Vikan - 12.10.1972, Blaðsíða 3
41. tbl. - 12. október 1972 - 34. árgangur
Vikan
Ein af hverj-
um sex kon-
um fær
taugaáfall
Læknar segja aS ein af
hverjum sex konum fái
taugaáfall einhvern tíma
á lífsleiðinni. Tölur yfir
karlmenn höfum við hins
vegar ekki. En hvernig
lýsir taugaáfall sér?
Þrjár konur segja frá þvi
á bls. 14.
Þá kom hún
- sú sem
sögS var
látin
Afleiðingar síðari heims-
styrjaldarinnar eru enn að
koma fram. Kona þýzks
manns sat í fangabúðum
í Rússlandi, en var sögð
látin í stríðslok. Nokkru
síðar kvæntist maðurinn
aftur. En þá kom sú sem
sögð hafði verið látin.
Sjá bls. 10.
Buxna- llilpí
tízkan
heldur velli
Buxnatízkan heldur velli,
þótt tizkufrömuðir reyni
öðru hverju að gera
atlögu að henni. Kven-
fólkið er hreint ekkert á
þeim buxunum að hætta
að ganga í buxum! Við
segjum frá buxnatízkunni
undanfarin ár og þróun
hennar á bls. 16.
KÆRI LESANDE!
Enginn getur borið honum á
brýn, að liann hafi slegið slöku
við í lífinu. Dugnaðinn hefur
hann frá föður sínum, predikara
af trúflokld meþódista, sem kom
upp sex kirkjum á tveimur ára-
tugum. Iiann kenndi syni sínum,
að ótti og freisting væru náskyld
og á báðum mætti sigrast með
trú, aga og iðni. Sonurinn þjáð-
ist frá bernsku af ákveðnu formi
ótta: feimni. Svo feiminn var
hann, að fyrstu skólaárin þorði
hann naumast að Ijúka upp
munni. En hann gekk í ræðu-
mennskuklúbb skólans og varð
smátt og smátt einn snjallasti
ræðumaðurinn þar í bæ. Utan
skólans var hann hins vegar enn
jafn feiminn og fyrr. Hann ótt-
aðist kvenfólk meira en sjálfan
höfuðóvininn. Þegar hann þurfti
að andmæla stúlku á fundi nokkr-
um, varð hann að gjalti. Hann lét
þó ekki þar við sitja, heldur skor-
aði á stúlkuna til annarrar ræðu-
keppni. Þetta leiddi til nánari
kynna — og tveimur árum seinna
gengu þau í hjónaband . . .
Maðurinn, sem hér er lýst, er
George McGovern, frambjóðandi
demókrata við væntanlegar for-
setakosningar í Bandaríkjunum.
Skoðanakannanir eru honum
heldur betur í óhag um þessar
mundir og spá Nixon forseta yf-
irburðasigri. Engu að síður bein-
ist athygli heimsins að McGovern
næstu vikurnar — og þess vegna
kynnum við hann í grein á bls. 8.
EFNISYFIRLIT
GREINAR
BLS.
Hann ætlar að fella Nixon, grein um Mc-
Govern, frambjóðadna demókrata við vænt-
anlegar forsetakosningar í Bandaríkjunum 8
Þá kom hún — sú, sem sögð hafði verið látin 10
Ég fékk taugaáfall, þrjár konur segja frá
reynslu sinni 14
Ekki á þeim buxunum að hætta að ganga í
buxum 16
Stjörnunælan, frásögn eftir Önnu Maríu
Þórisdóttur 25
SÖGUR
Piparsveinar, smásaga eftir Hugh Walpole,
þýðing: Páll Skúlason, myndskreyting: Sigur-
þór Jakobsson 12
Rensjöholm, framhaidssaga, 5. hluti 20
Konan í snörunni, framhaldssaga, 8. hluti 32
ÝMISLEGT
Fimm tegundir af meðlæti með steiktum
fiski, Eldhús Vikunnar, umsjón: Dröfn H.
Farestveit, húsmæðrakennari 26
3m — músík með meiru, í þessum þætti er
rætt um breytingar á hljómsveitinni Trúbrot,
umsjón: Edvard Sverrisson 28
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn
Síðan siðast
fullri alvöru
Mig dreymdi
Myndasögur
Stjörnuspá
43, 46, 49
44
Krossgáta
50
FORSÍÐAN
Stúlkan á forsíðunni heitir Erla Harðardóttir og
afgreiðir í verzluninni Karnabær. Þessa skemmti-
legu mynd af henni tók Astþór Magnússon, Ijós-
myndari.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matt-
hildur Edwald og Kristín Halldórsdóttir. Útlits-
teikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar:
Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigrlður Ólafsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing.
Slðumúla 12. Símar: 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 60,00. Áskriftarverð er
575 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða
1100 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega. Áskriftar-
verðið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvem-
ber, febrúar, maí og ágúst.
41. TBL. VIKAN 3