Vikan - 20.07.1972, Síða 45
til Selmu. Engin fingraíör
fundust á prikinu, sem höggv-
ið var til úr björk.
Bojan Dahl hefur flutt úr af-
skekkta húsinu sínu.
— Ég þori ekki að búa þar
lengur. Ég veit ekki einu sinni
hvort ég þori að flytja þangað
þótt morðinginn náist. Við
Selma sáumst daglega, og betri
manneskju var ekki hægt að
hugsa sér. Ég get ekki hugsað
mér að hafa húsið alltaf fyrir
augunum og vita hvað gerðist
þar. Nei, ég held ég flytji þang-
að alls ekki.
Og nú býr Bojan Dahl meira
miðsvæðis, í einnar hæðar húsi
við veginn, og er þaðan falleg
útsýn yfir Dalelfi.
Allir í Lima eru hræddir.
Fyrir löngu þótti augljóst að
brennuvargur gengi þar laus.
Brunarnir hafa ekki ennþá
valdið manntjóni, en þeir halda
áfram. Nú eru þeir orðnir
seytján.
Menn þykjast næstum vissir
um að morðinginn búi annað-
hvort í Lima eða sé þar gagn-
kunnugur. Það þýðir að byggð-
arfólkið þekkir hann. þótt það
viti ekki hver hann er. Gizk-
að er á ýmsa, og kannski er
morðinginn einn þeirra.
Óvenjulegt spor eftir stígvél,
sem fundizt hefur, er nú sett í
samband við morðið. Enginn í
bygðinni á slíkt stígvél, svo
vitað sé. Hans-Erik Holm, lög-
reglustjóri í Malung, hefur
fengið fram að fyrirtæki eitt í
Stokkhólmi hafi keypt inn
þessi stígvél — þau eru með
vörumerkinu Semperit — og
látið starfsmenn sína nota þau.
Þá hafa yfirvöld fangelsanna
keypt eitthvað af þessum stíg-
vélum og meðal annars úthlut-
að þau mönnum, sem setið hafa
inni fyrir ölvun við akstur,
þegar þeim hefur verið sleppt
út. En það tæki tímann sinn
að þefa uppi alla, sem hugsan-
lega kynnu að eiga stígvél með
þessu merki.
— Við vonum að minnsta
kosti að brennumálin upplýsist
fljótlega, segir Holm lögreglu-
stjóri. — Við höfum fengið
upplýsingar, sem kannski koma
okkur á spor, þar á meðal fund-
um við far eftir bíldekk á síð-
asta brunastaðnum. En nú er
ekki víst að brennurnar og
morðið standi í neinu sambandi
hvort við annað. Fingraför
fundust í húsi hinnar látnu, en
þau koma ekki heim við
fingraför þeirra, sem fólkið í
bygðinni hefur bent á, eða þau
sem við höfum á spjaldskrá.
Bær Selmu verður látinn
standa auður að minnsta kosti
þangað til morðmálið upplýs-
ist. Garðhúsgögnin hennar
stóðu úti í allan vetur. Á tröpp-
unum er ennþá fata, sem hún
hafði sett þangað út kvöldið
sem hún var myrt.
Og ekki dregur úr hræðslu
þorpsbúa. Þegar kvöldar læsir
fólk að séár og hlustar út í
myrkrið. Menn verða ekki í
rónni fyrr en morðingi Selmu
hefur náðst og brennumálin
upplýstst.
☆
NÆTURINNAR
IHÚMI______________________
Framhald af bls. 35.
hafði sinadrátt í kálfunum, sem
var mjög sár. Svartar öldur
liðu fram hjá mér. Röddin í
henni kom eins og úr öðrum
heimi. en bergmálaði síðan frá
veggjunum í stofunni.
— Morðinginn hét... morð-
ingin hét... hét... hét... Svo
heyrði ég ekki meira. Það leið
yfir mig og þegar ég raknaði
við aftur lá ég á gólfinu Það
var niðdimmt og dauðakyrrð í
stofunni. Ég stóð úpp, brölti að
slökkvarannm, dróst að skrif-
borðinu og kveikti á lampem-
um. Kalinski var horfin. Mér
var hræðilega illt. Svo hljóp ég
framhjá svefnherberginu og
inn í baðherbergið, gubbaði og
skolaði því niður, gubbaði aft-
ur og skolaði niður jafnharðan.
Ég hallaðist upp að veggnum,
skjálfandi og grátandi og með
aðeins eina hugsun í huganum:
komdu þér út, áður en það er
orðið um seinan! Ég slagaði
eftir ganginum. Hann virtist
endalaus. Eg komst fram að
stiganum. Mér var sagt seinna,
að ég hefði ósjálfrátt lokað
dyrunum á eftir mér. Svo varð
myrkur.
Þegar ég vaknaði, var ég í
hvítu herbergi. R.obert stóð við
rúmstokkinn hjá mér og hélt í
höndina á mér. Ég var máttlaus
og hræðilega veik.
—i Þú ert komin yfir það
versta, sagði Robert. — Nú
verðurðu að reyna að sofa.
