Vikan


Vikan - 17.07.1969, Qupperneq 23

Vikan - 17.07.1969, Qupperneq 23
IEMSITÉGOG SAUMA | v________________/ Það er ekki auðvelt að hugsa sér heimili án saumavélar. Jafn- vel þótt húsmóðirin stundi ekki saumaskap að jafnaði, er ótal margt, sem nauðsynlegt er að gera við eða lagfæra, saumsprett- ur og glompur. Margar ungar stúlkur hafa líka komizt að því, að þær hafa tök á að klæðast ódýrar og fjölbreyttar, ef þær geta eitthvað saumað sjálfar, og fyrir þeim er þá seinna sjálf- sagt að þær sauma á börn sín, þegar þau koma til sögunnar. Saumavélarnar hafa auðvitað tekið miklum framförum síðan farið var að búa þær til, en fyrsta einkaleyfi til framleiðslu slíks áhalds mun vera til frá því um 1790. Á seinni áratugum hafa breytingar orðið örar. Frá því að verða handsnúnar í fótstignar vélar, síðan voru þær tengdar rafmagni og zig-zag og allskonar skrautsaumur kom til sögunnar. Saumavélar urðu ekki leng- ur staðbundnar, þær fengu ut- anum sig tösku, svo hægt væri að flytja þær til og jafnvel geyma þær inni í skáp eða undir borði þar sem lítið bar á, séu þær ekki í notkun. Síðasta gerðin sem komin er á markaðinn, Elna Lotus er jafnvel svo lítil, létt og fyrirferðalítil að ætla mætti í fljótu bragði, að hér væri lítið ferðaútvarpstælíi. En þessi litla saumavél gerir allt, sem krafizt er af góðri saumavél, auk venju- legs saums saumar hún zig-zag, hnappagöt, lokaðan fald, tungu- fald og hægt er að festa á hnappa, króka og lykkjur svo eitthvað sé upp talið. Stillingar éru mjög einfaldar og stilling á spennu tvinnans sjálfvirk svo og þrýsting fótarins sem saumað er með svo vélin saumar jafn auðveldlega í þykkt og þunnt efni. En hvernig sem saumavélin er, þarf hún einhversstaðar að vera þegar verið er að vinna við hana. Hvort sem vélin er í eigin skáp með tilheyrandi borði eða vél í tösku, sem hægt er að flytja til og frá, er nauðsynlegt að hafa stað þar sem hægt er að fá að vinna í friði. Sé eitthvað að ráði saumað fyrir heimilið er ekki bara saumavélin, sem um er að ræða. Það þarf aðstæður til þess að sníða, breiða út snið og efni án þess að eiga á hættu að allt fari í rugling. Eldhúsmatborðið er aðeins þrautarlending, af því þarf sífellt að taka, til þess að komast að til að bera fram mál- tíðir heimilisfólksins. Sé þvottaherbergi innar af eldhúsi getur það verið mjög ákjósanlegur staður fyrir sauma- skap, þar er hægt að hafa strau- borð til taks þegar það hentar og slíku vinnuherbergi má svo loka, þótt eklci sé lokA' við verk- ið, án þess að þurfa að ganga vel frá. Dálítið horn í svefnherbergi með nálægum hillum fyrir snið og þess háttar ætti ekki að taka mjög mikið rými. Ein ráðsnjöll kona fékk sér masonitplötu og lagði ofan á hjónarúmið, þegar hún þurfti að sniða. Hér fylgja með tvær myndir, önnur úr vinnu og þvottaher- bergi, hin smáhorn í svefnher- bergi. Óþarft ætti að vera að minnast á að hafa góða lýsingu við slíkan vinnustað, ljós sem lýsir vel á það sem verið er að gera án þess að skína í augun. ☆ f----------;-------------------------------------------------------------------------------------------------->. SÚKKULAÐIKAKA DEIG í BOTNA 6%—7 dl hveiti IV2 dl sykur 3 matsk. kókó 300 gr smjörlíki 2 lítil egg Vanilla. Blanda hveiti, sykri og kanel í skál. Smjörlíkið mulið í. Látið á borð, egginu og vaniliu bætt í og allt hnoðað fljótt saman. Látið standa á köldum stað minnst 1 klst., jafnvel lengur. Deig- inu skipt í 5 jafnstóra hluta, flatt út í kringlótta, þunna botna, sem líkasta að stærð. Lagðir á smurðar plötur og bakaðir við 175° C hita í 8—10 mín. Botnarnir látnir kólna á plötunni. Lagt saman með 4 dl af rjóma, sem er stífþeyttur. Bragðbætt með rifnu súkkulaði og rifnum appelsínuberki- ☆ ú___________________________________________ j 29. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.