Vikan


Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 50

Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 50
LIFÐU LÍFINU Framháld af bls. 11. að konan hans yrði eflaust á flugvellinum, til að taka á móti honum, hún myndi standa fyrir framan gestapalhnn, svo hann kæmi strax auga á hana. Rödd hans var ákveðin, hann talaði um þetta sem staðreynd, það var hvorki broddur stríðni né ánægju merkjanlegur, en vegna þess að ég hafði fundið svo sárt til kvala afbrýðiseminnar, yfir því örugga sæti, sem hún átti í lífi hans (en hvað um það ef hún „heyrir honum einfald- lega til“?) Ég hafði ofsalega löngun til að komast að því rétta um samband þeirra. Ó, ef ég væri nú í hennar sporum og hún í mínum andstyggilegu, slitnu skóm! Ég horfði á litla hópinn, sem stóð þarna í vetrarkuldanum og veifaði til farþeganna, sem komu út úr vélinni. Án gler- augna gat ég ekki séð hver veifaði hverjum, en ég sá merk- ið sem Robert gaf. Það var ó- sköp kindarlegt, fannst mér, en ég vissi auðvitað að hún var í þessum hóp. Ég hafði aldrei á ævi minni getað trúað að slík afbrýði- semi og tortryggni væri til, eins og ég var nú altekin af. Ég vildi að ég hefði áður þekkt eitthvað til þessara tilfinninga. Það hefði verið þægilegur und- irbúningur undir það ofboðs- lega álag, sem ég varð að þola, þegar ég tróð mér með farang- ur minn fram að afgreiðslu- borðinu við útgöngudyrnar. Ég varð að sjá hvernig hún leit út. Já, hún var eiginlega alveg eins og ég hafði gert mér í hug- arlund. Hún var þarna með ann- arri konu, en það var augljóst hver hún var, það sá ég á glampanum í augum hennar og ljómandi yfirbragðinu, þegar Michael og Robert föðmuðu hana til skiptis. Hún leit út eins og engill, reyndar mjög venjulegur engill. En hver kaus ekki heldur engilsásjónu í stað æsandi fegurðar? Mér fannst ég vera eins og Lucifer, falla og falla niður í loga vítis. Ó, Guð minn! Hvaða djöfull hefur tekið sér bólfestu í mér? Ég starði og starði, en ekkert af fjórmenningunum virti mig viðlits. Robert var greinilega búinn að gleyma mér, eða hafði ýtt mér niður í brúðukassann, sem ég hafði komið í og verið lögð undir jólatréð eirrs og önn- ur leikföng. Öll mín glæsi- mennska, yfirleitt allt sem ég áður var, var bókstaflega horf- LOVE STORY í VIKUNNI • Um áramótin 1969—70 kom út skáldsaga í Bandaríkj- unum, sem hét einfaldlega Love Story og var eftir áður óþekktan höfund, Erich Segal. Framhaldið þekkja allir. — Love Story lagði undir sig heiminn í einni svipan og hefur slegið öll met í sölu. í næsta blaði segjum við frá þessari heimsfrægu sögu og höfundi hennar í tilefni af því, að Love Story kemur út á íslenzku í haust. Við birtum nokkra kafla úr sögunni og einnig segjum við frá kvikmyndinni, en hún verður einmitt sýnd í Háskólabíói innan skamms. MYRTI HÚN BÖRNIN SÍN? • Hún skildi við manninn sinn og lifði Ijúfu lifi, þar til hörmulegur atburður gerðist. Tvö ung börn hennar fund- ust bæði látin og höfðu verið kyrkt. Nafnlaust bréf varð til þess, að móðirin var ákærð fyrir að hafa myrt að minnsta kosti annað af börnum sinum. Kviðdómurinn taldi hana seka og hún var dæmd í 20 ára fangelsi. Það segir nánar frá þessu átakanlega máli í grein í næsta blaði. HANN LEITAÐI AÐ ASTINNI ALLT LlFIÐ • Þegar Clark Gable fæddist í þennan heim, vildi svo illa til, að læknirinn skráði í bækur sínar, að hann væri stúlkubarn. Siðar átti Gable eftir að verða tákn karlmennsk- unnar í heiminum, hið ósigrandi kvennagull, sem konur um allan heim, bæði ungar og gamlar, elskuðu og dáðu. Nú eru liðin tiu ár frá þvi að Clark Gable lézt, og í tilefni af því birtum við ævisögu hans í næstu tveimur blöðum. ið, — útilokað frá þessari stundu. Það var undarleg til- finning að finnast maður sjálf- ur ekki vera annað en gleymt leikfang. En ég er lifandi, sagði ég við sjálfa mig. Ég fer heim í íbúð- ina, hringi í hóp af fólki og segi því hve dásamleg Afríku- ferðin hafi verið; að villidýr- in séu mun betri en mannfólk- ið, allar tegundirnar, villtar og tamdar; blanda nóg af drykkj- um, fæ mér verulega gómsætan mat. Svo ætla ég að segja þeim hve sá gamli, Colomb, væri sniðugur karl, alveg stórkost- legur, og hve hann væri ótrú- lega sprækur, maður á hans aldri. Og þá myndi hann sjá (eða myndi það skipta hann nokkru máli?) að aðdáenda- hópur hans stækkaði, og það meðal unga fólksins! Og ég gerði það sem ég hafði ætlað mér, en um leið og ég kom inn úr dyrunum, rétti stúlkan mér haug af miðum, með allskonar kveðjum og skilaboðum, en ég brosti, hristi höfuðið og greip símann. Robert? Robert. Á morgun var afmælisdag- urinn hans, það var hann bú- inn að segja mér, og hann ætl- aði eitthvað í burtu. Með kon- unni sinni. Til Amsterdam. Hann hafði lofað henni því. Nei, nei, aðeins fáeina daga, í mesta lagi vikutíma. „List og ást end- ast lengi“, sagði hann. Ég hló ekki, það sat eitthvað fast í kiálkanum á mér. Ég sagði: „Robert, ástin mín, ég get ekki afborið ef ég fæ ekki að taka þátt í afmælisdeginum þínum á einhvern hátt“. Ég fann frekar en heyrði tregðu hans. (Hver hugsar líka um afmælisdaga? hvíslaði skyn- semin að mér.) En ég var á- kveðin, alveg ákveðin Allt í lagi, hann ætlaði að reyna að koma því fyrir á einhvern hátt. Svo að í stað þess að safna að mér fólki fór ég í gott bað. En þótt ég bleytti vel í mér, megn- aði það ekki að eyða þessari sáru kvöl. Já, það var hreint briálæði að verða geggjuð út af líkama og sál Roberts Col- omb. og ég sagði aftur og aftur upphátt: „Bjáni, bjáni“! og minnti sjálfa mig á að ennþá væri ekki of seint að kalla í fólk. láta verða glatt á hjalla, en þetta andstyggilega, dular- fulla hold mitt nagaði í burtu þessa mannlegu hugsun, það nísti mig og kvaldi. En á morgun er aftur dagur ! Framháld i nœsta bla&i. 50 VIKAN 34.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.