Vikan - 23.09.1971, Qupperneq 24
Ársgamalt barn velur
rauða litinn.
Þegar barnið fær fyrst
litablýant, gerir það
punkta. Síðan fer það að
krassa í boga. Rautt er
uppáhaldsliturinn.
Myndin hér er eftir
telpu, sem er eins árs og
7 mánaða.
Tveggja ára barn teiknar
gormlaga hringi.
Gormakrassið er næsta
stig. Ef maður skoðar
teikninguna nákvæm-
lega, þá má sjá fyrstu til-
raun til að gera bein
strik. Barnið sem teikn-
aði var tveggja ára og
þriggja mánaða.
Þriggja ára barn myndar
hringi.
Nú koma reglulegir
hringir fram. Louise
þriggja ára gerir „augu"
í hringina og kallar
mömmu eða pabba.
Fjögurra ára barn teiknar
fótamanninn.
Fótamaðurinn er aðeins höfuð og
fætur. Það er eðlilegt að þau
teikni þetta fyrst. Með höfðinu
borðar maður ,talar, sér og heyrir,
og á fótunum gengur maður.
Krassið kem
EFTIR INGER ÁRLEMALM
Hvernig á ég að vita hvort barniö mitt
þroskast á réttan hátt? HvaS er eSlilegt og hvaS
er ekki eðlilegt? Áhyggjufullir
foreldrar leita svars. HorfSu á þegar barnið
þitt krassar og teiknar - ef þú túlkar
þetta krass rétt, þá hefur þú fundið leið
til skilnings ...
VIÐOG
BÖRNIN OKKAR
Palli er fimm ára. Hann er
hraustur og kátur drengur.
Hann getur talið upp að 1000
og skrifað nafnið sitt, bæði
með prentstöfum og skrifstöf-
um. Hann veit hvað dinosár er
og hann á auðvelt með að tjá
sig. Teikningar hans eru bjart-
ar og hann eldar morgungraut-
inn fyrir sig og pabba sinn.
Nalli er líka fimm ára. Hann
getur talið upp að tíu. Hann
getur ekki skrifað nafnið sitt.
Hann er hljóðlátur og feim-
inn við fullorðna. Hann teikn-
ar aldrei og mamma hans verð-
ur að hjálpa honum til að klæða
sig.
Þetta er einföld lýsing af
þroskastigi tveggja fimm ára
drengja, en raunveruleg og
táknræn fyrir óteljandi lítil
börn. Það er Palli sem spjarar
sig í skólanum. Hann fær
ábyggilega gcðar einkunnir og
verður eftirlæti kennara og ef
til vill verður hann líka mál-
svari og foringi skólafélaga
sinna.
Þegar hann er fullorðinn
fær hann vel launaða vinnu,
sem hann hefur áhuga á. Hann
eignast son, sem getur talið
upp að 1000 og eldað morgun-
^xautinn fyrir sig og pabba
sinn.
Nalli verður örugglega að
hafa mikið fyrir því að læra
að lesa og skrifa. Hann fær
líklega andstyggð á skólanum.
Kennarar kalla hann óróasegg
og hafa lítið dálæti á honum.
Hann fær lélegar einkunnir.
Þegar hann verður fullorðinn
fær hann illa launað starf, sem
hann hefur engan áhuga á.
Sonur hans getur ekki skrifað
nafnið sitt, þegar hann er fimm
ára.
Palli og Nalli eru báðir
fæddir með eðlilega greind og
erfðalega séð áttu þeir að hafa
sömu möguleika á að spjara
sig í heiminum. Hvað skeði á
leið þeirra?
Foreldrar Palla töluðu mik-
ið við hann, lásu fyrir hann,
svöruðu spurningum hans,
sýndu honum blíðu og létu
hann vita að þeim þætti vænt
um hann. Þau sögðu honum að
þau ættu duglegan strák og
veittu honum uppörvun á mörg-
um sviðum.
Foreldrar Nalla höfðu aldrei
tíma til að sinna honum. Þau
töluðu hvorki við hann né
hvort annað. Hugsuðu aldrei
um að Nalli þyrfti bækur til
að líta í, pappír til að teikna
á og orð til að tjá sig. Þau
skömmuðu hann, þegar þeim
fannst hann heimskur. Sögðu
honum að þegja, þegar hann
reyndi að tala. Hældu honum
aldrei, þegar hann hafði gert
eitthvað gott.
BARNIÐ FER AÐ HUGSA,
ÞEGAR ÞAÐ ER ÞRIGGJA
MÁNAÐA
Öll vildum við eiga dreng
eins og Palla, en hvernig eig-
um við að fara að því? Hvern-
ig getum við haft áhrif á
þroska barnsins, svo að það
hafi góða möguleika til að afla
sér þekkingar og verða sjálf-
stætt í hugsun, orði og verki?
Þegar komið er heim frá fæð-
ingardeildinni með lítinn, rauð-
an og æpandi böggul í fanginu,
þá er það komið á okkar ábyrgð
og samfélagsins sem við lifum
í, hvernig framtíð barnsins
verður.
Barnið getur ekki greint um-
hverfi sitt, það veit ekki hver
er mamma. En í heila þess
blunda möguleikar til sjálf-
stæðra hugsana.
Gömul samlíking um að heil-
inn sé eins og matbúr, sem
smám saman fyllist reynslu og
vizku, er ekki alveg út í bláinn.
Búrið er fyrst tómt, en erfða-
hæfileikarnir eru þær hillur,
sem hægt er að hlaða vizk-
unni á.
En það er undir mönnunum
komið hvaða vörur eru settar
í búrið og hvernig þeim er kom-
ið fyrir á hillunum.
Brjóstið, pelinn, þurra blei-
an, vaggan, gælurnar, allt sem
svarar hljóðum ungbarnsins,
raðast upp í heilanum, sem
reynsla, — vizka.
Eftir þrjá mánuði fer þessi
litli hjálparvana böggull í
24 VIKAN 38. TBL.