Vikan - 23.09.1971, Page 49
ICJOLAR-Ef^
JUMST med T|
NY SENDING AF ENSKUM HAUST- OG VETRARKJOLUM.
MIKIÐ ÚRVAL AF FALLEGUM KJÓLA-, KÁPU-, BUXNA- OG
PILSEFNUM.
KJÖRGARÐUB
VEFNAÐARVÖRUDEILD
SIMI 18646
MIG
ÐRBYM9I
Systradætur
Kæri þáttur!
Mér fannst ég og systir mín vera
búnar að eignast stúlkur. Systir
mín átti sína stelpu með strák
sem hún er með en ég með
strák sem ég var með í fyrra-
vetur. Dóttir systur minnar hét
Guðný en mín Guðný Sigríður.
Ég skírði dóttur mína báðum
nöfnunum í föðurættina og
skammaðist mín að segja frá
nafni hennar, þar sem við vor-
um ekkert saman lengur, faðir-
inn og ég.
Ein dreymin að norðan.
V-------A------H
Þessi draumur er fyrir góðu,
bæði þér til handa og systur
þinni. Heldur hefur þú þó vinn-
inginn og bendir allt til þess aS
þú munir sigra í einhverju sem
er þó heldur óljóst. Kannski ná-
iS þið saman aftur . . .
Stolnir hringar
Kæri Draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig um
að ráða þennan draum fyrir mig
en ég er búinn að hugsa mikið
um hann sjálf síðan mig dreymdi
hann fyrir viku-hálfum mánuði
síðan:
Tvær af stelpunum sem ég er
oft með, komu inn í herbergi
annarrar stelpunnar og sat ég
þar inni. Þær komu með 4
hringi, 3 úr silfri og þann fjórða
úr gulli og sögðu mér að þær
hefðu stolið þeim úr skartgripa-
verzlun í miðbænum. Þá spurði
ég hvort ég mætti ekki eiga
einn hringinn þar sem ég á eng-
an. Jú, jú, ég mátti það og valdi
gullhringinn Mig minnir að
hann hafi verið með grænum
steini og að steinninn hafi ekki
verið alveg fyrir miðju, heldur
aðeins út á vinstri hlið og var
ég viss um að þetta væri ekta
steinn.
Einn hinna hringanna var með
feykilega miklu skrauti úr silfri
og fannst mér ég sjá þann hring
á hendi stelpunnar sem á her-
bergið sem við vorum í. Annar
hringurinn var úr brenndu silfri,
eins konar plata með holum í
en fjórða og síðasta hringnum
tók ég ekki eftir. Enginn hring-
anna var í kassa.
Ég var búinn að setja hringinn
á baugfingur vinstri handar og
passaði hann alveg. Eftir örlitla
stund var hurðinni hrundið upp
og inn komu kona og maður.
Þau spurðu um hringana og við
það varð ég alveg skíthrædd og
setti „minn" undir rassinn á mér
í þeirri von að enginn hafi tek-
ið eftir því. Þau leita smástund
en ekki á rfiér og um leið og
þau fara, segja þau: „Þið gétið
þá skilað þeim sjálfar."
Svo fannst mér að ég og stelpan
sem bjó í herberginu, vera
komnar inn í einhverja skart-
gripaverzlun Þar inni var stórt
borð með hringum á og voru
þeir allir í kössum. Afgreiðslu-
stúlkan var að skrifa eitthvað
við borðið og horfði ekki á okk-
ur, svo við fórum að lauma
hringunum í kassa hjá öðrum
hringum. Þegar aðeins einn
hringur var eftir, segir stúlkan:
„Jæja, þá vantar bara einn."
Við þetta brá okkur ákaflega,
svo við hlupum upp 2—3 tröpp-
ur á leið út úr búðinni og þeg-
ar við komum á efsta þrep
stönzum við og hendum hringn-
um, sem þá var kominn í kassa,
á borðið hjá öllum hinum hring-
unum. Síðan opnuðum við dyrn-
ar og hlupum út og þannig end-
aði draumurinn sem mig langar
að biðia þig að ráða fyrir mig.
Með fyrirfram þakklæti.
A.J.
Það er undarleg tilviljun, en það
er ævinlega fyrir góðu að
dreyma að maður steli, sérlega
ef upp kemst. Að dreyma silfur
er ekki alltaf þægilegt en það
er einnig heldur til leiðinda að
dreyma sjálfan sig missa gull-
hring, eins og skeði með þig i
draumnum. Því viljum við ráða
hann þannig, að þú mundir eiga
töluverða hamingju í vændum,
en að hún verði eitthvað bland-
in.
Biblían, Kóraninn og
fædd dóttir
Kæri Draumráðandi!
Ég hef einu sinni áður sent þér
draum og þá fékk ég enga ráðn-
ingu. Nú vil ég biðja þig að
ráða þennan draum fyrir mig,
því það er mikið í húfi, varð-
andi skóla, atvinnu og margt
fleira. Ég held að þessi draum-
ur hafi einhverja merkingu:
Hér fannst ég vera að fara í
skólaferðalag og var að útbúa
mig. Eitthvað gekk það sein-
lega. Varð mér þá litið út um
gluggann og sá ég þá hvar rút-
an var að leggja af stað, svo ég
hljóp út og bað bílstjórann að
bíða á meðan ég sækti dótið
mitt. Hann gerði það og þegar
ég kom aftur út í rútuna með
pjdnkur mínar, sá ég ekkert
sæti. Spurði ég þá kennara
(hann er verst liðinn af Öllum
kennurunum í skólanum) sem
stóð við dyrnar hvort ég ætti
ekki að fá sæti. Kvað hann nei
við því. Ég vildi fá að vita
hvernig stæði á því þar sem ég
hefði borgað mitt sæti og segir
hann það ekki skipta neinu. Þá
sagði stúlka sem sat við inn-
ganginn (ég hef aldrei séð hana
áður) um leið og hún beygði sig
að mér: „En hvað þú hefur fal-
legt andlit." (Mér finnst ég
ófríð).
Síðan berst Biblían í tal og þá
Kóraninn og ég talaði í leiðslu
eins og ég væri heittrúuð mann-
eskja en það er ég alls ekki. Þá
kom stelpa, sem hefur verið
frekar illa við mig upp á síð-
kastið, gangandi fram eftir rút-
unni með hvíta bók framrétta,
en svo var hún komin aftur í
sætið sitt.
38. TBL. VIKAN 49