Vikan


Vikan - 12.06.1969, Side 30

Vikan - 12.06.1969, Side 30
PING OG PONG Ping greifi í^klóm dönsku lög- reglunnar. Hvað hefði langa- langafi sagt? Fyrir skömmu bar svo til að danskir lögreglumenn, sem voru á vakki í Istedgade í Kaup- mannahöfn, komu auga á Mer- cedes 300 SL, sem hafði verið lagt þar við gangstétt. Við stýrið sat heldur óhrjálegt ungmenni, síðhærður og í slitlegum buxum og treyju. Slíkur búnaður kom heldur illa heima við lúxuskerr- una, sem hann ók. Þegar lög- reglumennirnir athuguð málið nánar, sáu þeir að skammbyssa af Walther-gerð, reiðubúin til notkunar, var í sætinu við hlið mannsins. í farangurshólfinu fundust fimmtán hundruð prelú- tíntöflur. , Ungi maðurinn vildi fyrst ekki gefa upp nafn sitt, en danska lögreglan hafði samband við þá vestur-þýzku, þar eða bíllinn hafði verið skrásettur þar í landi. Kom þá fljótlega í ijós að hér var á ferð enginn minni maður en Carl Alexander Guido Otto Leopold von Bismarck greifi, sonarsonur járnkanslarans góð- kunna. Piltur þessi gengur ann- ars undir gælunafninu Ping og er þekktur svallslæpingi um ger- vallt meginlandið. Bróður á hann sem ei' iíka greifi og heitir Ferdí- nand. Sá er kallaður Pong, enda nauðalíkur Ping í sjón og raun. Kaupmannahafnarlögreglan stakk Ping greifa auðvitað í svartholið og innti hann að er- indum. Hann viðurkenndi að hafa keypt prelúdinið í Hamborg og Bangok. Hann fullyrti að hann hefði ætlað það einungis til eig- in nota, gegn magaslæmsku að hann sagði. Ping, sem er þrjátíu og þriggja ára að aldri, situr enn inni hjá Dönum og verður líklega ákærð- ur fyrir deyfilyfjasmygl. Líklega myndi forfaðir hans, járnkansl- arinn, snúa sér við í gröfinni, ef hann frétti hvernig Danir ætla loksins að ná sér niðri á ætt hans, meira en hundrað árum eftir Dybbölsorrustu. SKO Þfi GOMLU UPPAKOMfi Fyrir nokkru var haldið happ- ening, sem sumir vilja kalla upp- ákomu á íslenzku, á vegum ungra myndlistarmanna í Reykjavík. Sumir hneyksluðust á sýning- unni, en þeim til huggunar skal hér birt mynd af sams konar fyr- jrbæri, sem haldið var af stúd- entum í Lundi í Svíþjóð fyrir nokkru. Að sögn er skólaæskan Ginger Rogers hefur enn einu sinni sýnt og sannað að hún tek- ur flestum eða öllum fram í sýn- ingardansi á sviði. Þetta gerði hún í Lundúnum, er hún kom þangað til að leika aðalhlutverk- ið í söngleiknum „Mame“. Hún lauk sýningunni með geysiháu og velútfærðu sparki. Og hve gömul haldið þið að hún sé? —- Fimmtíu og sjö ára! MÍEDUR KREFJAST DAUDAREFSINGAR Reiðar enskar mæður krefjast þess nú að dauðarefsing verði á ný lögleidd í landinu. Háværast- ar eru þessar kröfur í Cannock Chase í Staffordshire, en þar var fyrir skömmu framið viður- styggilegt lostamorð á lítilli stúlku. Krafa um dauðarefsingu til handa morðingjanum var send neðri deild Parlamentsins, und- irrituð af tuttugu þúsund mæðr- um. En þingið vildi ekki taka málið upp. Morðinginn hefur nú verið dæmdur í ævilangt fang- elsi, en mæðurnar telja dóminn alltof vægan og hafa að nýju hafið undirskriftasöfnun málstað sínum til stuðnings. þar í borg uppreisnargjarnari en víðast annars staðar. Uppákoma stúdentanna var haldinn á op- inberum dansleik og var í því fólgin, að ein ung stúlka var klædd úr hverri spjör og síðan máluð í öllum regnbogans litum! Unga fólkið fagnaði sýningunni með stöðugum öskrum og ó- hljóðum. MOTMÆLIR I HLEKKJUM Það eru fleiri en Helgi Hóseason sem mótmæla einir á báti, eins og dæmi þessa Velsmanns, sem David Morris heitir, sýnir og sannar. Ilann hlekkjaði sig við girðinguna umhverfis Llwyny- pia-sjúkrahúsið í Rhondda-dal í Vels og sat þar í sextán klukku- stundir samfleytt. Hann var að mótmæla þeirri ákvörðun að flytja slysavarðstofu sjúkrahúss- ins úr dalnum og óbeint einnig hinum miklu útgjöldum í sam- bandi við „krýningu“ Karls prins í Caernarvon í júlí, en þá verður erfðafurstinn settur inn í em- bætti sem prins af Vels. Vels- menn líta margir svo á að þeim peningum væri betur varið til sjúkrahúss, vega, vatns- og skólpleiðslna og annarra álíka þarfaverka. 30 VIKAN 24. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.