Vikan - 26.08.1971, Blaðsíða 24
FINNSKA
FJALL-
KIRKJAN
Ný kirkja í Helsingfors,
sem byggð er ofan í
klettaberg með hvolfþaki
yfir, þykir
einsdæmi í sögu
kirkjubygginga.
MEÐ YMSU MOTI byggja
menn kirkjur skaparanum til
dýrðar. Á meðan Hallgríms-
kirkja reis af grunni í Reykja-
vík og turn hennar teygði sig
stöðugt hærra til himins, fóru
Finnar öfugt að í sinni höfuð-
borg: Þeir byggðu kirkju nið-
ur í klett. Þessi nýja stein-
kirkja í Helsingfors er vafa-
laust einsdæmi í sögu kirkju-
bygginga. Hún stendur efst á
allstórri klettahæð í miðri borg-
inni, er felld ofan í bergið og
hvolfþak sett yfir. Verkfræð-
ingar og arkítektar hafa unn-
ið mikið afrek við smíði þess-
arar óvenjulegu kirkju.
EFNT TIL SAMKEPPNI
ÞRTSVAR SINNUM
í meira en hálfa öld hefur
verið rætt um, hvað gera skyldi
við Tempelplatsen, sem er op-
ið svæði í Helsingfors, þar sem
áðurnefnd klettahæð stendur.
Umræðurnar hófust árið 1906,
og var þá ákveðið, að á hæð-
inni skyldi byggja stóra og
mikla kirkju. Síðan leið aldar-
fjórðungur, unz skriður komst
aftur á málið. Árið 1932 var
efnt til opinberrar samkeppni
um teikningu að kirkjunni.
Hún átti að vera stór í sniðum,
þióna sem kirkja þingsins með-
al annars og taka minnst 1500
manns í sæti. 57 tillögur bár-
ust, en dómnefndin var ekki
ánægð með neina þeirra.
Árið 1936 var aftur efnt til
samkeppni. Aðeins 23 tillögur
bárust, en ein þeirra var valin.
Hún var eftir prófessor J.S.
Sirén og á meðfylgjandi mynd
má sjá, að hún líkist nokkuð
kirkjum Guðjóns Samúelsson-
ar, meðal annars hinni frægu
Hallgrímskirkju. Byrjað var að
sprengja í bergið fyrir undir-
stöðum hinnar miklu kirkju, en
síðan skall stríðið á og frekari
framkvæmdir stöðvuðust.
Það var ekki fyrr en árið
1959, sem aftur var hafizt
handa. Þá hafði mikið vatn
runnið til sjávar; húsagerðar-
listin tekið stakkaskiptum og
smekkur manna breytzt. Teikn-
ing Sirens prófessors þótti ekki
lengur standast kröfur tímans,
svo að efnt var í þriðja sinn
til samkeppni árið 1960. Tekið
var fram, að æskilegt væri að
hrófla sem minnst við kletta-
hæðinni; kirkjan átti að falla
eins vel að umhverfinu og unnt
væri. Það voru arkítektarnir
Timo og Tuomo Soumalainen,
sem sigruðu í samkeppninni og
hin frumlega hugmynd þeirra
um fjallkirkju.
Framkvæmdir hófust árið
1968, og loks var kirkjan full-
búin og vígð hinn 28. septem-
ber árið 1969. Kostnaðurinn
varð um 3.5 milljónir marka.
Síðan hefur hún verið mikið
notuð; fyrir utan guðsþjónust-
ur og aðra kirkjulega starf-
semi, streyma þangað ferða-
Framhald á bls. 46.
Myndir lýsa betur en orð hinni frumlegu fjallkirkju í Helsingfors. Efri
myndin er tekin inni í kirkjunni, og sér upp að altarinu. Hráir klettavegg-
irnir eru allt um kring og þar fyrir ofan loftgluggi og loks koparþak.
Á neðri myndinni sést, hvernig kirkjan blasir við vegfarendum á Tempel-
platsen. Hún fellur eins vel að umhverfinu og hægt er að hugsa sér.
Gengið er inn i hana um neðanjarðargöng, sem sjást hér yzt til hægri.
Þessi þverskurðarmynd sýnir vel, hvernig arkitektunum Timo og Tuomo
Suomalainen hefur tekizt að gera sjálfan klettinn að kirkju.
Jafnan er sneisafullt við guðsþjónustur i nýju kirkjunni.
24 VIKAN 34.TBL.