Vikan - 05.03.1970, Side 28
Líf hans byggist á hraða og það hefir gert hann frægan.
Nú, þegar hann er kominn yfir sjötugt,
segist hann elska hraðann meira en milljónir sínar.
Tíminn er dýrmætari en peningar fyrir hann:
„Tíminn er lífið“.
FRITZIION OPEl
»11111EEGHUM LÍHI
Fritz von Opcl vílar ekki fyrir sér að fara á
vatnaskíði, pótt hann sé nokkuð við aldur. Hér er
hann að kenna ungri blómarós undirstöðuatriðin á
þurru landi.
Flugvélin RAK 1 þaut í lágflugi yfir mold-
argötunni, of hratt til að geta lent, en of hægt
til að vinna hæð. Sekúndum síðar hrapaði vél-
in niður í gosbrunn og rifnaði í tætlur. Flug-
maðurinn hékk í belti sínu, meðvitundarlaus,
en óskaddaður.
Þetta skeði 30. september árið 1929, fyrir
fjörutíu og einu ári síðan. Þetta var sögulegur
dagur: Þennan dag flaug hann i fyrsta sinn í
flugvél, sem var knúin eldflaug, -ekki mótor.
Þennan dag var fyrsta skrefið stigið til geim-
ferða, og það gerði Þjóðverji.
Hann var þá um þrítugt, og þá þegar orðinn
einn af ríkustu mönnum Þýzkalands.
Milljónir farartækja bera nafn hans, sem er
þekktara sem merki á bílategund, en nafn á
manni af holdi og blóði. Nafnið er auðvitað
Opel.
Fritz von Opel er rúmlega sjötugur. það er
að segja að hann er sjötíu ára ungur. Hann er
verkfræðingur, uppfinningamaður, stóriðjuhöld-
ur, og Ijóðskáld. Ekkjumaður. Faðir þriggja
barna.
Hann býr í Saint-Tropez á sumrin, í St. Moritz
á veturna, og þótt hann sé innan um kvikmynda-
stjörnur og annað fólk úr skemmtanaheiminum,
þá hefir hann lítið saman við það að sælda.
Brigitte Bardot, sem um tíma var gift Gunter
Sachs, frænda hans, er nábúi hans, það eru að-
eins nokkrir metrar á milli húsanna, en það gæti
alveg eins verið heilt heimshaf á milli þeirra
tveggja.
Hann reykir ekki, hann drekkur ekki, borðar
fábreyttan mat. Hann er mjög hrifinn af rjóma-
ís og borðar allt að tuttugu skömtum á dag.
Hann vinnur oft til klukkan þrjú á nóttunni,
og fer á fætur klukkan sex á morgnana, þegar
næturhrafnar eru yfirleitt að koma heim til sín
Ute er ekki hrædd þótt báturinn snerti varla hafflötinn.
: ' j:
:
wmmm
■■■......
111
■ liiMii 1
:í
■ , ::■:
" ■ :'
■
28 VIKAN 10- tbL