Vikan - 17.07.1969, Side 41
innrætið. „Ef ég get sungið
blues, þá geta allir sem hugsa
eins og ég sungið blues,“ segir
hún.
En burtséð frá spurningunni
um kynþátt, þá er það staðreynd,
að blues-inn er nokkurskonar
flðgátt fyrir tilfinningar hvítra
unglinga jafnt og þeirra svörtu-
Allra þeirra sem eru hvekktir:
ef ekki á manninum sjálfum, þá
á Viet Nam, fátækt, kerfinu í
heild eða þá á sjálfum sér. Eða
eins og Charles Keil, félagsfræð-
ingur og rithöfundur segir í bók
sinni „Urban Blues“: „Hluti, sem
blökkumenn hafa verið að
kvarta um í meira en 400 ár, eru
hvítu unglingarnir farnir að
kvarta um nú.“ Og Albert King,
blues-isti, bætir við: „Krökkun-
um í dag líður nákvæmlega eins
og mér leið þegar ég var strák-
ur.“
Það er ómögulegt að segja hve
lengi þessi blues faraldur stend-
ur yfir; pop-tónlistinni var ekki
spáð löngum lífdögum. En það
er alltaf til fólk með þel....
☆
tsCC 'r.ríi'jrOvi J >■. ■
- • Tlvað.ör ^yomj falleg stúlka
að gera hér. ,■ .
LILLIU
LILÍJU
LIL-JU
bma:
JarSsögukenning
Haraldar
Framhald af bls. 19.
lega er minna en einn hundraðs-
hluti gíganna á tunglinu eftir
loftsteina. Flestir gígar tunglsins
virðast bera þess merki að „suð-
an“ hafi komið upp á því.
Hugleiða má nánar yfirborðs-
áferð tunglsins og geta sér til um
orsakir allra þeirra gíga sem þar
eru að frátöldum þeim gígum
sem eru eftir loftsteina. Hitastig
í möttulefnum jarðar er hærra
en bræðslumlark þeirra myndi
vera á yfirborði jarðar en vegna
þrýstings, sem er með öðrum
orðum aðdráttarkraftur, haldast
þau í föstu ástandi. Þegar svo
tunglið yfirgaf jörðina, féll
þrýstingurinn að sjálfsögðu um
5/6 hluta, og við það hafa efnin,
sem með tunglinu fóru, bráðnað
upp, og tunglið þannig runnið í
kúlulögun þegar það var komið
á braut. Hafi efni tunglsins
bráðnað þannig, má jafnvel bú-
ast við að aldursgreiningar á
bergi þaðan gefi ekki hærri ald-
ur en 100 milljón ár, þó að það
sé úr möttulefnum jarðar.
Jarðskorpan, sem eftir varð við
brottför tunglsins, brotnaði í
nokkra liluta og bárust þeir á
bráðnum möttulefnunum að gíg
sem myndaðist við brottför
tunglsins og mynda núverandi
heimsálfur. Skorpa hefur svo
myndazt milli þeirra eftir að
kyrrð komst á og hafa þær ver-
ið þar sem þær stöðvuðust síð-
an. Þetta er ekki í samræmi við
landrekskenninguna og er ég
henni ósammála að öðru leyti en
því, að meginlöndin hafi skilizt
að. Kenningu minni til stuðnings
tel ég einnig, að með henni má
skýra hitabreytingar, sem orðið
hafa síðutsu þrjár til fjórar
milljónir ára og áður með um
tvö hundruð milljón ára milli-
bili þannig að með lögunarbreyt-
ingunum fylgi afstöðubreytingar
snúningsássins bæði gegnum
jörðina og gagnvart sólu. Þó að
þannig afstöðubreytingar þyki
ósennilegar, eru þær mun nær-
tækari skýring á veðurfarsbreyt-
ingum en geimrykmistur, sem
bíði, óháð öllum lögmálum, eftir
jörðinni í hverri hringferð vetr-
arbrautarinnar, og hafi tunglið
skilizt frá jörðu er augljóst, að
tilfærsla snúningsássins er meiri
en talið er. Það er að ég liygg
ótímabært að tína til smærri
atriði, enda efni í marga doð-
ranta og ætlast ég reyndar til að
fræðimenn hugleiði og beri ein-
stök atriði við kenninguna og
hugleiði svo sérstaklega afleið-
ingar margendurtekinna lögun-
arbreytinga jafnvel án tillits til
orsaka þeirra, og beri niðurstöð-
ur sínar saman við áferð jarðar-
innar.
HINGAÐ TIL
hafa slíkar endurbætur kostað mikið rask, sem margar hús-
mæður vilja hlífa sér við. Nú er allt breytt. Við tökum gömlu
innréttinguna niður og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn-
flutta innréttingu — allt á tveim dögum. Við breytum ekki
heimilinu í trésmíðaverkstæði á meðan og þér undrizt, hvað
eldhúsið gerbreytist, hvað íbúðin breytist og hvað störfin
verða ánægjulegri. Allar okkar innréttingar eru úr harðplasti
í miklu litaúrvali og þér getið fengið eldavél, uppþvottavél
og ísskáp frá sama framleiðanda. — Verðið er mjög hagstætt.
HÚS OG SKIP Ármúli 5 — Símar: 84415—84416
m
Mósaik hf.
Þverholti 15 — Sími 19860.
Haraldur Eldon Logason.
29. tbi. VIICAN 41