Vikan - 26.08.1971, Side 3
34. tölublaS - 26. ágúst 1971 - 33. árgangur
ÚttaSist
fegurS
systurinnar
í bernsku kvaldist Rose
Fitzgerald Kennedy vegna
þess, að Agnes systir henn-
ar var miklu fallegri en
hún. Hún einsetti sér því
að ávinna sér sjálf ýmsa
kosti, svo að hún gæti orðið
fremri systur sinni. Sjá
grein um endurminningar
Rose Kennedy á blað-
síðu 16.
Byggðu
kirkju ofan
í kletti
Finnar hafa byggt í höfuð-
borg sinni kirkju, sem er
einstæð í sögu kirkjubygg-
inga. Hún er byggð ofan í
klettaberg og hvolfþak sett
yfir. l»að má því kalla hana
fjallkirkju í þess orðs
fyllstu merkinu. Sjá nánar
um þessa óvenjulegu
kirkju á blaðsíðu 24.
Hvernig
varð Níarkos
ríkur?
Gríski skipakóngurinn
Niarkos á tankskipaflota,
sem er stærri en floti Breta.
í grein á blaðsíðum 12—15
segir frá þvf, hvernig
Niarkos eignaðist milljarða
sína og einnig er drepið á
dularfullt fráfall eiginkonu
hans, sem kunnugt er úr
fréttum.
KÆRI LESANDI!
Þeir, sem vinna í miðbænum
og eru þar daglegir gestir, taka
ekld eins eftir gmsum breyting-
um, sem verða smátt og smátt
á honum og hinir, sem koma
þar sjaldan. Bæjarbragurinn er
nú orðinn allur annar á sumrin
en hann var fyrir fáum árum.
Lækjartorg er orðið að túrista-
miðstöð, sérstaklega eftir að upp-
lýsingaþjónustan hóf starfsemi
sína í hinu nýja skýli strætisvagn-
anna. Reyndar má segja, að er-
lendir ferðamenn setji nú lang-
mestan svip á götulífið yfir sum-
armánuðina, enda hafa þeir ver-
ið fleiri í ár en nokkru sinni fyrr.
Þeir hafa lagt undir sig miðborg-
ina.
Annað nýtt fyrirbæri í bæjar-
lífinu er grasbletturinn fyrir
framan Torfuna, sem mikið hef-
ur verið rætt og ritað um. Þar
kemur ungt fólk saman, bæði
innlent og erlent, til þess eins að
njóta lífsins, sleikja sótskinið og
vera til. Stundum tekur það lag-
ið og syngur við raust, á meðan
umferðin niðar hjá og blikkbelj-
urnar baula hver á aðra.
Það hefur sannarlega verið
skemmtilegt að staldra við i mið-
bænum í blíðviðrinu í sumar og
virða fyrir sér breytt líferni nýs
tíma. Meðál efnis þessa blaðs er
einmitt myndafrásögn úr slíkri
forvitnisferð um hjarta höfuð-
borgarinnar.
EFNISYFIRLIT
GREINAR Ms.
Hættulegasta borg heimsins 6
Fjáreigandi og útgerðarmaður, grein um gríska skipakónginn Niarkos 12
Rose, sagt frá endurminningum Rose Kenne- dy, móður Kennedy-bræðranna 16
Finnska fjallkirkjan 24
SÖGUR
Töfragripurinn, smásaga 8
Lifðu lifinu, framhaldssaga 10
Barn Rosemary, ný framhaldssaga 20
ÝMISLEGT
Svínakjötsréttir í Eldhúsi Vikunnar, umsjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 26
Sól í hjarta borgarinnar, myndaopna 28
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Heyra má 18
Simplicity 23
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 31
Stjörnuspá 32
1 næstu viku 50
FORSÍÐAN
Hún hefur staldraS við í önn dagsins; þaS er
eins og hún rifji andartak upp skemmtilegt og
sólríkt sumar — og kveSji það með söknuði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður
Þorvaldsdóttir og Sigriður Ólafsdóttir. — Ritstjóm,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
biöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
34. TBL. VIKAN 3