Vikan


Vikan - 30.04.1970, Page 39

Vikan - 30.04.1970, Page 39
FRÁ RAFHA BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur. — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. 56 LITRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar elemsnt (grill). Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÓÐINSTORG - SÍMI 10322 — Ó, mamma ... Það skyggði yfir ljómandi andlitið. — Ég er ekki á móti Ernö Buday, mér þykir hanna bara leiðinlegur. Við eigum ekki margt sameiginlegt. — Það getur verið að þú kom- izt á aðra skoðun, áður en langt um líður, sagði Aranka og lokaði dyrunum á eftir sér. Klukkan var tíu mínútur yfir fjögur, þegar Milly kom hlaup- andi að Stefánsbrúnni. Þar stóð hann — Jóhann Orth. Hann hall- aði sér upp að handriðinu og hann var með gardeniu í hnappagat- inu. Ó, hvað hann var glsæileg- ur! Stutta, dökka skeggið og dökk augun, hann var mjög aðlaðandi. Hann kom brosandi á móti henni. Milly var búin að búa sig undir svolitla þakkarræðu fyrir orkideurnar, en þegar hann tók hönd hennar, gat hún ekki komið upp nokkru orði. Hann vildi heldur ekki heyra þakkir nefndar. — Það er ég sem á að vera þakklátur, vegna þess að þér vilduð taka við þeim. Svo spurði hann hvort þau ættu ekki að aka til Niissdorf. — Það er svo yndislegt vor- veður. Hvenær þurfið þér að vera komin í leikhúsið? — Ekki fyrr en hálfníu, í ann- an þátt. — Ágætt, þá höfum við fjóra tíma . .. Hann tók rólega í hönd hennar og stakk henni undir arm sinn. — Ég er með vagn hér rétt hjá. Þetta var vel hirtur, svartur tvíeykisvagn og án númers. (Slíka leiguvagna notaði heldra fólkið, þegar það vildi ekki láta þekkja sig á númerum og skjald- armerkjum). Milly hafði oft tekið eftir því að Vínarbúar höfðu mikinn áhuga á þessum vögnum og far- þegum þeirra, en hún hugsaði ekki út í það nú. f vagninum hélt hann í hönd hennar og lagði hina hönd sína ofan á hana, og hún fann til titrings niður í tær. Hann leit á hana út undan sér og brosti. — Jæja? Eruð þér ekki búin að ná yður eftir hina rós- rauðu haremsnótt? Dreymdi yð- ur illa? — Guði sé lof að mig dreymir aldrei illa, en ef það skeður, gleymi ég þeim strax. — Þér eruð öfundsverð. Svo hló hann drengjalega. — Ég hugsa að hinn góði Fabbri barón myndi vilja gefa mikið til að gleyma því líka. En hann verður minntur á þetta svo lengi sem hann lifir. — Hvað eigið þér við með því? — Baróninn þurfti að fara til læknis, ég aflagaði svolítið nefið á honum. Líklega verður foringi leynilögreglunnar okkar ekki eins laglegur á eftir, ef hann hefir þá nokkru sinni verið lag- legur. — Ó, hrópaði Milly. — Getur það ekki komið sér illa fyrir yð- ur? — Ég er ekki hræddur við hann. — Hann er áhrifamikill maður. — Úff, hann er rotta sem rek- ur starfsemi sína í myrkri, sagði Jóhann Orth fyrirlitlega. — Þér skuluð ekki hafa áhyggjur af honum. Svo þrýsti hann henni létt að sér. — Við skulum heldur tala um Milly Stubel! Það er þús- und sinnum skemmtilegra en Fabbri.... Hann vildi vita allt og hafði áhuga á öllu sem hún sagði. Hún varð að segja honum allt um daglegt líf sitt, leikhúsið, móðurina og systurina Lori... Það var greinilegt að hann hafði áhuga á því sem hún sagði. Hún var ánægð og fann ekkert fyrir feimni. Þegar Jóhann Orth og Milly fóru út úr vagninum, stanzaði eineykisvagn rétt hjá honum. Hann var glaðlegur á svip, en hvorki Milly eða Jóhann Orth tóku eftir honum. Frá „Skógarsnípunni" hljómaði tónlist og glaðlegur söngur. Það var fullt af fólki á veitingastaðn- um, sem var undir beru lofti. Hinn frægi kvartett bræðranna Schrammel frá Vín spilaði þar. Það hafði verið tekið frá borð fyrir Jóhann Orth í afviknum krók, og sjálfur eigandinn þjón- aði til borðs. — Eruð þér fastagestur hér, herra Orth? spurði Milly, frá sér numin. Hann lyfti vínglasinu. — Ég hefi verið hér nokkrum sinnum með vinum mínum, — „herra Orth“ er alltof hátíðlegt, kallið mig heldur Gianni. — Gianni? — Já, líkar yður ekki nafnið? — Ó, jú. — Milly og Gianni passar vel saman, er það ekki? Við skulum skála fyrir því, Milly og Gianni. Hún horfði í stóru, gráu aug- un yfir glasbrúnina og andartak fannst henni heimurinn hverfa sér og að hún væri að drukkna. Að lokum gat hún rifið sig undan þessum áhrifum og dreypt á víninu, en hún var með ákaf- an hjartslátt. — Eruð þér ítali? spurði hún. — Að hálfu ítali, að hálfu Austurríkismaðurí fæddur í Flórens. — Og — hverskonar tónlist semjið þér? — Oh, svona sitt af hverju, — píanóverk, söngva... Hann flýtti sér að skipta um umtals- 18. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.