Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 21
Það er mikilvægt
hverjum manni að fá
sinn daglega skammt
af vítamínum.
Þau geta að vísu
ekki læknað neinn
alvarlegan sjúkdóm,
en þau geta hindrað
hann.
Það sem er gott fyrir
heilsuna er einnig
gott fyrir útlitið.
Lítið því á þessa
vítamíntöflu
C-vítamín
(askorbínsýra) D-vítamín E-vítamín K-vítamín
Finnst í:
Sítrusávöxtum, s. s. sítrónum,
appelsínum, grape, lifur, mjólk,
papriku, jarðarberjum, blað-
grænmeti, vínberjum, káli og
kartöflum.
Skortur veldur:
Blæðingum í tannholdi, þreytu,
verkjum í liðamótum, móttæki-
legra fyrir smitandi sjúkdóm-
um, seinlæknuð sár, marblettir
koma við minnstu viðkomu,
þunnir æðaveggir, höfuð-
verkur.
Dagsþörfin:
Ca. 70 mg. Einn venjulegur
kartöfluskammtur gefur ca.
25% af dagsþörfinni.
Eiginleikar:
C-vítamínið þolir illa áhrif
lofts. Þolir ekki langa suðu.
Vatnsuppleysanlegt.
Finnst í:
Lýsi, síld og öðrum feitum
fiski. I minna mæli í eggja-
rauðu, smjöri, smjörlíki,
mjólk, sveppum. Myndast
einnig í húðinni af útfjólubláu
geislum sólarinnar.
Skortur veldur:
Lin bein, tannsjúkdómar.
D-vítamín þarf til þess að
líkaminn geti unnið kalcium
og fosfór úr fæðunni.
D-vítamín er sérstaklega
nauðsynlegt fyrir vöxt og við-
hald beinanna. En það þarf að
gæta sín á ofneyzlu, sem getur
verið hættuleg starfsemi nýrn-
anna.
Dagsþörfin:
Fullorðnir 400 AE (alþjóða-
eingar) 40 gr smjörlíki gefur
ca. 30% af dagsþörfinni.
Eiginleikar:
D-vítamín er fituuppleysan-
legt. Það geymist í líkamanum
eins og A-vítamínið,
Finnst í:
Hveitikímolíu, maísolíu,
makríl og feitum fiskum,
grænmeti og dálítið í
eggjum.
Skortur veldur:
Ófrjósemi hjá sumum dýrum.
Truflun í eggjahvítumyndun í
líkamanum.
Vöðvarýrnun.
Dagsþörfin:
Ekki ákveðin.
Finnst í:
Flestum grænmetistegundum,
s. s. spínati, káli, blómkáli,
tómötum, ásamt kartöflum og
soyabaunaolíu. Framleiðist
jafnvel í þörmum mannsins.
Skortur veldur:
Blæðingar.
Dagsþörfin:
Ekki vitað.
29. TBL. VIKAN 21