Vikan


Vikan - 12.06.1969, Qupperneq 16

Vikan - 12.06.1969, Qupperneq 16
Við lögðum aí stað tuttugasta og níunda október 1963, klukkan þrjú um nóttina, Humbert R. Versace, ráðunautur frá hernum, James N. Rowe, lautinant og ég. Félagar mínir voru úr sérsveit- um, sem ganga undir nafninu Grænu Baskarrt'.r. Við vorum tengdir suður-víetnömskum her- flokki, er hafði það hlutverk að þefa uppi Víetkong-menn þar í nágrenninu. Annar herflokkur hafði lagt af stað þremur klukku- stundum fyrr til að umkringja þorpið, sem við ætluðum til og var fjórtán kílómetra frá bæki- stöð okkar. Ætlunin var að tæla kongana í gildru milli herflokk- anna tveggja. Við vorum orðnir vanir slíkum leiðöngrum og sóttum óhikað fram yfir hrísakra og fenjasvæði. Bækistöð okkar var við Tan Phu í An Xuyen-héraði, sem er það sunnarlega í óshólmum Mekong að lengra verður ekki farið fót- gangandi. Þegar við komum til þorpsins, voru kongarnir á bak og burt. Hinn herflokkurinn var þegar snúinn við áleiðis til stöðv- arinnar. Við fórum að dæmi þeirra en völdum aðra leið. Við vorum á gangi fram með einu þeirra mörgu síkja, sem ós- hólmarnir eru sundurskornir af, þegar skotið var á okkur. Við guldum í sömu mynt og héldum áfram, en þeim mun lengra sem við fórum, þeim mun harðari urðu atlögur konganna. Innan skamms vorum við umkringdir. Við kölluðum á stórskotalið okk- ar og fluglið með loftskeytum, en kongarnir trufluðu sendingar okkar. Þó tókst okkur að ná sam- bandi. Ég er sjúkraliði og gerði það sem ég gat fyrir þá særðu. Versace höfuðsmaður hafði misst gleraugun sín og sá illa frá sér. Rowe lautinant hafði fengið smásár á vinstri mjöðm. Ógerlegt Höfundurinn, Daniel Lee Pitzer, (til hægri), á eftirlitsferð í ós- hólmum Mekong skömmu áður en hann var tekinn til fanga. Rowe lautinant (til vinstri) og höfundurinn að snæðingi í fanga- búðum Vietkong. í baksýn sést í rimlabúrin, sem þeir voru geymdir í. ÞEGAR ÉG LEIT UPP, STÖÐ KONGI NOKKUR FYRIR FRAMAN MIG OG MIÐAÐI Á MIG 8YSSU. HANiJ TÖK AF MÉR SKAMMBYSSU MÍNA OG ARMBANDSÚR. SVO BATT HANN HENDUR MÍNAR MEÐ ÞESSKONAR KLÚT, SEM FLEST- IR VÍETNAMAR HAFA UM HÁLSINN . . . ÞEIR NEYDDU M!G TIL AÐ SETJAST, TÖKU AF MÉR EINKENNISJAKKANN, FRUMSKÖGASKÖNA OG SOKKANA, OG BUNDU FYRIR AUGU MÉR...

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.