Vikan - 23.09.1971, Síða 16
Styrkur hans
felst í jafnvægi og
einstökum
Alþingiskosningarnar í sumar
minntu helzt á snögg, veðraskipti.
Lygnt vatn, sem lengi hafði verið
eins og spegilsléttur flötur ásýnd-
um, tók að bifast og ólga, unz úfn-
ar bárur þeyttu keflum milli sín í
gáska. Eitt þeirra var Ólafur Jó-
hannesson, formaður Framsóknar-
flokksins. Umrót kosninganna
hreyfðu við honum með óvæntum
hætti. Ólafur kastaðist meira að
segja hátt í loft upp og lenti í tign-
arsæti æðsta landsföður. Hann var
allt í einu orðinn forsætisráðherra.
Allt er tilviljun háð á leiksviði
islenzkra stjdrnmála. Svo var og
um upphefð Ólafs. Jóhannessonar,
þegar hann hætti að vera daufur
og linur flokksforingi í leiðinlegri
stjórnarandstöðu og gerðist for-
sætisráðherra. Lið hans átti lítt
brautargengi að fagna í kosning-
unum. Framsóknarflokkurinn tap-
aði þvert á móti þingsæti, og mann-
skaðinn varð einmitt í kjördæmi
hins nýja forsætisráðherra. Al-
þýðubandalagið og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna unnu á
fyrri stjórnarflokkum, og kærleiks-
band Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins rofnaði. Þá kom í
heiöarleika
h-lut Framsóknarflokksins að beita
sér fyrir vinstra samstarfi um rík-
isreksturinn og þjóðarbúskapinn,
og Ólafur Jóhannesson hélt inn-
reið sína i hvíta húsið við Lækjar-
torg. Honum gafst þannig ' eftir
skamman tíma það, sem Eysteinn
Jónsson þráði og keppti að í ára-
tug, en hreppti aldrei.
Á slíku er von, þegar lygnt vatn
óróast skyndilega og glettnar öld-
ur bregða á leik.
Ólafur Jóhannesson fæddist að
Stóraholti í|FIjótum í Skagafirði 1.
marz 1913, sonur Jóhannesar Frið-
hjarnarsonar bónda og kennara
þar og konu hans, Kristrúnar Jóns-
dóttur, og ól sveinninn aldur sinn
fram á manndómsár í hinni svip-
tignu og rómuðu fjallabyggð. Gekk
hann menntaveginn og varð stúdent
á Akureyri 1935, en las síðan lög
við Háskóla íslands og lauk prófi
í þeim fræðum 19s39 með hæstu ein-
kunn, sem veitzt hafði Islendingi.
Var Ólafur svo lögfræðingur og
endurskoðandi i þjónustu Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga
1939—1943, en starfaði því næst ár-
langt í viðskiptaráði. Hann gerðist
framkvæmdastjóri félagsmáladeild-
ar og lögfræðilegur ráðunautur
Sambands íslenzkra samvinnufél-
aga 1944 og hafði þann starfa á
hendi til 1947, er honum bauðst
prófessorsembætti við háskólann.
Gegndi Ólafur þvi óslitið og við
ágætan orðstír, unz stjórnarráðið
laukst upp fyrir honum í sumar.
Hann stundaði framhaldsnám í lög-
fræði í Stokkhólmi og Kaupmanna-
höfn 1945—1946 og hefur margt rit-
að um fræðigrein sína. Ennfremur
hefur Ólafur átt sæti í ótal nefnd-
um og ráðum og hvarvetna þótt nýt-
ur starfsþegn.
Ólafur Jóhannesson mun naum-
ast hafa þekkt aðra manntegund en
framsóknarmenn, þegar hann ólst
upp norður í Fljótum. Honum
reyndist og sjálfgert að velja sér
pólitískan átrúnað. Samt lét liann
sig stjórnmál litt \arða námsárin,
en gaf brátt kost á þátttöku í þeim
að loknu prófi. Var Ólafur formað-
ur Félags ungra framsóknarmanna
i Reykjavík og siðar flokksfélags
hinna fullorðnu í höfuðstaðnum
skamman tíma og eftirlæti Her-
manns og Eysteins, sem voru
16 VIKAN 38.TBL.