Vikan


Vikan - 12.10.1972, Síða 4

Vikan - 12.10.1972, Síða 4
Teppin sem endast endast og endast á stigahús og stóra góiífleti Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefnið og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá- róttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt, sislétta áferð og er vatnsþótt. Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppln hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu járnbrautarstöðvum Evrópu. VI3 önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verS og Sommer gæði. UTAVER GRENSÁSVEGI 22-24 SÍMAR: 30280 - 32262 P0STURINN Langar aö tala viö hann Elsku Póstur! Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér en hef hætt við það, en nú verð ég að gera það. Ég er í Vest- mannaeyjum og er hrifin af strák, sem á heima hér. Hann er sextán ára. Þegar ég sé hann, langar mig að tala við hann en get það ekki, ég hef engan kjark til þess. Hann veit að ég er hrifinn af honum. Hvað á ég að gera? Ein í vanda. P.S. Hvað lestu úr skriftinni? — Lestu eitthvað úr henni? — Og hvernig er hún? Fyrst hann veit að þú ert hrifin af honum, ætti að vera hægt að ganga úr skugga um, hvort hann vill eitthvað hafa með þig að gera eður ei. Gefðu honum auga og gerðu þér far um að verða sem oftast á vegi hans, þá liður varla á löngu áður en hann tekur við sér, svo framar- lega sem hann hefur einhvern áhuga á þér. Eftir skriftinni að dæma ertu dá- lítið óþolinmóð að eðlisfari. — Skriftin er skýr, en ekki snotur. Eftir hvaö mörg skipti? Kæri Póstur! Mig langar að biðja þig að svara nokkrum spurningum fyrir mig. Ég er með stelpu og er bú- inn að vera með henni nokkuð lengi. Ég get ekkert snúið mér með spurningar mínar nema til þín. 1. Eru undantekningar að maður finni ekki fyrir því þegar maður afmeyjar stelpu? 2. Hvenær er hægt að full- nægja stelpu (eftir hvað mörg skipti)? 3. Hvaða tímabil eru hættu- laus (að gera það)? Með fyrirfram þökk og von um greinargóð svör. H. H. P.S. Hvernig eiga Hrúturinn og Meyjan saman? Og hvað lestu úr skriftinni? Meyjarhaftið er mjög mismun- andi sterkt, svo að hugsanlegt er að karlmaðurinn verði þess lítt eða ekki var við afmeyjun, en það mun þó heyra til undan- tekninga. Þetta með fullnæging- una er mjög mismunandi, getur vel tekizt í fyrsta skipti, þarf stundum oftar; það er mjög breytilegt eftir því hver á í hlut og líka eftir því hvernig elsk- endurnir njóta sín saman. Og engin timabil eru fullkomlega örugg. Þú ert greinilega það fá- fróður um jafnvel grundvallar- atriði í kynferðismálum að það nær engri átt fyrir þig að ætla að fara að sofa hjá fyrr en þú hefur aflað þér einhvers fróð- leiks um þessi efni. Ef þú getur ekki fræðzt um það nauðsynleg- asta heima eða í skólanum, þá er ekki úr vegi að benda á að þó nokkur sæmilega greinargóð rit um kynferðismál eru til á ís- lenzku. Síðast rita af því tagi á markaðinn var Allt sem þú hef- ur viljað vita um kynlífið, sem enn mun fáanleg í flestum bóka- verzlunum. Hrútur og jómfrú eiga yfirleitt erfitt með að átta sig hvort á öðru, og samstarf þeirra tekst þá helzt, þegar rekur i slíkar nauðir, að ekki er annars kost- ur. En undir þeim kringumstæð- um geta þau vel orðið hvort öðru að liði. Skriftin er því mið- ur of slæm og óregluleg til að nokkuð sé úr henni lesandi. Vinkona mín hefur verið meö honum Kæri Póstur! Ég þakka fyrir allt í Vikunni. — Þannig er mál með vexti að ég er ofsahrifin af strák, sem á heima í Reykjavík. Vinkona mín hefur verið með honum. Ég hef einu sinni talað við hann í síma, en þori ekki að segja að ég sé hrifin af honum. Ég hugsa að hann viti það, en hvernig á ég að krækja í hann. Vona að þetta bréf fari ekki í öskuna. Ein pía úr Eyjum. P.S. Hvað lestu úr skriftinni? — Hvernig eiga vogarmerkið og meyjarmerkið saman? Fyrst vinkona þín þekkir hann svona vel, er upplagt að láta hana ordna þessu. Ur svona ómótaðri skrift er ekkert les- andi. Vog og jómfrú eiga ágæt- lega saman. 4 VIKAN 41. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.