Vikan - 05.03.1970, Blaðsíða 45
— Ég meina ... um hvað ertu
að tala?
— Mamma, sagði Elaine til
útskýringar — Hún hefur verið
í hálfgerðum trans í dag ein-
hverra hluta vegna. Hún hlýtur
að vera hugsa eitthvað stíft.
— Eins og hvað?
— Ég veit það ekki.
Benjamín sneri til hægri og
þaðan niður á hraðbrautina.
— Þú þekkir hana ekki vel, er
það? spurði Elaine.
— Nei.
— Ég er hrædd um að þér
hafi fundizt hún ægilega rudda-
leg.
— Ertu að afsaka hana?
—• Nei, sagði Elaine. — Ég er
bar — ég er bara hrædd um að
þú hafir fengið ranga hugmynd
um hana En hún var ekki eins
og hún á að sér í dag.
Benjamín gaf benzínið í botn
og skipti um akrein. Bill flaut-
aði fyrir aftan hann. Benjamín
leit í spegilinn og skipti enn um
akrein.
Býrðu ekki heima hjá þér?
spurði Elaine.
— Jú.
Hún kinkaði kolli. Hefurðu
gert eitthverjar áætlanir?
— Nei.
— Enga vissa vinnu, skóla eða
svoleiðis?
Benjamín fór aftur yfir á hina
akreinina, lagðist á flautuna og
svínaði fyrir bílinn sem hafði
fiautað á hann áður. Elaine leit
á hann augnablik en horfði svo
aftur út um gluggann.
— Hvað um verðlaunin þin?
— Hvað með þau?
— Hvað varð um þau?
— Ég lét þau flakka?
— Hvað?
— Ég afþakkaði þau.
— Hvers vegna gerðir þú það?
Benjamín gaf í og var kominn
fast að bilnum fyrir framan;
hann lagðist á flautuna. Maður-
inn í bílnum fyrir framan lyfti
annarri hendinni upp að eyranu
og benti Benjamín að hætta að
flauta. Hann hélt sig nokkrum
sentimetrum fyrir aftan og hélt
áfram að flauta. Loks myndaðist
örlítið bil í næstu akrein og mað-
urinn skaust inn í. Benjamín
brunaði fram úr við hlið hans.
Er eitthvað að? sagði El-
aine.
— Nei.
— Keyrirðu alltaf svona?
Já.
Hún leit aftur út um gluggann.
Fyrsti klúbburinn sem þau
heimsóttu var Club Renaissance
Elaine rétti stúlkunni í fataheng-
inu kápuna sína og maður í
smóking vísaði þeim að borði í
miðjum salnum. Fyrir utan einn
mann sem sat í einu horninu
voru þau alein í klúbbnum. Lítil
sena var í enda salarins, þar sem
á var píanó og trommusett, en
engir hljóðfæraleikarar.
— viltu mat? sagði Benjamin
þegar þjónninn hafði komið með
tvö glös á borðið.
— Já, þakka þér kærlega fyrir.
— Matseðilinn, takk, sagði
Benjamín við þjóninn.
— Mat fvrir tvo, herra?
— Nei, sagði Benjamín. —
Bara fyrir hana.
Þjónninn kinkaði kolli og fór.
— Ætlar þú ekki að borða?
sagði Elaine
— Nei, sagði Benjamín og
drakk úr glasinu.
— Hvers vegna ekki?
— Ef þér er sama þá er ég
ekki svangur.
Þjónninn kom aftur stuttu síð-
ar með matseðilinn en Elaine
hristi höfuðið. — Ég hef skipt
um skoðun, sagði hún. — Þakka
þér fyrir.
Næsti klúbbur var The Interi-
or. Hljómsveit lék fyrir dansi er
þau komu inn og Benjamín fann
borð handa þeim. Hann pantaði
tvö glös.
— Viltu dansa? sagði hann.
— Vilt þú það?
Hann yppti öxlum og stóð upp.
Elaine stóð upp líka og fór á
eftir honum út á gólfið. Þau
dönsuðu nokkur spor, en þá hætti
Benjamín allt i einu og benti á
borðið með höfuðhreyfingu.
— Glösir eru komin, sagði
hann, og ruddi sér leið í gegnum
fólkið á dansgólfinu.
I þriðja klúbbnum var nektar-
sýning. Elaine fór á eftir honum
inn og afhenti kápuna sína sjálf.
Benjamín gekk í gegnum salinn
og valdi borð beint fyrir framan
sviðið. Hann settist og þegar El-
aine kom kinkaði hann kolli í
áttina að stólnum á móti sér.
— Benjarrín?
— Setztu.
— En .. Benjamín . .
— Hvað?
— Á ég að sitja með höfuðið
upp að sviðinu?
— Já.
— Getum við ekki fengið borð
örlítið aftar?
— Nei.
Elaine hikaði andartak en sett-
ist svo. Benjamín bað um tvö
glös og rak svo hendurnar á kaf
í buxnavasana og horfði á sýn-
inguna.
Lítil hljómsveit lék öðrum
megin á sviðinu og fyrir miðju
stóð dansmærin í keng, með bak-
ið að áhorfendunum og horfði
glottandi á þá á milli fóta sér.
Dágóða stund stóð hún svona og
lyfti rasskinnunum til skiptis, en
að lokum stóð hún upp og fór að
hoppa til og frá um sviðið. Hún
var með gyllt lok á brjóstunum
og við þau voru festir langir,
bleikir dúskar. Hún fór að sveifla
þeim fyrir framan sig sem hún
gekk og hoppaði.
Þjónninn kom með glösin að
borðinu.
Viltu drekka mitt? sagði
Elaine.
BIBLÍAN
RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
BIBLlAN — RIT HENNAR 1 MYNDUM
OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóða-
útgáfu. Myndirnar, sem danska listakon-
an Bierle Dietz hefur gert, eru litprentað-
ar í Hollandi, en textinn er prentaður hér-
lendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inn-
gang og ágrip af sögu íslenzkra Biblíuþýð-
inga frá upphafi. — Þetta er vönduð og
glæsileg myndabók, sem hefur að geyma
nýstárlega túlkun á Heilagri ritningu.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
10. tbi. VIKAN 45