Vikan


Vikan - 17.07.1969, Page 4

Vikan - 17.07.1969, Page 4
SIOAH SfBAST HANDAGANGUR Ameríkanar hafa löngum verið þekktir fyrir að vera eljusamir við að setja met í hinu og þessu. En forfeður þeirra, Englending- ar, virðast ekki ætla að vera neinir aukvisar í þessum efnum heldur. Einn bítlenzkur ofurhugi, Lundúnabúinn Bill McLeod, æfir nú af kappi fyrir ferð sína frá Lundúnum til Brighton — sem hann ætlar að fara á handagangi. Og auðvitað hefur hann þegar eignazt marga keppinauta. Einn þeirra er járnsmiður af tyrkneskum ættum, Djafer Emin, og ætlar sér að skjóta McLeod ref fyrir rass, og „ganga“ vegalengd- ina á 30 dögum, í 100 metra risp- um, en þetta er mun skemmri tími en McLeod hafði áætlað sér. Nú veður hinn 27 ára gamli járn- smiður milli fyrirtækja í Eng- landi, og vill fá einhvern til að kosta ferðina. En þess á milli æfir hann sig, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. EKKI HRÆDDUR VIÐ STÖLINN Þrjátíu og tveggja ára gamall Texasbúi, Tracey Virgil Whan, var nýlega dæmdur til dauða í Houston, fyrir morð á leigubíl- stjóra. Hann brosti þegar dómur- inn var kveðinn upp, því við réttarhöldin hafði hann haldið því fram að hann væri ónæmur fyrir rafmagni, og þar af leið- andi gæti stóllinn ekki sálað hon- um. Kvaðst hann eitt sinn hafa orðið fyrir 30.000 volta spennu og ekkert hafi skeð — nema hvað að augabrúnirnar sviðnuðu lítils- háttar. Er nú meiningin að sannreyna rafmagnsónæmi Whan's í byrjun júlí í ár. Hann er hvergi smeyk- ur, því síðastliðin tvö ár hefur engjnn verið tekinn af lífi í Bandaríkjunum, og hvert sam- bandsríkið af öðru bannar líflát með lögum. Var til dæmis ný- 'lega rifin sú bygging .í yOregon. þar sem menn höfðu áður verið teknir af lífi í, og byggður skemmtigarður á lóðinni! ☆ RABBÍNINN OG PÍNUPILSIN Þrjátíu konur, hvaðanæva að úr heiminum, komu nýlega til Jerúsalem til að fá áhe.vrn hiá tveim virtust rabbíum ísraels. Konurnar voru fulltrúar alþjóð- legs ráðs gyðingakvenna, og höfðu meðferðis bænaskjal und- rituðu að hér um bil einni mill- jón gyðinga. Þær kröfðust meira frjálsræði (hvað annað?), og eft- irgjöf á hinum ströngu lögum um giftingu og skilnað. Lærifeðurnir lofuðu báðir að taka málið til gaumgæfilegrar athugunnar, og konurnar fóru að varpa öndinni léttar. En þá tók yfirrabbíinn, Isser Yehuda Unt- erman, til máls og réðst harka- lega að pínupilsunum, sem hann kvað vera ástæðuna fyrir mörg- um fjölskylduharmleiknum: „í fyrsta skipti í sögunni sjást nú líkamshlutar sem aldrei fyrr hafa verið sýndir. Þetta reynir mikið á mótstöðu hvers manns.“ Hinn 82 ára gamli rabbíi fór þess á leit við konurnar 30, að þær reyndu að ala dætur sínar upp í blygðun: „Það væri sorglegt ef kona af kynstofni okkar gæti ekki staðist tízkufyrirbrigði sem þetta — algjörlega ólöglegt.“ ☆ SJÁLFDRAGARAR Vatnaskíði hafa verið ákaflega vinsæl íþrótt um árabil, en ekki á allra nianna (og kvenna) færi, þar sem hraðbátur er nauðsyn- legur til að draga þann sem vill leggja stimd á íþróttina: Nú hef- ur fyrirtæki nokkuð í Kaliforn- íu (aúðvitað) ráðið bót á þessu, með því að senda á markaðinn litla maskínu sem er ætlað að draga skíðamanninn, og sér sá sami um alla stjórn á tækinu sjálfur. Uppfinning þessi kallast „Ski Craft“, byggt úr fiberglas og vegur um 60 kg með mótor og öllu. Mesti hraði maskínunnar er 80 km á klukkustund, en elds- neytisþol er allt að 150 kílómetr- um. „Ski Craft“ mun einnig vera mun áhættuminni en hraðbátur, þar sem tækið stoppar innan við fimm metra frá íþróttiðkandan- um verði hann fyrir því óhappi að falla í vatnið, svo framarlega sem handfanginu sé sleppt. í Kaliforníu kostar svona nokkuð um það bil 76.500 krón- ur, en einnig er hægt að leigja sér slíkan sjálfdragara fyrir tæpar 600 kr. á klukkustund. Engum erfiðleikum er bundið að nota sjálfdragarann, allur gald- urinn er að setja ganglimina í vasana á skíðunum sem fylgja. Framleiðendurnir halda því fram að fullnema verði menn á mask- ínunni eftir hálftíma notkun. -ír SAMKYN Sama klipping, sömu gleraugu, sami klæðnaður, sömu skór — þetta er nýjasta útgáfan af sam- kynstízkunni (unisex), fyrirbær- inu, sem mæhr svo fyrir að bæði kynin skuli vera eins í alla staði — að minnsta kosti í útliti. Tízkuteiknarinn Jacques Es- terel kom nýlega til Lundúna með þetta unga par, til að kynna það sem hann kallar „þriðja kyns útlitið." Ensku blöðin voru ekki lengi að grípa við sér, en breyttu útlistingu Esterels örlítið — og kölluðu þetta „kynlausa útlitið". Það sakar ekki að geta þess, að það er stúlkan sem situr til hægri hvar sem þessi ósköp enda ann- ars. ☆ 4 VÍK.4N 29-tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.