Vikan


Vikan - 09.01.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 09.01.1969, Blaðsíða 11
Einhvern tíma í blámóðu fram- tíðarinnar er mögulegt, að hvert mannsbarn fái þegar við fæðingu sitt eigið símanúmer, sem einnig verður númerið á nafnskírtein- inu, ökuskírteininu, flugskírtein- inu, sjúkrasamlagsskírteininu og öðru þvíumlíku. Símanúmerið verður ekki bundið við ákveðið tæki, sem er fast við þráðakerfi landsímans, heldur þráðlaust á- hald á stærð við armbandsúr. Með þessu tæki á að vera hægt að ná fljótlega sambandi við hvern sem er, hvar sem er á jörðinni. Þá er útilokað, að mað- ur nái ekki sambandi af því eng- inn sé heima, tækið ber hver og einn með sér og ef ekki er anzað, stafar það af viljaleysi þess sem hringt er til og engu öðru. En erfitt kann að verða að muna símanúmer sitt og vinanna, því þegar fólksfjöldinn á jörðinni er kominn yfir 10 milljarða, verða símanúmerin komin með ellefu tölustafi. Ýmsir telja, að slíkt símakerfi verði til þess að þurrka út ein- staklingskenndina og brjóti í Á bernskuárum sjónvarpsins kepptust menn viö að fá tæki meö sem stærstum skermum, en reynsla síðari tíma hefur leitt í Ijós, að heppilegra er að nota ekki mjög stóra skerma, og talið er, aö í framtíðinni verði þau tæki algeng- ust, sem hafa skerma- stærð frá 11 upp í 19 tommur, mælt ská- hallt horn í horn. bága við þörf mannsins til að vera einn og í næði. En tæki sem þetta myndi draga gífurlega úr öllum vegalengdum, og ef ein- hvern tíma kæmi heimsstjórn með heimsforseta, gætu slíkir stjórnaraðilar talað beint til íbúa heimsins gegnum það. Ekki verða þessi tæki í sjálfu sér svo langdræg, að þau dugi heimshornanna á milli. Þau verða því aðeins nothæf, að til komi milliganga gervitungla. Þess vegna mun heimur framtíðarinn- ar verða umkringdur endur- varpshnöttum, sem flytja bæði tal og' mynd, svo fólk getur jafn- framt sézt án þess að hittast nokkurn tíma. Hópar manna geta safnazt saman í eina stofu og haldið fund með öðrum hópi hinum megin á hnettinum, fyrir milligöngu sjón- varpshnattanna. Forstjórinn get- ur setið heima í letistólnum sín- um og stýrt fyrirtækinu á sama hátt. Viðskiptaferðalög og fjöl- mennar stjórnmálaráðstefnur á einum stað verða óþarfi. Menn- ingarviðburðir og hátíðahöld verða ekki lengur einkaeign þéttbýlisbúa, afskekktasti kot- bóndi getur verið þar virkur þátttakandi með tilkomu fjar- skiptatækninnar. Elektróník og sjónvarp gerir skurðlækni kleift að gera heila- uppskurð á sjúklingi í 10 þúsund kílómetra fjarlægð. Sá veiki liggur þar á sínu skurðarborði og er skorinn upp með nákvæm- um elektrónískum tækjum, sem læknirinn fjarstýrir. í sjónvarp- inu getur hann fylgzt nákvæm- lega með gerðum sínum og líð- an sjúklingsins. Það er óneitanlega efnileg spá, að eftir 50 ár þurfi maður ekki annað en hreiðra um sig í uppá- haldsstólnum framan við sjón- varpið í staðinn fyrir að drattast í vinnuna, hvernig sem viðrar. En kannski mega þeir prísa sig sæla, sem hafa vinnu, því elek- tróníkin vinnur öll kerfisbundin, vanamyndandi störf, en ekki nema tiltölulega fáa starfsmenn þarf til að fylgjast með þeim á sj ónvarpsskerminum. Frá upphafi vega hefur mann- kindin verið framleiðandi. Hún hefur framleitt mat og síðar alls konar varning. í framtíðinni eru iíkur til, að hér verði breyting á, maðurinn verðru- að verulegu leyti aðeins neytandi þeirrar framleiðslu, sem elektróníkin sér um: í landbúnaði, iðnaði og víð- ar. Hver sá, sem einhvern tíma hefur ferðast í lyftu, ætti að geta gert sér hugmynd um, hvernig vélheili vinnur. Lyfta fer af stað og stanzar á þeirri hæð, sem óskað er, sé hún á uppleið stanz- ar hún ekki fyrir þeim, sem hafa óskað eftir fari niður, og öfugt. Ennfremur sýna margar gerðir á töflu, á hvaða hæð lyftan er á hverjum tíma. Lyftan fær ekki móðursýkiskast, þótt mikið sé að gera og margir þrýsti á hnappa hennar, á hæðunum og í henni sjálfri, af mikilli óþolinmæði og margir í einu. í hvert skipti, sem ýtt er á hnappinn, berst rafslag (púls) til stjórntækjanna. Sumar eru þannig útbúnar, að stjórn- tækin taka aðeins við slíkum boðum, þegar einu verki er lok- ið, aðrar þannig, að stjórntækin geta að vissu marki geymt skila- boð rafslaganna og afgreitt pant- anir í þeirri röð, sem þær ber- ast. Vélheilar (rafheilar, tölvur) vinna einnig eftir slíkum rafslög- um. Elektrónískir vélheilar hafa smám saman létt fleiri og fleiri störfum af mönnunum, og í fram- tíðinni mun þjóðfélögunum að verulegu leyti stjórnað með þeim. Það er oft freistandi að láta sér detta í hug, að vélheil- arnir hugsi sjálfir, en hvert barn Framhald á bls. 41. Nú þegar cr farið að framleiða útvarpstæki fyrir bíla með innbyggðu sjónvarpi. í framtíðinni vcröur hægt að stilla sjónvarpstækið þannig, að eigandi þcss geti sctt sig í mynd- og liljóðsamband viö livern sem er, hvar sem cr, eða skoöað í hcrbergin heima hjá scr. y—---------------------------------------------------------------- ----------------------------------------------------------------N Elcktróníkin kemur víða við. Mörgum liefur j»ótt harla ój»ægilegt að mæla líkamshitann upp á gamla mátann, hvað l»ó iðulega er ólijákvæmi- legt, þcgar vcikindi eru annars vegar. Nú hefur vcrið búið til clektrón- ískt áhald, sem mælir hitann mjög örugglega án sársaukameiri að- ferða en sýnd cr á þessari inynd. Tækið sýnir hitann upp á einn hundr- aðasta úr gráðu. V-----------------------------------------------------------------> 2. tbi VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.