Vikan


Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 33

Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 33
Mentol sigarettan sem hefur hreint og hressandi bragð. niður í sextíu Og sjo. Ég varS svð veikburða að mig svimaði ef ég stóð snögglega upp. Eg sá fram á að ég yrði að halda hrísgrjón- unum niðri ef ég ætlaði ekki að drepast. Ég kingdi þeim, hversu sem mig velgdi, beið síðan með- an klígjan leið hjá unz ég tók næstu munnfylli. Um síðir vand- ist ég þessari fæðu og fór að þyngjast. f janúarlok 1964 vorum við fluttir í nýjar búðir langt inn í eyðilegum frumskógi, þar sem við vorum settir í búr svo þröng, að við gátum naumast hreyft okkur. Kongarnir sögðu að kannski yrðum við látnir lausir í fangaskiptum. Þeir reyndu hvað eftir annað að kreista upp úr okkur hernaðarleyndarmál, en þá þögðum við alltaf þunnu hljóði. í apríl þetta ár hvarf Versace höfuðsmaður. Hann var þá enn við mjög slæma heilsu. Við Rowe sáum hvor öðrum bregða fyrir öðru hverju milli rimlanna í búr- unum okkar. í júní kom til okk- ar kongaforingi og sagði að samningaumleitanir um fanga- skipti hefðu farið út um þúfur. Þótt undarlegt kunni að virð- ast héldu fangaverðirnir okkur veizlu fjórða júlí, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, sem haldinn er hátíðlegur í minningu sjálfstæð- isyfirlýsingarinnar 1776. Við fengum nokkra bita af soðnum kjúklingi og svolítið brauð. En í forrétt fengum við áróðursræðu. Ræðumaðurinn lagði áherzlu á að Víetkong berðist fyrir sjálf- stæði Víetnam, rétt eins og Bandaríkjamenn hefðu barizt fyrir sínu sjálfstæði gegn Bret- um. Eftir þetta var okkur Rowe leyft að talast við einu sinni í viku í nærveru manns, sem skildi ensku. Við lékum á hann annað veifið með því að bregða fyrir okkm þýzkum setningum og málsháttum. Einn eldri varðmannanna hafði barizt gegn Frökkum forðum tíð og hafði gaman af að segja okkur frá atburðunum þá. Hann var ágætis náungi. Hann gaf okkur einskonar gúrkur og við átum þær unz við stóðum á blístri. Þær voru auðugar af C-vítamíni, og ég styrktist með hverjum degi. En síðar veiktist ég í lifrinni og fékk niðurgang, líklega af því að ég hef fengið meira súlfagúan- idín en hollt var fyrir lifrina. Aldrei brást það að við værum ljósmyndaðir um leið og okkur voru gefnar sprautur. í október var búrið mitt stækk- aðað og Rowe settur inn í það til mín. Einn bandaríski fanginn í viðbót, Edward R. Johnson yfir- liðþjálfi, var settur í gamla búr- ið hans Rowes. Það var dásamleg nýbreytni að fá félagsskap manns. í átta mánuði hafði ég aðeins haft félagsskap dýra. Þar á meðal var íkorni, sem var stór- skemmtilegur. Ég skírði hann Cyrano de Bergerac vegna þess hve neflangur hann var. Ég gaf honum það litla, sem ég gat ver- ið án, helzt rækjuskeljar. Þegar heitt var og sólskin, steinsvaf hann langtímum saman í búrinu hjá mér. Líka heimsótti mig kött- ur, sá eini af þeirri dýrategund sem ég hef vitað éta hrísgrjón. Hann nefndi ég Victor Charles, en það er gælunafn sem við höf- um um Víetkong. Þriðji kunn- ingi minn var hundur, sem ég skírði Maó Tse-túng, en hann varð ekki langlífur. Hann ein- faldlega hvarf. Trúlega hefur hann lent í einhverjum súpu- pottinum. Víetnamar hafa hunda- kjöt í næstum eins miklum há- vegum og apakjöt. Eitt sinn man ég að við fengum apaspað og það bragðaðist prýðilega. í desemberbyrjun fóru kong- arnir að smíða nýtt búr. Það reyndist ætlað bandarískum und- irforingja sem hét Leonard M. Tadios. Hann var særður, og fór ég fram á að mega hjúkra hon- um. Fyrst skelltu kongarnir skollaeyrum við því, en Rowe gat talað þá til .Við Rowe vorum áþekktir ólitum, berfættir og klæddir eftir kongatízku — í svört föt sem minna á náttföt. Tadios neitaði að tala við mig. Seinna sagðist hann hafa grunað Rowe um að vera rússneskan njósnara á vegum Víetkong og tekið mig fyrir hann. Ég skoðaði Tadios og uppgötvaði sprengju- flís í mjöðm hans. Hún var of djúpt til að hægt væri að ná henni út. En seinna færðist flísin nær húðinni og að lokum gat ég skorið hana út með rakblaði, sem ég sótthreinsaði yfir olíulampa. Tuttugasta og þriðja desember 1964 flaug bandarísk könnunar- flugvél af gerðinni L-19 yfir búðirnar og kastaði rauðum merkjaljósum. Síðan komu nokkrar þyrlur og gerðu árás með eldflaugum og vélbyssum. og okkur hafði verið hleypt út, og við Rowe tókum til fótanna i leit að skjóli. Tveir vopnaðir varðmenn fylgdu okkur eftir og við hlupum allir fjórir eins og brjálæðingar fimm kílómetra spöl yfir fen og foræði. Annað veifið sukkum við upp að hálsi í einhvern pyttinn. Þyrlurnar flögruðu yfir svæðinu allan dag- inn, hentu sprengjum og skutu af vélbyssum. Þegar við vorum læstir inni í búrunum fyrir nótt- ina, sáum við að búðirnar voru illa leiknar. Klukkan fjögur um nóttina tóku kongarnir okkur út úr búr- 24. tw. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.