Vikan


Vikan - 17.07.1969, Page 16

Vikan - 17.07.1969, Page 16
ni: HARALIELDDN LOGASDN TUNGLIDIIAR ÞAR SEM RVRRA- HAFID ER ND . Þessa mynd tók Kristján Magnússon á Expo ‘67 í Montreal. Hún er frá banda- ríska skálanum og sýnir tunglferjur í tungllandslagi. Innan skamms ætti að vera hægt að fá sambærilega mynd frá tunglinu, ef allt fer að óskum. Ef allt fer að óskum, munu menn lenda á tunglinu í fyrsta sinn eftir fáeina daga, og hafa með sér til jarðar sýnishorn af efni þess. Trúlega verða þeir þá með sömu efni og finna má í möttulefnum og skorpuefnum jarðarinnar. Þó er sú óvænta niðurstaða Jíkleg að aldursgreining leiði í Ijós, að efnin hafi storknað fyrir aðeins 100—120 milljón árum. UM % hlutar tunglsins gætu verið úr skorpuefni jarðarinnar, en þau er trúlega helzt að finna á þeim svæðum tunglsins, sem eru brúnir þess frá jörðu séð. Sé sú kenning vísindamanna rétt, að lífsleeifar, seb skildar væru eftir á tunglinu (t.d. hugsanleg lík geimfara), myndu varðveitast þar óskemmd- ar, er ekki fráleitt, að finna megi lítt skemmda skrokka risa- eðla, tiltölulega grunnt undir yfirborði tunglsins, ef þær hamfarir er tunglið rifnaði frá jörðinni og varð fylgihnött- ur hennar, hafa ekki gersamlega eyðilagt slíkar menjar. Sá, sem þessu heldur fram, er þrítugur múraranemi í Reykja- vík, Haraldur Eldon Logason að nafni. Hann hefur frá unglings- aldri haft gífurlegan áhuga fyrir jarðfræði og gert sér far um að afla sér svo mikils fróðleiks um þau efni, sem honum hefur ver- ið unnt. Hann setur hér fram kenningu, sem rennt gæti stoð- um undir þá áður lauslegu full- yrðingu, að tunglið hafi einhvern tíma í fyrndinni slitnað frá jörð- inni á þeim slóðum, sem Kyrra- hafið er nú, og orðið fylgihnöttur hennar. Undirstaða kenningarinnar er sú, að jörðin „púlsi“, það er, að frávik hennar frá réttri kúlu færist til þannig að hún ýmist grennist um miðjuna og lengist til pólanna eða öfugt, en verður þó aldrei meiri að ummáli um pólana en svo, að sporbaugslög- un haldist. Vegna hins mikla mismunar á aðdráttarafli, sem jarðarkjarn- inn myndar með breytilegum straumum, þarf jörðin að drag- ast saman á einum stað en þenj- ast út á öðrum, til að fá mismun- andi sporbaugslögun. Nú eru jarðefnin ekki það teygjanleg, að þau herpist saman eða þenj- ist út fyrirhafnarlaust, og þá verða umbrot í jarðskorpunni, sprungur myndast á öðrum staðnum en hryggir á hinum. Þegar jarðlagsefnin rifna, koma möttulefnin upp í sprunguna, og valda þá stundum eldgosi. Með tímanum kólna þau síðan og harðna í rifunni og loka henni, en hörðnunin verður ofan frá þannig að tappinn verður ekki jafn þykkur niður og skorpuefn- in í kring. Þegar jörðin þarf síðan aftur að dragast saman um þessi svæði, lyftast sprungu- barmarnir og mynda hryggi, svo sem Atlantshafshrygginn. Sönn- un fyrir þessari kenningu telur 16 VIKAN 29- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.