Vikan


Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 7

Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 7
■■ farið er hann heyrði bílstjór- ann hrópa á sig. Blaðamaður- inn leit um öxl og horfði þá beint í hlaup stórrar banda- rískrar skammbyssu af Walt- her-gerð, sem bílstjórinn beindi að honum. — Ég skýt, öskraði bílstjór- inn. — Fáðu mér myndirnar! Ég skýt ... Svartamarkaðsviðskiptin fara alls staðar fram fyrir opnum tjöldum á Filippseyjum, til dæmis á hafn- argörðunum í Manila. Myndirnar af dækjunni! Þeim hafði sá sænski gleymt að skila. Hann gekk aftur að bílnum skjálfandi á beinunum, afhenti myndirnar og baðst afsökunar. Síðan sneri hann baki við bíl- stjóranum og fór. Hann átti allt eins von á skoti í bakið; að vísu var fjölmennt á gang- stéttinni, en vegfarendur myndu áreiðanlega láta sem þeir sæu ekkert, hvað sem í skærist. En leigubílstjórinn skaut ekki, enda hafði hann fengið mynd- ir sínar. Manila og Filippseyjar í heild eru í dag stórum lífs- hættulegri en Villta vestrið þeg- ar það var upp á sitt versta. I því landi ganga flestir með skotvopn við beltið eða í vas- anum og hika ekki við að nota þau. í fyrra voru seytján þús- und og fimm hundruð manns myrtir á Filippseyjum, hvað þýðir að morðtíðnin þar er sjö til átta sinnum hærri en í sjálf- um Bandaríkjunum! Filippseyjarnar eru um sjö þúsund talsins og gætu vegna náttúrufegurðar og veðurfars kallast. sannkallaðar paradísar- Stúlkurnar á hafnar- börunum í Manila eru fordrukknar og slitlegar, en þykja tryggar sjómönnum, sem bjóða þeim veitingar og eru þeim góðir. eyjar. Þær voru líka um hríð vinsælar af ferðamönnum, en nú þora fæstir þeirra þangað vegna glæpaöldunnar, sem rís hærra og hærra. Á veitinga- húsum og hótelum má allsstað- ar líta skilti með áletrunum eins og þessum: „Gerið svo vel Það þarf ekki mikið út af að bera til að allt logi í slagsmálum á börunum í Manila. Filippseying- arnir beita þá hverju handhægu vopni, til dæmis brotnum flösk- um. að skilja skammbyssur og önn- ur banvæn vopn eftir í vörzlu hótelstj órnarinnar“. íbúar Filippseyja eru þrjátíu og fimm milljónir talsins. Efna- hagurinn er svo slæmur að við gjaldþrot jaðrar, og ekki hefur afbrotaaldan bætt þar um, svo sem nærri má geta. Þar er fyrst og fremst um að ræða smygl, rán og morð. Forseti lands þessa er auðugri en Central Bank, opinber spilling er svo gríðar- leg að bókstaflega enginn opin- ber starfsmaður, frá þeim hæstu til hinna lægstu, er saklaus af henni og dómarar, lögreglu- menn og ríkisstarfsmenn heyja oftlega einvígi upp á líf og dauða á götum úti. Á Filippseyjum getur allt skeð. í einni viku skeði meðal ann- ars þetta í Manila: Norskt flutningaskip, sem lá í Manilaflóa, varð fyrir árás sjóræningja um miðja nótt. Þeir klifruðu upp akkerisfest- ina með rýtinga milli tannanna og búnir þar að auki með byssu og sverði. Þeir báru hníf að Framhald á bls. 34. 34.TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.