Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 22
Hún fékk
kjötbollu
Liza Minelli er orðin
svo fræg að það
þarf ekki að taka
fram að hún er
dóttir Judy Garland.
Liza Minelli hefur sjaldan
mikinn farangur, þegar hún
ferðast, en alltaf hefur hún
ping-pong spaða með sér. Ef
hún getur ekki fengið að leika
borðtennis, er hún miður sín.
Á hótelum þar sem engar að-
stæður eru til að leika borð-
tennis, lætur hun einfaldlega
setja upp borð í svefnherbergi
sínu. Hún er ekki hrifin af
Þýzkalandi og ástæðan fyrir því
er sú að hún var þar á ferð og
gisti eitt þekktasta hótel í
heimi, Hotel Kempinski, sem
frægt er fyrir góðan mat, en
hún gat ekki fengið hamborg-
ara eða kjötbollur handa hund-
inum þar, hann varð að éta
kálfasnitzel.
ekki
handa hundinum sínum
Liza er yfirleitt ekki mikið
fyrir lúxus, hún hefur yndi af
því að leika á gítar, elda mat
og lesa allt sem hún nær í og
hefur handbært, að ógleymd-
um borðtennisleiknum, sem
hún getur alls ekki verið án.
Hún segist ekki hafa áhuga á
stjórnmálum, yfirleitt ekki af
neinu sem ekki snerti strengi
hjartans. Það sýndi sig að hún
er hjartagóð, þegar Judy Gar-
land móðir hennar dó, sem var
orðin frægust fyrir þau
hneyksli sem hún sí og æ var
að koma sér í. Enginn af fimm
fyrrverandi eiginmönnum henn-
ar vildi annast útförina, en þá
var það Liza, ein af þrem börn-
um hennar, sem sá um allt og
greiddi kostnaðinn.
22 VIKAN 29. TBL.