Vikan - 09.01.1969, Qupperneq 9
LIFUM VIO
verða þá helgaðar blöðunum, og
eru margar aðferðir í rannsókn.
Möguleiki er að taka myndir af
síðunum á pappír, svipað og gert
er í ljósprentunarvélum, en að
líkindum verður það ekki nógu
hagkvæmt. Sömuleiðis er verið
að gera tilraunir með að taka
blöðin upp á filmu gegnum sjón-
varp á elektrónískan hátt.
Vilji sjónvarpsnotandinn ekki
missa af einhverju efni, sem flutt
eir meðan hann hefur öðrum
hnöppum að hneppa, stillir hann
klukkuna á myndsegulbandinu
— sem tengt er sjónvarpinu — á
þann tíma, sem umrædd útsend-
ing á að vera. Síðan getur hann
spólað til baka og kynnt sér upp-
tökuna, þegar hann má vera að.
Á sama hátt getur hver og einn
tekið upp það sjónvarpsefni, sem
honum er hugleikið, og sýnt það
þegar honum dettur í hug. í sam-
bandi við myndsegulbandið
verða einnig til sölu upptökur
með ýmsu efni, á sama hátt og
hljóðsegulbönd og hljómplötur
nú til dags. Þessi uppfinning á
eftir að valda þáttaskilum í
skólamálum — og alls staðar, þar
sem nú eru notaðar venjulegar
kviiómyndir og ljósmyndir.
Möguleikarnir eru í raun og veru
svo margir, að framtíðin ein get-
ur sagt fyrir um fulla nýtingu
þeirra.
Sennilega kemur það hvergi að
eins fullkomnu gagni og í skól-
unum. Myndsegulbandið hefur
þar alla kosti skólasjónvarps og
skólaútvarps, og þó heldur meira,
en enga af göllum þessara að-
ferða. Kennarinn getur sjálfur
ákveðið, hvenær hann vill grípa
til þess, og hvort hann ætlar að
sýna heila mynd eða aðeins hluta
af henni. Hann getur hvenær
sem er stöðvað bandið og sýnt
kvikmyndina kyrra, hann getur
endursýnt svo oft sem hann vill,
valið milli litasj ónvarps eða
svarthvíts sjónvarps, haft hljóð
með eða þögn, hann þarf ekki
að byrgja glugga og slökkva ljós
eða setja upp mikinn vélabúnað.
Hann stjórnar bara sínu mynd-
segulbandi með hnöppum á því
sjálfu. Hann getur sýnt samtím-
is á mörgum sjónvörpum í sömu
Ameríkanp.r leika sér að geimstríði á vélheila með
myndskermi, sem kostar ekki nema 40 milljónir
eða þar um bil. I»etta er spennandi leikur, því
livort geimskip hefur ekki nema 32 rakettur og
mjög takmarkað eldsneyti, auk þess verður að
gæta þess að skipin lendi ekki á sporbaug kring-
um sólina, sem er eins og ljóspylsa á skerminum.
I»eir, sem þannig leika sér, eru þeir sem vinna við
vélheilana hjá Information International Inc. í Los
Angeles.
Svo snjallir, sem vélheilarnir eru, hafa þeir sín tak-
mörk. I»egar maðurinn hættir að fóðra heilann á
verkefnum og staðreyndum, verður hann liarla lít-
ils virði. Mótsögnin í l>essu er sú, að það er ein-
mitt maðurinn, sem cinnig tefur fyrir vélheilanum
og takmarkar afkastagetu hans.
V________________________________________/
2. tbi. vikan 9