Vikan


Vikan - 12.06.1969, Síða 15

Vikan - 12.06.1969, Síða 15
að fleka hann til að kvænast þér, Dinny? Walter er heldur ekki kvæntur. Hann er kominn af kvekurum, og gerðist frjálslyndur. Einn langur dagur í viðbót, en svo fann Dinny bréf á morgun- verðarborðinu, sem ekki var frímerkt, en merkt utanríkisráðu- neytinu. Kæra ungfrú Cherrell! Ég fékk innanríkisráðherranum dagbók bróður yðar í gær. Hann lofaði að lesa hana í gærkvöldi, og ég á að hitta hann klukkan sex í dag. Ef þér viljið koma í utanríkisráðuneytið tíu mínútum fyrir sex, þá gætum við bæði talað við hann. Yðar einlægur R. Ferrar. Jæja, þá var aðeins einn dagur eftir. „Walter“ hlaut að vera bú- inn að lesa dagbókina núna, ef til vill var hann líka búinn að ákveða hvað gert yrði við Hubert...... Hún var snemma á ferð til innanríkisráðuneytisins, og henni datt í hug að hún gæti keypt eitthvað smávegis og notað tímann til að snyrta sig. Hún fór inn í verzlunarhúsið Harridge klukkan hálf fimm. Það var mikil þröng þar inni og hún gekk á milli söluborð- anna, fékk sér te og snyrti sig. Ennþá var hálftími eftir, og hún var orðin þreytt. Stundvíslega kortér fyrir sex afhenti hún nafn- spjaldið sitt í utanríkisráðuneytinu, og var vísað inn í biðstofu. Þar var enginn spegill, svo hún leit á sjálfa sig í smáspegli. Hún óskaði þess innilega að hún væri svolítið glæsilegri, en þess þurfti svo ekki með, hún átti ekki að hitta „Walter“, aðeins sitja þarna og bíða. Þá birtist Bobbie Ferrar í dyragættinni. Hann var rólegur, eins og venjulega, það var auðvitað ekki skrítið, þetta snerti hann ekki. Hann klappaði á brjóstvasa sinn. — Ég er með formálann. Eigum við að skokka? Svo fór hann að tala um Chingford morðið. — Hafið þér fylgzt með því máli? Það hafði hún ekki. Hann sagði að það lægi alveg ljóst fyrir, svo sagði hann skyndilega: — Bolivíumennirnir vilja ekki taka á sig neina ábyrgð. — Ó! — Það gerir ekkert til. Hann brosti breitt. Dinny sá að tennur hans voru jafnar og fallegar og örugglega hans eigin tennur. Þau voru komin að dyrunum í innanríkisráðuneytinu og gengu inn í stórt, autt herbergi, þar sem vörður vísaði þeim til sætis við arininn. Bobbie Ferrar dró stól að borði. — Viljið þér Graphic, eða þetta? Hann tók litla bók upp úr vasa sínum. — Hvorttveggja, ef ég má, sagði hún. Hann lagði bókina fyrir framan hana; það var lítil nýútkomin ljóðabók. — Þetta er fyrsta útgáfa, ég keypti hana áðan. — Takk, sagði Dinny og settist. Dyr voru opnaðar og einhver sagði: — Herra Ferrar, innanríkisráðherra bíður eftir yð.ur. Bobbie Ferrar leit á hana og tautaði milli tannanna: — Herðið upp hugann! svo var hann rokinn. Einhver óskiljanlegur doði færðist yfir hana. Bara að hann kæmi ekki aftur með dauðadóminn .... Hún lagði handleggina á borðið og hvíldi höfuðið á þeim. Hún vissi ekki hve lengi hún hafði verið í þessu móki, þegar hún heyrði einhvern hósta fyrir aftan sig. Það var ekki Bobbie Ferrar, heldur hávaxinn maður, rjóður og slétt rakaður. Dinny brá svo að hún hafði ekki rænu á að standa upp. — Ungfrú Cherrell! Þér þurfið ekki að standa upp. Dinny var sár- fegin, því hún treysti ekki fótum sínum of vel. — Ferrar segir að þér hafið séð um útgáfuna á dagbók bróður yðar. Dinny kinkaði kolli. — Er þetta hin upprunalega dagbók? — Já. — Óbreytt? — Já, ég hef ekki breytt einni setningu. — Ég ætla að spyrja yður einnar spurningar, ungfrú Cherrell. Hve mikið af dagbókinn skrifaði hann eftir að hann kom heim? Dinny starði á hann; broddurinn í spurningunni stakk hana. — Ekkert! Alls ekki neitt! Hún var fullskrifuð, þegar hann kom heim. Hún stóð upp. — Má ég spyrja hvernig þér vitið það? — Bróðir minn. — Henni varð allt í einu Ijóst að hún hafði engin sönnunargögn. — Bróðir minn sagði mér það. — Orð hans eru þá guðspjöll í yðar augum? — Ég hefi frumritið, stamaði Dinny. Ó, hversvegna hafði hún ekki háft það með sér? — Það sýnir það greinilega, það er bæði óhrein og krumpað. Þér getið fengið að sjá það. Ég skal . Hann lyfti upp hendinni. — Þér skuluð ekki hugsa um það. Yður þykir mjög vænt um bróður yðar, ungfrú Cherrell? Varir hennar titruðu. — Já, það þykir