Vikan


Vikan - 30.04.1970, Blaðsíða 44

Vikan - 30.04.1970, Blaðsíða 44
PLASTBRÉFABINDI sem seldust upp um daginn, eru nú aftur í framleiðslu Stærðir: 38,5x29 36X37,5 32X27,5 23x27,5 23x22 17x27,5 Þieir, sem kaupa eiinu sinni, kaupa aftur. — Og alltaf bætast nýir kaupendur í hópinn. .. Góðfúslega pantið tímanlega MÚLAIUNDBR Öryrkjavinnustofur S.Í.B.S. — Ármúla 16 — Símar: 38400 — 38401 — 38450 „Farið nú heldur heim og hugsið málið í tvo daga.“ Þegar Jack var farinn, sagði Hill konu sinni, að hann hefði krafizt 7000 doll- ara af Chauvet, af því að Chauvet hefði ætlað að nota vatnsréttindin, en af því að Jack ætlaði sér að yrkja jörð- ina, gæti hann ekki með sanngimi krafizt meira en 5000 dollara af honum. Dag- inn eftir kom Jack aftur. Ráðagerðirnar viðvíkjandi búgarðinum höfðu haldið vöku fyrir honum um nótt- ina. „Ég vildi gjarnan tala við yður um verðið“ — byrjaði Hill. Jack spratt upp og hróp- aði reiður: „Það getið þér ekki verið þekktur fyrir! Ég læt ekki hjóða mér slíkt! Þér getið ekki hækkað verðið! Það gera sér allir að skyldu að okra á mér. Sjö þúsund er það, sem þér sjálfur sett- uð upp og ég er fús til að borga það.“ Hill beið þangað til Jack var búinn að rausa út og sagði svo rólega: „Gott og vel, herra London, þér skul- uð þá fá hann fyrir það verð, sem þér viljið.“ Mörgum árum seinna, þeg- ar Hill og Jack voru orðnir góðir vinir, sagði Hill honum hvernig hann hafði snuðað sjálfan sig um 2000 dollara. Jack hló hjartanlega og sagði, að það ætti að kenna sér að hafa stjórn á sjálfum sér, en reyndin varð önnur. Jack skrifaði Brett og bað hann um 7000 dollara til að kaupa húgarðinn, og þó að Brett væri mjög óánægður með, að Jack færi að gerast jarðeigandi, sendi hann þó peningana sem fyrirfram- greiðslu á ágóðanum af „Ulf Larsen“. Svo réði Jack til sín vinnumann, keypti búfé og verkfæri og komst að raun um, þegar hann hafði keypt, það sem hann þurfti, að liann átti ekki einn dollar eftir, og að hann gat ekki átt von á að fá peninga frá „Macmill- an“ um langt skeið. Þó að Jack fengi meira en eina milljón dollara fyrir rit- störf sín, tókst honum aldr- ei alla sína ævi að ná þvi tak- marki að eiga raunverulega peninga, þegar þeir bárust honum í hendur. Hann var alltaf húinn að eyða þeim fyrir fram og varð svo að brjóta heilann um, hvar hann ætti að fá peninga til daglegra þarfa. Haustið 1905 var Jack London i fyrirlestrarferð, sem öll Ameríka fylgdist með af miklum áhuga. Laug- ardaginn átjánda nóvember var hann staddur í Chicago, þegar hann fékk skeyti um, að skilnaður hans við Bessie væri kominn í kring. Hann sendi skeyti til ungfrú Kitt- redge, sem var stödd í Iowa, og sagði henni að koma strax, svo að þau gætu gift sig. Hún kom til Chicago á sunnudag klukkan fimm, en Jack hafði ekkert giftingar- vottorð. Bæjarskrifstofunni var auðvitað lokað, og Jack leigði sér því vagn og ólc af stað til að leita að einhverj- um kunningja, sem gæti hjálpað honum. Loksins tókst honum að ná í mann, sem þekkti einn af bæjar- stjórnarfulllrúunum. Bæjar- fulltrúinn sagði, að hann skyldi glaður gera allt, sem hann gæti, til að hjálpa Jack London, en hvers vegna lægi svona mikið á? Því gæti liann ekki beðið til morguns? Jack neitaði að bíða, og hon- um tókst loks að fá bæjar- stjómarfulltrúann til að setjast upp í vagninn og aka með sér lil lögmanns, sem þeir svo drógu fram úr rúm- inu, og óku með til ráðhúss- ins, og þar voru þau Cliar- mian og Jack gefin saman í lieilagt hjónaband. Fram að þessu höfðu menn haldið, að Bessie og Jack hefðu skilið, af því að þau liefðu orðið ósátt og hefðu því ekki getað búið saman lengur. En nú varð mönnum ljóst, að hann hafði lagt heimili sitt í rústir vegna annarrar konu. Blöðin, sem öll liöfðu verið honum vin- gjarnleg á laugardaginn, komu út á mánudaginn með stórum fyrirsögnum um þetta siðasta hneyksli Jacks. En ekki nóg með það. — Á þriðjudagsmorgun vissi öll þjóðin, að hjónaband Jacks London var ólöglegt, af því að nýju hjónabandslögin í Ulinios voru þannig, að ekk- ert hjónaband var löglegt, nema áð liðið væri minnst ár frá því að skilnaður við fyrri eiginmann eða konu geklc í gildi. Þegar hlaða- mennirnir komu til að tala við Jack, sagði hann: „Ef það er nauðsynlegt, skal ég láta gifta mig í hverju ein- asta riki í Bandaríkjunum, eins fljótt og ég get.“ Hefði hann beðið rólegur í tvo mánuði liefði hann komizt lijá öllum vandræð- um. I stað þess var nú préd- ikað gegn honum i kirkjun- um og bækur hans bannað- ar á opinberum bókasöfnum í sumum hæjum. Mörg kven- félög neyddust til að aflýsa fyrirlestrum Iians, og Char- mian var ásökuð fyrir að 44 VIKAN 18-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.