Vikan


Vikan - 17.07.1969, Side 13

Vikan - 17.07.1969, Side 13
óþekkti teiknað myndir af Andrési Ond og Línu Langsokk. Lilla rétti Ullu, sem sat við næsta borð, arkirnar. — Þú lest svo mikið af leynilög- reglusögum, geturðu sagt mér hver á þessi blöð? — Sannarlega, minn kæri Wat- son, maðurinn heitir Sven Syrén. — Hvernig geturðu séð það? sagði Lilla undrandi. — Efst á blaðinu stendur hverjir greiddu atkvæði á fundinum, og það var aðeins einn frá Stokkhólmi. — Stendur heimilisfang hans þar líka? — Nei, en hann er fulltrúi fast- eignafélagsins Elit, svo það er hægt að fletta upp í símaskránni. — Jæja, sagði Sven við síma- stúlkuna, er einhver fröken Blom- quist að spyrja um mig? Gefið henni samband, sagði hann, fullur eftir- væntingar. — Halló, sagði Lilla, — er þetta herra Syrén? — Góðan dag ungfrú góð, en hve það er gaman að heyra í yður. Þakka yður kærlega fyrir síðast, það var ógleymanlegt! — Tókuð þér eftir mér í vagnin- um? sagði Lillá undrandi. — Hvaða vagni? — Fimmtíu og tvö í hádeginu. Þér tókuð pokann minn I misgrip- um. Eigið þér ekki fjólubláan bréf- poka? — Jú, með gulri sól, og hann stendur hérna bak við skrifborðið mitt. — Það er minn poki, þér tókuð hann í misgripum, þegar þér fóruð úr vagninum. — Ungfrú góð, þennan poka hef ég persónulega borið alla leið frá Málmey. Það er ekkert vafamál að það er minn poki. En til að róa yð- ur skal ég athuga innihaldið. Sven lagði frá sér símann, og rétt á eftir heyrði Lilla hálfkæft óp og blótsyrði. — Hvað er ! pokanum, öskraði Sven í símann. — Þegar ég tók hann upp, fór botninn úr honum. Hvaða viðbjóðslega leðja er þetta sem vellur út á teppið mitt? Hún er rauðbrún. — Ó, sagði Lilla, — það hlýtur að vera (sinn sem ég ætlaði að hafa í ábæti. Það eru jarðarber og súkku- laði. — Svei, svei, þér skuluð gleðjast yfir því að losna við þann óþverra, það er verra með teppið. Hvar eigið þér heima, hvert get ég sótt dótið mitt? — Eg bý á Norðurskersgötu 14, það væri gott að þér gætuð komið fyrir klukkan sex. — Það get ég ekki, ég hef svo mikið að gera. — Hvað verður þá um matinn minn? — Þér getið tekið brauðið mitt og búið eitthvað til úr því. Lilla fór að ráðum hans. Hún átti krabbadós, og ofnsteikt brauðið var Framhald á bls. 31.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.