Vikan - 17.07.1969, Síða 42
KYLFURNAR
GERDU MIG AD
SÓSÍALISTA
Hún er smá vexti. hefur kast-
aníubrúnt hár og gráblá augu.
Meðan hún þegir, er hún ósköp
lítið fyrir kvenmann að sjá. En
hún stækkar fljótt þegar hún
talar yfir mannfjölda. Rödd
hennar og hvöss og pískandi
ákefðin í máli hennar ber eng-
um aumingjaskap vitni. Á póli-
tískum vettvangi gefur hún eng-
um stjórnmálamanni eftir,
hversu gamall og reyndur sem
hann er.
„Hún er það bezta, sem skotið
gat upp kollinum i brezkum
stjórnmálum,“ segja fylgismenn
hennar. „Hroðalegt," æpa aftur-
haldsmennirnir-
Hún er Bernadette Devlin,
tuttugu og tveggja ára og yngsta
konan, sem setið hefur í parla-
menti Breta. Fyrir sex mánuðum
hafði hún aldrei tekið til máls á
opinberum fundi og aldrei látið
sérstaklega á sér bera meðal
samstúdenta sinna við Queen
University í Belfast, þar sem hún
las sálfræði.
f dag er hún þingfulltrúi sextíu-
og átta þúsund íbúa í kjördæm-
inu Mið-Ulster á Norður-írlandi.
Hún flytur mál þeirra í Lundún-
um, meðal stórlaxanna í brezk-
um stjórnmálum. Áður lifði hún
á námsstyrk, sem nam áttatíu
þúsund krónum um árið, en laun
hennar fyrir þingsetuna eru ti-
falt hærri.
f stjórnmálunum hefur hún
framast með eldflaugarhraða.
Þetta byrjaði fimmta október
síðastliðinn. Þá tók hún þátt í
mótmælagöngu í borginni Derry
og sá lögregluna berja niður
göngufólk, sem sýndi þó engin
ólæti af sér. Þá fyrst varð áhugi
hennar á þjóðmálum að fullri
alvöru.
— Kylfurnar vísuðu mér veg-
inn frá draumnum til veruleik-
ans, segir hún.
Þremur dögum síðar tók hún
þátt i stofnun stjórnmálaflokks,
er tók heitið People's Democracy,
lýðræðisflokkur alþýðunnar.
Náði flokkurinn þegar miklu
fylgi í Belfast, þar sem bæði
stúdentar og aðrir fylktu sér í
hann til andstöðu við aðra norð-
ur-írska flokka, sérstaklega þó
sambandsflokkinn, sem er þar í
stjórn.
í febrúar lét þáverandi forsæt-
isráðherra, Terence O'Neill höf-
uðsmaður, fram fara almennar
kosningar til að kanna hvort
hann hefði fylgi fólksins eður ei.
Hann sigraði, en fékk litlu meira
fylgi en ofstækisfullir prótest-
antar undir forustu Paysleys sem
vilja neita kaþólskum mönnum
um pólitískt jafnrétti. Bernadette
Devlin bauð sig þá fram á móti
núverandi forsætisráðherra
Norður-íra, James Chichester-
Clark, í Stormont-kjördæmi.
Hann fékk rúmlega níu þúsund
atkvæði, Bernadette næstum sex
þúsund. Sambandsmennirnir
urðu skelkaðir, en enginn dró
lærdóm af kosningunni-
42 VIKAN 29- tbl-