Vikan


Vikan - 17.07.1969, Page 10

Vikan - 17.07.1969, Page 10
Stjórnmálabaráttan hefur oft verið næsta ströng í Rangárþingi síðustu áratugi og mjóu munað við atkvæða- talningu í alþingiskosning- um. Framsóknarflokkurinn náði þar forustu 1937, þegar séra Sveinbjörn Högnason og Helgi læknir Jónasson felldu Jón Ólafsson bankastjóra og Pétur Magnússon síðar ráð- herra, en Sjálfstæðisflokkur- inn átti annan þingfulltrúa sýslunnar jafnan vísan eftir kjördæmabreytinguna 1942 og náði þar meira að segja yfirhöndinni 1953, er Ingólf- ur Jónsson færðist í aukana. HJutskipti Björns Fr. Bjöms- sonar sýslumanns var því að gerast vonbiðill þingmennsk- unnar langa hríð. Honum fór h'kt og Jakobi í þjónustu Labans fjárbónda, er hann vann fvrir Rakel tvenn sjö ár eins og frá segir í gamla testamentinu. Þó fékk Björn nokkra huggun svipað og Jakob, þá er honum gafet eldri systirin Lea sér til af- þreyingar. Björn keppti ung- ur um völd og áhrif á vett- vangi landsmálabaráttunnar í héraðinu, en óskadraumur hans rættist ekki að kalla fyrr en leið að kjördæma- breytingunni 1959. Þá loksins féll Rakel í faðm honum eft- ir sögulegt tilhugalíf. Björn Fr. Björnsson fædd- ist í Reykjavík 18. septem- ber 1909, sonur Björns Hieronymussonar verka- manns og konu hans, Guð- rúnar Helgu Guðmundsdótt- ur. Ólst Björn upp í höfuð- staðnum og gekk menntaveg- inn. Hann varð stúdent í Reykjavík 1929, en las síðan lög við Háskóla Islands og lauk prófi í þeim fræðum 1934. Þótti hann mannblend- inn og félagslyndur í æsku og gat sér orðstír á námsárunum sem dugmikill og skapheitur knattspyrnumaður. Vann Björn að lögfræðistörfum í Reykjavík og víðar að loknu háskólaprófi, en var settur sýslumaður í Árnesþingi 193(5—1937 og gerðist sýslu- maður Rangæinga 1937. Er hann vinsælt yfirvald í hérað- inu og ótrauður í hvers kon- ar félagsstarfi. Björn er stjórn- arformaður Kaupfélags Rang- æinga og hefur lengi verið oddviti skólanefndar mennta- setursins að Skógum undir Eyjafjöllum, sem • þvkir að vonum Rangæingum og Skaftfellingum til mikils sóma. Hann situr á Hvols- velli og stjórnar þaðan víð- lendu ríki sínu af röggsemi og myndarskap. Björn Fr. Björnsson skip- aði sér í sveit Framsóknar- flokksins þegar á háskólaár- unum og átti sýslumannsem- bættið þeirri ráðabrevtni að þakka, er Hermann Jónasson valdi hann ungan og óreynd- an til slíkrar mannvirðingar. Varð Björn líka atkvæðasam- ur í flokki sínum strax og austur kom. Hann valdist til framboðs í Rangárþingi ásamt Helga Jónassyni við fvrri kosningarnar 1942, er Sveinbjörn Högnason réðst til orustu við Gísla Sveinsson í Vestur-Skaftafellssýslu og hafði frægan sigur í átthög- um sínum. Var Björn þá sum- arlangt annar þingmaður Rangæinga, en skipaði ann- að sæti framboðslistans um haustið og sat heima með sárt enni, þar eð Ingólfur Jónsson valdist til samfvlgdar við Helga lækni sem fulltrúi hér- aðsins samkvæmt reglu hlut- fallskosninganna. Hlaut Björn sýslumaður að una sama lilut við alþingiskosn- ingarnar 194(j, 1949 og 1953. Helgi læknir hætti þing- mennsku 1950, en þá erfði Sveinbjörn Högnason ríkið með óvæntum hætti eftir að hafa setið á friðarstóli heil- an áratug. Var á orði haft, að Björn bæri vonbrigði sín karl- mannlega, er hann saknaði enn þess frama, sem hann keppti að af einstöku lang- lundargeði. Röðin kom svo að honum vorið 1959. Slóst Björn þá í fvlgd með Ingólfi Jónss.vni sem annar þingmað- ur Rangæinga, en nokkuð hafði sauðum Labans fækk- að, því að Framsóknarflokkur- inn hlaut 686 atkvæði, en Sjálfstæðisflokkurinn 837. Björn sýslumaður þótti síðan sjálfkjörinn í annað sætið á framboðslista Framsóknar- flokksins í Suðurjandskjör- dæmi um haustið og varð fjórði þingfulltrúi Sunnlend- inga. Hann var endurkjörinn við alþingiskosninaarnar 1963 og 1967 og nýtur loks Rakel- ar sinnar. 10 VTKAN 29- tM-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.