Vikan


Vikan - 21.08.1969, Page 19

Vikan - 21.08.1969, Page 19
De Gaulle er höfði hærri en þorri Frakka — í fleiri en einum skilningi. Það gerð að verkum að um síðir þreyttust þeir á honum. T staðinn kusu þeir yfir sig Pompidou, hæglátan og alþýð- legan hóglífismann af lágum stigum, sem án verulegrar fyrirhafnar er kominn til æðstu met- orða. Praktísk reynsla, sem hann hefur fram yfir hershöfðlngjann gamla, ætti að gera honum auðveldara fyrir um margt. Margt bendir til þess að heimurinn, allavega sá hluti hans er tíðast er auðkenndur með höfuðáttinni vestur og hugtökum eins og lýðræði, kapí- talisma, nýkólonfalisma, velferð, sé að þreytast á stórbrotnum mönnum. Sæmilega feitar og ánægðar mi 11 istéttir, sem eru kjarni þessara þjóðfélaga, hafa snúizt við ólátum af hálfu stúdenta, negra, láglaun- aðra verkamanna og annarra vansælla minnihlutahópa með því að kjósa til forustu menn f sinni mynd. Rfki Kennedys og Johnsons erfði meðal- mennið Nixon, og eftir de Gaulle í Frakklandi kemur Pompidou. Orðið er á frönsku haft um puntslaufur af þeirri gerð sem hnýtt er um hálsinn á kettlingum eða í hárið á litlum stúlkum þegar þær skreppa út á sunnu- dagsgöngu. Margir trúðu naumast eigin eyrum, þegar það fréttist að Charles de Gaulle væri farinn frá. Þessi ijóndjarfi, sérvitri, hégómagjarni og þolni þjarkur hafði um nærri þriggja áratuga skeið staðið eins og klettur úr stjórnmálahafi Frakklands, þar sem lengstum var hvers kyns veðra von án langs fyrirvara. Stundum hafði borið á hann skugga, en um síðir varð sigurinn jafnan hans, enda um fáa skæða keppinauta að ræða í því krákumori, sem frönsk stjórnmál hafa verið sfðustu áratugina. Fyrir stríðið var hann þeim mun framsýnni en stéttarbræður hans í franska hernum að hann sá fram á mikilvægi hreyfanlegs hernaðar framyfir kyrr- stæðan, en ráðum hans var ekki hlýtt og franski herinn féll við fyrsta högg Hitlers. Franska þjóðin, kjarklaus og blóðlaus eftir áföll fyrra heims- stríðs, tók niðurlægingu ósigursins með sljóu jafnaðargeði í anda þeirrar tækifærisstefnu sem er aðal fransks hugsunarháttar; fyrrihluta strfðsár- anna voru það Pétain og Laval, sem voru persónugervingar fransks þjóðarvilja. Á de Gaulle tók þá varla nokkur maður mark, sízt Frakkar sjálfir. Það var því engan veginn út f hött hjá Roosevelt, þegar hann lét sér detta í hug að meðhöndla fransmennina eins og hernumda óvinaþjóð, Framhald á bls. 39 Heimilisbragurinn í Élysée-höll kemur til með aS breytast verulcga með nýju forsetahjónunum. Yvonne de Gaulle þótti nokkuð viktoríönsk í viðhorfum og reyndi til dæmis eftir beztu getu að útrýma „djörfum“ bókum og kvikmynd- um. Claude Pompidou er henni gjörólík, frjálsleg og tilgerðarlaus í fram- komu og líkt og maður hennar mjög áhugasöm um bókmenntir og listir. Margar frægustu persónur fransks menningarlífs í dag eru meðal kunningja þeirra. Meðfylgjandi myndir eru af þeim hjónunum við ýmis tækifæri. x | ^ 11111 ;.: • :• ilMIP IHH

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.