É'g sofnaði aftur, og þegar ég
vaknaði í annað sinn, leið mér
miklu betur. Robert var þarna
enn og sólargeislarnir streymdu
inn um gluggann. Allsstaðar
voru blóm.
— Þegar þú ert orðin nægi-
lega hress, þarf lögreglan að
tala við þig, elskan. Læknirinn
segir, að hún megi það.
— Er ég í sjúkrahúsi?
— Já, þú varst hirt og færð
ihingaði Þeir dældu upp úr
maganum á þér, en eitrið var
þegar búið að grípa um sig.
Sem betur fór, var skammtur-
inn MtiU.
— Það var hún Kalinski, Ro-
bert. Hún eitraði fyrir mig.
—- Nú ætla ég að kalla á
lögreglumanninn, svaraði Ro-
bert. — Hann bíður hérna úti.
Þá geturðu sagt honum alla
söguna.
Þetta samtal var mjög þreyt-
andi. — Kortér, en ekki mín-
útu þar framyfir, hafði læknir-
inn sagt.
Ég lýsti heimsókn minni til
ráðskonunnar fyrrverandi, hve
beizkt kaffið hefði verið,
hvernig ungfrú Kalinski hefði
þegar verið að hrella mig með
hótunarbréfum. Ég sagði frá
samtali okkar og hinum ein-
kennilegu dylgjum hennar, og
hvernig hún •— greinilega í
þeirri trú að ég væri syndari
og verðskuldaði refsingu —
hefði sett eitur í kaffið.
— Hvaða eitur var þetta
annars? spurði ég.
— Arnseník. En það var í
súkkulaðinu en ekki kaffinu.
— Súkkulaðinu! æpti ég. —
Það var þá allt saman lygi, að
hún hefði fengið það sent.
— Sent?
—■ Já, hún sagðist hafa feng-
ið það sent í pósti, svaraði ég.
— Funduð þið ekki umbúðirn-
ar? Þær voru á skrifborðinu,
ásamt bréfinu.
—• Við fundum engar um-
búðir og ekkert bréf, frú Dell-
mer.
— Ekkert bréf? sagði ég,
furðu lostin. — Ykkur hlýtur
að hafa sézt yfir það. Það var
undir biblíunni.
— Ég get fullvissað yður, frú
Dellmer, að lögreglan hefur
ekki hlaupið yfir neitt. Við er-
um alltaf nákvæmir um svona
hluti.
— Þá hlýtur hún að hafa
komið aftur og hirt það. Hún
var þarna blátt áfram alls ekki.
Og hún hefur hugsað fyrir öllu.
Þér verðið að leita að henni,
en fljótt, því að hún er mjög
klók.
—• Við höfum þegar fundið
frú Hussmann.
Eg andvarpaði, svo mjög létti
mér.
— Þá er allt í lagi. En þið
skuluð bara ekki sleppa henni
fyrir gott orð í þetta sinn. Hún
er hættulegt glæpakvenndi og
brjáluð í þokkabót. Nú kemur
allt fram í dagsljósið.
— Ég er nú hræddur um, að
þetta sé ekki svona einfalt, frú
Dellmer sagði lögreglumaður-
inn alvörugefinn. Málrómurinn
var eitthvað annarlegur og ég
greip andann á lofti.
— Og hversvegna ekki?
—• Af því að frú Hussmann
er dáin.
—• Dáin? sagði ég og trúði
ekki mínum eigin eyrum. —
Það etr ómögulegt. Óhugsan-
legt. Hún var farin.
— Hún lá í svefnherberginu.
Við fimdum hana þegar við
brutumst inn í íbúðina. En við
komum of seint. Hún hafði
fengið talsvert stærri skammt
en þér.
Ég minntist þess, hve miklu
Kalinski hafði troðið upp í sig
af súkkulaðinu. Ég svitnaði og
fékk svima, og maginn í mér
var enn mjög viðkvæmur.
Hjúkrunarkona kom inn og
sagði: — Nú verð ég að biðja
yður að fara. Sjúklingurinn
verður að hvílast.
Þau fóru svo út en ég horfði
upp í hvíta loftið og reyndi að
koma skipulagi á hugsanir
mínar.
Það voru miklar yfirheyrslur
næstu dagana. Morðtilraun er
ekkert skemmtileg fyrir þann,
sem fyrir henni verður, jafnvel
þótt hann lifi hana af. Þeir
vildu vita, hvort ég væri viss
um, að umbúðirnar hefðu enn
verið þarna, þegar ég fór, og
ég svaraði, að því meir sem ég
bryti heilann um þetta, því
óvissari væri ég um það.
Framhald í næsta blaði.
KLIPPIÐ HÉR
PöntunarseSilI
Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við, í þvf
númeri, sem ég tilgreini. Greiðsla fylgir með f ávísun/póstávísun
/frímerkium (strikið yfir það sem ekki á við).
Nr. 63 (9749) Stærðin á að vera nr.
29. TBL. VIKAN 45