Vikan - 23.09.1971, Qupperneq 3
38. tölublaS - 23. september 1971 - 33. árgangur
vkan
Palladómur
um forsætis-
ráSherra
Framsóknarflokkurinn galt
verulegt afhroS I síðustu
alþingiskosningum og
mcst í kjördæmi
sjálfs formanns flokksins,
prófessors Ólafs Jóhannes-
sonar. Engu að síður hög-
uðu forlögin þvi svo tll,
að Ólafur valdist til þess að
veita forustu nýrri stjórn í
samfélagi við þá flokka,
sem urðu sigurvegarar
kosninganna.
Teikningar
og þroski
barna
Á fyrstu árum ævinnar,
meðan barnið hefur enn
ekki lært að tala eða tjá
hugsanir sínar og tilfinn-
ingar með orðum, neytir
það ýmissa ráða til að tjá
sig á annan hátt, til dæmis
með því að rissa og krota
á blöð eða annað, sem fyrir
verður. Um þetta atriði í
þróun þroska barnsins er
fjallað í grein í þessari
Viku.
Fjöldavönun
í Indlandi
Fólksf jölgunarprcngingin
svokallaða cr eitt af
mörgu, scm kvað vcra á
góðri leið með að gera út
af við hciminn okkar, og
hvergi er ofsi þeirrar
sprcngingar mciri cn í
Indlandi. Ýmissa bragða er
neytt tii að draga úr
fjölguninni, meðal annars
með því að fá menn til að
láta vana sig af frjálsum
vilja.
KÆRI LESANDI!
Þeir sem fylgzt hafa með palla-
dómum Lúpusar um alþingis-
menn hafa áreiðanlega beðið með
eftirvæntingu eftir dóminum
um Ólaf Jóhannesson, senj birt-
ist í þessari Viku. Ólafur sjálfur
og stjórn hans í heild eru almenn-
ingi að vonum talsvert áhugaefni,
ekki sízt fyrir þá sök að þessi
stjórn tekur við af annarri, sem
hafði haldizt óvenjulengi við
völd.
Stjórn Ólafs hefur í daglegu
tali hlotið titilinn „nýja vinstri
stjórnin", og má það nokkuð und-
arlegt heita, þar eð af stjórnar-
flokkuhum nýju er Alþýðubanda-
lagið sá eini, sem án verulegs
vafa getur talizt til vinstri i
stjórnmálum. Framsóknarflokk-
urinn er samkvæmt stefnuskrá
og margendurteknum yfirlýsing-
um framámanna sinna milli-
flokkur og Frjálslyndir og vinstri-
menti eru enn sem komið er of
sundurleitir í skoðunum til að
hægt sé að fullyrða með nokk-
urri vissu hvort telja beri þá til
hægri, vinstri eða þar í miðju.
Að forminu til mundi þá gamla
stjórnin teljast öllu meiri vinstri
stjórn en hin nýja, þar eð hart-
nær helmingur ráðherra hennar
var úr Alþýðuflokknum, sem að
nafni til að minnsta kosti er
vinstrisinnaður. En — eins og
skrifað stendur -— af ávöxtunum
skuluð þér þekkja þá.
EFNISYFIRLIT
GREINAR Mt.
Indversk vönunarhátíð, frásögn og myndir af tilraunum Indverja til að takmarka fólks- fjölgun 6
Við og börnin okkar, grein um teikningar og riss barna 14
Palladómur um Ólaf Jóhannesson, forsætis- ráðherra 16
Grein um Gunder Hagg, einn mesta milli- vegalengdahlaupara allra tíma, eftir Örn
Eiðsson 24
SÖGUR
Lifðu lífinu, 10. hluti 10
A gægjum, smásaga 12
Barn Rosemary, 6. hluti 20
ÝMISLEGT
Fegrunarmaskar, myndir ásamt leiðbeining-
um 26
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Heyra má 18
Fiugvélar á íslandi 22
Simplicity 23
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 31
Stjörnuspá 32
í næstu Viku 50
FORSÍÐAN
Palladómurinn um Ólaf Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, verður trúlega sá efnisliður þessarar
Viku sem mesta athygli vekur, og í samræmi við
það er á forsiðunni teiknimynd af Ólafi, gerð af
Halldóri Péturssyni.
VIKAN Útgefandl: Hilmlr hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorlelfsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Simar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð 1 lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð órsfj órðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargj aldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
38.TBL. VIKAN 3