Vikan


Vikan - 12.06.1969, Side 2

Vikan - 12.06.1969, Side 2
Colgate fluor gerír tennumar sterkarí við hverja burstun Spyrjið tannlækni yðar... hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar. Byrjið í dag - það er aldrei of seint... Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki slzt tennur barnanna. Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur. Raunhæía^ reynslu 'vantarj Afar fróðlegir og vel saman settir voru sjónvarpsþættir Andrésar Indriðasonar um menntaskólana í Reykjavík. Þar kom margt í ljós, sem al- menningur hefur trúlega vit- að lítið um, og annað varð skírara. En einiia athyglis- verðast þótti mér það, sem fram kom í áliti eins mennta- skólanemans í síðasta þætti Andrésar, þegar spurt var um hvort skólanemendunum þætti kennslu í þjóðfélagsfræðum nægur gaumur gefinn. Sá sem mér þótti veita at- hyglisverðasta svarið, var Þorsteinn Broddason. Ekki man ég orðrétt svar hans að neinu leyti, en í því þótti mér koma skírt fram sú skoðun, að þótt bóknámið væri góðra gjalda vert, væri þess varla að vænta, að það gæti komið í staðinn fyrir raunhæfa reynslu. Vitaskuld er þetta atriði ekki nema hluti af svari pilts- ins, en mér þótti það merk- asti hlutinn. Vegna þess, hve mikið er nú um, að menn komist til æðstu valda, bæði í fyrirtækjum og einnig í þjóðfélaginu sjálfu, án annars náms en skólanáms. Ég hef áður haldið því fram í þess- um dálki, að próf séu gjarn- an metin meira en starfs- reynsla, en það sé ekki ævin- lega að makleikum. Einhvern veginn er ekki hægt að hrista af sér þá til- finningu, að stjórnmálaflokk- arnir ali til dæmis upp menn til að taka sæti á alþingi og veita forstöðu ýmsum stofn- unum, sem pólitískar stöðu- veitingar eru í, og þessir menn hafi aldrei kynnzt nema af orði, hverju þeir eru að stjórna. Með líkingamáli má segja þetta þannig, að tilsýndar sé fjall ekki annað en hvass- brýnd egg og brekkur báðum megin. Það er ekki fyrr en upp kemur, að það sýnir sig, að þar er líka flatlendi. S. H.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.