ágæfusömu verum, sem þurfum að aka bílum í svona veðri og skyggni. Nú, ég var á leið inn Suð urlandsbraut, heim til mín. Þegar ég kom á móts við Reykjaveginn, stóðu þar nokkrir bílar með fullum, blindandi ljósum og biðu færis að komast inn á Suðurlandsbrautina, á Suðurlandsbrautinni stóðu fleiri og biðu færis að komast inn á Reykjaveg- inn, utan við Suðurlands- brautina austanverða stóðu nokkrir bílar með fullum ljósum og biðu þess að komast inn á. Öll þessi ljós endurspegluðust í regninu og köstuðust aftur í augu vor ökumanna, að viðbætt- um ljósum bílanna, sem komu eftir Suðurlands- brautinni á móti. Ég ók hapel áfram ne rvnHi iit t.il 4 VIKAN 2 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.