mér. Okkur þykir öllum vænt um hann. — Mér er sagt að hann sé nýkvæntur. — Já. — Særðist bróðir yðar í stríðinu? — Já. Hann fékk kúlu í fótlegginn. — Ekkert særður á handleggjum? Aftur fann hún sting. — Nei! Orðið kom eins og skothvellur. Þau horfðu hvort á annað í hálfa mínútu, — eina mínútu; bænarorð voru komin fram á varir hennar, en hún lagði hönd sína á þær. Hann kinkaði kolli. — Þakka yður fyrir, ungfrú Cherrell. Þegar hann hafði yfirgefið herbergið, greip Dinny báðum hönd- um fyrir andlitið. Hvað hafði hún gert? Hafði hún þreytt hann? Hún skalf, frá hvirfli til ilja. Mínúta leið. Dyrnar opnuðust og Bobbie Ferrar kom inn. Hún sá að hann var brosandi, svo það skein í tennurnar. Hann kinkaði kolli og lokaði dyrunum á eftir sér; svo sagði hann: — Þetta er allt í lagi. Dinny snerist á hæl og leit út um gluggann. Það var komið myrk- ur en Dinny sá það ekki. Allt í lagi! — Allt í lagi! Hún kreppti hnefana og þrýsti þeim að augunum. Svo sneri hún sér við. Hún heyrði hann segja: — Þetta gleður mig mjög mikið. — Ég hélt að ég hefði eyðilagt allt. — Ef hann hefði ekki verið búinn að ákveða sig, hefði hann ekki talað við yður. Hann er ekki sá harðjaxl. Hann talaði við dóm- arana í dag, og það kom honum til að skoða málið frá öðrum hliðum. — Þá hefi ég gengið í gegnum þessa sálarangist til einskis, hugsaði Dinny. — Sá hann þá ekki formálann? — Nei, og það var kannski jafn gott, hann gæti hafa snúizt öf- ugur við það. Ég held við getum þakkað dómurunum. En þér höfð- uð góð áhrif á hann. Hann sagði að þér væruð mjög fíngerð kona og eftirtektarverð. — Ó! Bobbie Ferrar tók ljóðabókina af borðinu. — Eigum við þá að koma? Þegar Dinny kom út á götuna, dró hún svo djúpt að sér andann, að henni fannst sem hún hefði fengið langþráðan svaladrykk. — Ég verð að komast á símstöðina, sagði hún. — Er nokkur hætta á að hann skipti um skoðun? — Nei. Bróðir yðar verður látinn laus í kvöld. — Ó, herra Ferrar. Hún sneri sér frá honum til að dylja tárin, sem nú runnu niður kinnar hennar, en þegar hún sneri sér við aftur, var hann horfinn. Árið 1930, rétt eftir að fiárlög;n voru afgreidd, mátti sjá þrjár enskar manneskjur virða fyrir sér styttu, nálægt Viktoríustöð- inni i London. Þau höfðu komið sitt í hverju lagi, og stóðu á opna svæðinu, þar sem sólin skein ekki í augu þeirra, en þau stóðu alls ekki saman. Eitt þessara þriggja var ung kona, tuttugu og sex ára, unglegur maður, sem hefði getað verið þrjátíu og fmm ára, og maður sem gat verið milli fimmtugs og sextugs. Unga konan var grannvaxin og greindarleg, hún hallaði undir flatt, og það vottaði fyrir brosi á hálfopnum vörunum. Yngri maðurinn var í bláum yfirfrakka, fast girtur belti, eins og honum fyndist vorgolan köld, hann hafði greinilega verið mjög sólbrúnn, en nú var fölvi á andlitinu, og munnsvipurinn var nokkuð þrjózkulegur, þar sem hann stóð og virti styttuna fyrir sér. Eldri maðurinn var hár, í brúnum fötum. Hann stóð með hendur í buxnavösunum og það lýsti einkennileg efagirni út úr veðurbörðu andliti hans. Styttan var af Foch marskálki á hestbaki, og hún gnæfði hátt yfir höfðum þeirra. Allt í einu sagði ungi maðurinn: — Hann bjargar okkur. Áhrif þessara orða á hin tvö var með ólíku móti; augnabrúnir eldri mannsins lyftust og hann fór að virða fyrir sér fótleggi hests- ins. Unga stúlkan sneri sér snöggt við og horfði með athygli á þann sem talaði, og það var greindega undrun í svipnum. — Eruð þér ekki Wilfrid Desert? Ungi maðurinn hneigði sig. — Þá höfum við sézt áður, sagði stúlkan. — í brúðkaupi Fleur Mont. Þér voruð svaramaður Michaels, þér hljótið að muna það. Ég var aðeins sextán ára. En þér munið auðvitað ekki eftir mér — D nny Cherrell, reyndar skirð Elisabeth. Ég var brúðarmey. Þrjózkusvipurinn hvarf af andliti unga mannsins. — Ég man vel eftir hári yðar. — Það er það eina sem fólk virðist taka eftir. — Það er rangt, ég man að mér fannst sem þér hefðuð setið fyrir myndum Botticellis. Ég sé að mér finnst það ennþá. Dinny hugsaði: — Augu hans eru athyglisverðust. Þau eru mjög falleg. Framhald á bls. 39. 24. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.