Vikan


Vikan - 20.07.1972, Page 7

Vikan - 20.07.1972, Page 7
MIG DREYMDI EYÐIMÖRK í FULLRIALVÖRU VIÐHORFIÐ TIL GAMLA FÖLKSINS Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi fyrir stuttu. Hann er svona: Mér fannst ég vera að ganga eftir vegi í eyðimörk ásamt vinkonu minni. Mikill hiti var en samt fundum við ekkert til óþæginda. Langt í burtu voru nokkrir pýramídar en ann- ars sást ekkert nema sandur. Mér fannst ég vera í fagur- rauðri kápu sem ekki var alveg full saumuð. Hún var með nokkurs konar hettu sem ég hafði á höfðinu og ég man að ermarnar þóttu mér of þröngar. Ég var þarna með þykkt, svart hár, en í rauninni er ég ljóshærð. Vinkona mín var alveg eins og hún á að sér venjulega og mér fannst sem hún liti mjög upp til mín. Kær kveðja. Þú mátt heppin kallast að eiga þessa stúlku fyrir vinkonu. Hún er þér trygg og traust vinkona, enda er eyðimörk í draumi fyrir sjaldgæfri vináttu. Þú skalt því sýna þessari vinkonu þinni, að þú sért vináttu hennar verð. SVARTIR HRAFNAR OG SVARTIR KETTIR Kæri draumráðandi! Mig dreymdi fyrir skömmu stuttan draum sem hefur angrað mig síðan og langar mig því að fá hann ráðinn. Mér finnst ég vera stödd í herbergi með stórum, opnan- legum gluggum og er einn þeirra mikið opinn. Þegar ég lít út um gluggann sitja í honum tveir svartir fuglar, sem mér finnst vera hrafnar en þó voru þeir helmingi stærri. Ég geng því næst að glugganum til að flæma þá í burtu en þeir sitja sem fastast. Því ýti ég við þeim en það gengur illa og finnst mér að fuglarnir breytist í ketti sem einnig eru svart- ir. Ég kem þeim út, en finn mikinn sársauka í handleggjun- um og þegar ég skoða á mér handleggina. sé ég að þeir eru allir útklóraðir. í því vakna ég. Síðan þakka ég ykkur öllum á Vikunni fyrir ágætis lestr- arefni með fyrirfram þakklæti fyrir ráðninguna. Kær kveðja. J. Þ. B. Þú munt innan skamms fá heldur sorgleg tíðindi og mun þér ekki lítast mvira en svo á þann sem kemur með þau, að þú kemur heldur kuldalega fram — og er það kannski alveg jafn gott. HROSSATAÐ Kæri draumráðandi! Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi nýlega en hann er svona: Mér fannst ég vera úti í garði heima hjá mér og var ný- búið að kaupa mikið af hrossaskít. Ég átti að mæta í skól- ann en þegar ég ætlaði að labba framhjá skítnum, henti ég mér í hrúguna og ataði mig alla út. Síðan fór ég í skólann og fannst engum neitt athugavert við skítinn sem var í hárinu á mér og í fötunum mínum. Krakkarnir sögðu bara, að þetta væri gott fyrir vöxtinn. Draumurinn varð ekki lengri, því ég vaknaði. Vonast eftir ráðningu fljótt. Subba. Hvers konar skítur er fyrir peningum — og peningar eru til að fara vel með. Að öðrum kosti eru það ekki peningar nema í mjög stuttan tíma . . . Eftirfarandi er tekið úr danska blaðinu Politiken: í jafnlitlu landi og Danmörku eru um 600.000 manns, sem lögin um aldurstakmark embættis- manna flokkar undir lieitið gcimalmenni. Þar sem mannsævin lengist nú óðum verður tala þessa fólks innan skamms komin upp i milljón. Enda þótt margt af þessu fóllci sé stálbraust og meðal þess séu þrautreyndir afburða opinberir starfs- menn, er því einn góðan veðurdag skipað að segja af sér embætti, enda þótt mikill hörgull sé á starfs- fólki til að taka við af því og staðgenglarnir séu ein- att reynslulausir byrjendur. Að sjálfsögðu eru ráð- herrar og þingmenn undanskildir ákvæðinu um aldurstakmark embættismanna. Skozkur læknisfræðiprófessor, Ferguson Ander- son frá Glasgow, kom nýlega til Danmerkur og ræddi þá við blaðamenn um örðugleika „gamla fólksins“. Honum fórust orð á þessa leið: „Aðalástæðan fyrir því, að heilsu roskinna manna hrakar, er sú, að ekkert er gert til að lélta þeim raunabyrðina. Það er bverjum heilbrigðum og starfsfúsum manni gífurlegt áfall að verða að láta af störfum, vegna þess að hann hefur náð lögaldri embættismanna. Þvílíkt áfall þola í raun og veru mjög fáir. Lífsstarfið er allt í einu tekið frá þeim, og kemur j)á i ljós, að næstum engir þeirra bafa hugsað f}rrir því, bvað þeir ættu að gera af sér, Jiegar svo er komið fyrir þeim.“ „Þegar þetta fólk missir maka sinn og stendur allt i einu einmana i lifinu, er það mjög bart leikið, enda þótt ekki sé sá missir af manna völdum eins og atvinnumissirinn. Margir verða þá sálsjúkir, en af þvi að þeir eru ekki lengur ungir, er oft litið á það sem elliglöp. Ef ung stúlka lokaði sig inni i íbúð sinni og yrði allt í einu frábitin því að umgangast fólk, myndi ekki liða á löngu, þar til vinir bennar og nágrannar kæmu benni til hjálpar. En ef „gamalmenni“ ætti þar hlut að máli, myndu menn yppta öxlum, kalla það sérvitring og láta það eiga sig. Þetta er ófært. Þjóðin á að láta sér annt um eldra fólliið. Enginn vafi er á, að hægt er að nýta reynslu þess, þekkingu og starfsgetu á margan hátt. Það er áreiðanlega eitthvað bogið við þjóðfélag, sem þarf á öllum starfskröftum sínum að halda, en hefur ekki vit á að notfæra sér starfsgetu eldra fólksins. Ef séð er um að vernda andlega og líkamlega heilsu þess, mun það njóta lífsins til æviloka. Ef komið yrði á þeirri skipan, að eldra fólkinu væri tryggt heilbrigðiseftirlit, myndu miklu fleiri geta notið ánægju á efri árum en nú er raun á. Það er jafn misráðið að vanrækja gamalt fólk og það er vitur- legt að láta sér annt um æskufólkið.“

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.