Vikan - 26.08.1971, Page 26
eldhús
vikunnar
Dröfn H.
Farestveit
Svínakjöt er bæði
hátíða og hversdags-
matur,
eftir því hvernig
það er matreitt
hverju sinni. Hérfara
nokkrar uppskriftir
sem ef til vill væri
gaman að reyna.
SVÍNALUNDIR MEÐ
HVÍTLAUKSBRAGÐI
8 kartöflur
3 msk. smjör eða smjörlíki
1 V2 tsk. salt
V2 kg svínalundir
V2 tsk. pipar
Sósa:
1 saxaður gulur laukur
2 hvítlauksbátar saxaðir
2 msk. smjör eða smjörlíki
2 msk. tómatkraftur
salt, pipar, basilkum
1 dl rósavín
Skreyting:
ólívusneiðar
Flysjið, sneiðið og saltið kart-
öflurnar.
Steikið þaer við 225° í ofni
í eldföstu fati. Látið þær steikj-
ast þar til þær hafa fengið góð-
an gulbrúnan lit — eftir ca. 20
mín. Sósan: Steikjið lauk og
hvítlauk í smjörinu, bætið tó-
matkraftinum í, kryddið og
bragðið til með víni. Sjóðið sós-
una í ca. 15 mínútur, og hafið
lok á pottinum. Skerið kjötið í
ca. 3 cm þykkar sneiðar og berj-
ið þær lauslega. Brúnið þær fal-
lega brúnar á báðum hliðum og
kryddið. Setjið þær síðan í röð
á kartöflurnar. Hellið sósunni
yfir kjötið og skreytið með nið-
ursneiddum ólívum. Berið fram
með góðu salati og ef vín er
notað er gott að nota rósavín.
26 VIKAN 34. TBL.