Vikan - 26.08.1971, Blaðsíða 45
ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING 71
Sýningarfreyjur leiðbeina sýningargestum.
STÆRSTA SÝNING
Á ISLANDI
900 AÐILAR SYNA
Á 6000 FERMETRUM
• Stór sjávarútvegssýning
® Brezk samsýning
• Dönsk samsýning
• Tízkusýningar íveitingasal
Poptjald
• DregiS daglega í Gestahappdrætti sýningar-
innar um 2 sæti í flugferð umhverfis landiff
með Flugfélagi íslands.
• Hvers konar heimilis-
búnaSur
• Sumarhús og sportvörur
26. ÁGÚST — 12. SEPTEMBER
SÝNINGAHÖLLINNI LAUGARDAL
ekki sambúð þeirra, að Patrick
Joseph sætti jafnan færis að
lýsa vanþóknun sinni á sið-
lausu líferni Honey Fitz. John
Fitzgerald var sannarlega glað-
vær, eins og margir írar, kunni
að meta gott whisky og söng
og dansaði uppi á borðum veit-
ingahúsanna, þegar hann fagn-
aði kosningasigrum sínum.
Þótt Kennedy- og Fitzgerald-
ættirnar væru báðar komnar af
blásnauðum, írskum innflytj-
endum, eins og fyrr er sagt,
og staða þeirra og efnahagur
nokkurn veginn jafn, voru
framavonir Johns Fitzgeralds
miklar og metnaðurinn taum-
laus. Hann var ekki hrifinn af
því að tengjast Kennedy-fjöl-
skyldunni og leit hálfpartinn
niður á hana. Hann hafði ætlað
Rose dóttur sinni mannsefni af
miklu tignari ættum.
En hinn ungi Joseph Kenne-
dy hafði þegar öðlazt nokkurn
frama, því varð ekki neitað.
Hann hafði lokið prófi frá Har-
vard-háskólanum. Og þegar
hann aðeins 25 ára gamall varð
bankastjóri, meira að segja
yngsti bankastjóri landsins, óx
hann mikið í áliti hjá Honey
Fitz. Smátt og smátt breyttist
viðhorf borgarstjórans og loks
samþykkti hann ráðahaginn.
Þau giftu sig 7. október árið
1914 og höfðu þá þekkzt og ver-
ið saman í sjö ár. Þar með
höfðu tvær auðugustu og vold-
ugustu írsku fjölskyldurnar í
Boston sameinazt.
☆
FINNSKA
FJALLKIRKJAN
Frarnhald af bls. 24.
menn og arkítektar alls staðar
að úr heiminum — til að skoða
þetta furðuverk nútíma kirkju-
byggingarlistar.
ALTARISTAFLAN ER
KLETTAVEGGUR
Kirkjan er engin smásmíði.
Hún er 11000 rúmmetrar að
stærð, 40 metrar þar sem hún
er breiðust og lofthæðin er 10
—13 metrar. Nóg birta er í
kirkjunni frá loftglugga, sem
er allt í kring neðst í hvolf-
þakinu. Þakið er 25 metrar í
þvermál, steypt úr járnbentri
steinsteypu og lagt með kopar.
Nýtísku hitakerfi og loftræst-
ing sér til þess, að þarna er
góður hiti og gott loft eins og
í hverri annarri byggingu. Og
það ríkir alger kyrrð í stein-
kirkjunni, enda þótt hún standi
í miðri stórborg með umferð-
arþys og skarkala.
Það kvað vera með afbrigð-
um einkennilegt og áhrifamik-
ið að koma inn í þessa nýstár-
legu kirkju. Veggir hennar eru
ekki annað en hráir, sprengdir
klettar og íburður eða skraut
fyrirfinnst hvergi. Engin altar-
istafla er þarna til dæmis, held-
ur aðeins klettaveggur látinn
nægja. Meira að segja skírnar-
fonturinn er gerður úr kletta-
drang.
Til þess að koma í veg fyrir,
að óviðkomandi gangi á loft-
glugganum, hefur verið hlað-
inn múr allt í kringum kirkj-
una að utan úr steinblökkum,
sem fengust, þegar sprengt var
fyrir kirkjunni. Að utan er
kirkjan afar einföld og fellur
eins vel að umhverfinu og hægt
er að hugsa sér.
Það þarf ekki að kvarta um
lélega kirkjusókn i nýju finnsku
fjallkirkjunni. Þótt hún taki
tæplega þúsund manns, þegar
kór og hljómsveit er meðtalið,
er ævinlega sneisafullt við
hverja guðsþjónustu. Mönnum
leikur eðlilega hugur á að koma
í svo frumlegar vistarverur,
enda andrúmsloftið sérkenni-
legt og hátíðleg stemning kvað
ríkja, þrátt fyrir einfaldleik-
ann og klettaveggina.
☆
Góðir bílar tnjggja skemmtilegt ferðalag. Bilaleigan TÝR^
SKÚLATÚNI 4 SÍMI15808 (10937)
34. TBL. VIKAN 45