Vikan


Vikan - 17.07.1969, Qupperneq 9

Vikan - 17.07.1969, Qupperneq 9
Annað sem ég er ákaf- lega svekktur yfir, og það er þessi stórfellda tor- tryggni sem allir virðast bera til allra. Jafnvel í stærsta dagblaði landsins, var nýlega forystugrein þar sem manni var uppá- lagt að vera ekki saklaus: að treysta aldrei neinum. Fyrst allir hugsa svona, er þó nokkur furða þó þessi vesæla veröld berist á banaspjót? Mér finnst við líka eiga heimtingu á að vera kennt að elska og treysta náunganum. Þegar við erum búin að fá það sem við eigum heimtingu á, þá er í lagi að gerðar séu kröfur til okkar. Við erum varla fær um að mæta þeim fyrr — þótt fegin vildum. CHE. Pósturinn hefur í raun- inni engn við þetta að bæta, en efast þó um að allir verði sammála. Gam- an væri að heyra álit ein- hverra fleiri á þessu máli. SÁLFRÆÐI Kæri Póstur. Mig langaði til að spyrja þig einnar spurningar og hún er svona: Er sálfræði langt nám og getur maður tekið hana alla hérna heima? Svo langaði mig til þess að þú bentir mér á eitt- hvert blað í Svíþjóð eða Englandi, sem væri líklegt til að taka við óskum frá mér um pennavini. Að síðustu þakka ég fyr- ir allt gamalt og gott og verð ég að segja að hver ný Vika flytur mér ætíð eitthvað skemmtilegt. P.S. Hvernig er skriftin? Hreppari. Sálfræði mun vera tölu- vert langt nám, en þó fer það eftir því, hverju þú keppir að. f Háskóla fs- lands mun vera hægt að taka tvö ár í sálarfræði, en síðan yrðir þú að fara er- lendis til að fullnema þig í greininni, sem gæti tek- ið nokkur úr. Annars vildi ég ráðleggja þér að hafa samband við forseta heim- spekideildar Háskóla fs- lands, Bjarna Guðnason, prófessor (sími 21330), og mun hann fúslega veita þér allar þær upplýsingar sem þú þarft á að halda. í leit að pennavinum væri reynandi fyrir þig að skrifa til FIB Aktuellt, Box 12 100, 102 23, Stock- holm 12, Svíþjóð. Skriftin þín er ákaflega skemmtileg, en gaman þætti mér að vita hvernig þú skrifar með venjuleg- um penna. BABY, BABY, BARN í MAGA . . . Kæri Póstur. Ég ætla að byrja á því að þakka þér fyrir ágætt efni í Póstinum. En mig langar til að biðja þig að hjálpa mér, því ég er í svo miklum vanda stödd. É'g er mjög hrifin af strák sem ég hef verið svolítið með, og nú er ég ófrísk eftir hann. Hann þrætir fyrir það, og segir að það geti ekki verið, og síðan ég sagði honum þetta, heilsar hann mér varla. Á böllum finnst mér eins og hann hafi gaman af að vera með öðrum stelpum fyrir fram- an mig. Hvað á ég að gera, ég get ekki beðið í von- inni lengur. Ekki segja mér að bíða og vona. Að síðustu langar mig að biðja þig að segja mér hvernig ljónið og bogmaðurinn passa saman. Ein 16 ára í vandræðum. Ja, það má með sanni segja að þú sért í vand- ræðum: Það er ekkert grín að vera barnshafandi -—• pósturinn hefur verið það sjálfur. En í þínum spor- um myndi ég reyna að hafa tal af pilti undir fjögur (6?) augu, og ef það dugar ekki, þá er að snúa sér til pabba og mömmu. Annars lízt mér nú þannig á málið, að hann sé ekki ýkja mikill maður er á reynir, þessi piltur þinn — þó hann hafi getað þetta — og því værir þú sennilega betur sett án hans. Bezta ráðið sem ég get hins vegar gef- ið þér, er að snúa þér til félagsráðgjafa. Bogamaðurinn og ljónið eiga alveg prýðilega sam- an, sérstaklega í stórræð- um, enda eru þessi tvö merki nokkuð skyld; bæði eldmerki. Ep tiér annt m teimupnar? bá bp bezta ráOifl að Þpífa bæp vel: Þegar þú burstar tennurnar með venjuleg- um bursta, hreinsar þú munninn tiltölulega hægt. Þú burstar tanngarðana beturað utan- verðu en innan. Framtennurnar betur en jaxlana. í hreinskilni sagt: Þú hefur fljótaskrift á burstuninni. Þegar þú færð þér Ronson rafmagnstann- bursta, er engin fljótaskrift. Burstinn fer 11 þúsund sinnum upp og niður á mínútu. Hann er með nettan haus og mjótt skaft. Hann nær auðveldlega til jaxlana og milli tannanna. Leifturhraðar hreyfingr hans gera það sem gera þarf. Hann nemur burt matar- leifar og óhreinindi. Fágar glerunginn. Styrk- ir tannholdið. Spurðu bara tannlækninn þinn. Ef þú ert einn af þeim, sem heldur að þú fáir rafmagnshögg í tunguna, er þér óhætt að kasta af þér áhyggjunum. Bursta- skaftið er úr plasti, sem leiðir ekki rafmagn, og þar að auki er straumurinn af rafhlöð- unum svo veikur, að þú fyndir varla fyrir honum. En nógu sterkur fyrir Ronson tannburstann. EINKAUMBOÐ: I. GuDmundsson i Co. M. v___________________________________ , 29. tw. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.