Vikan


Vikan - 12.10.1972, Qupperneq 5

Vikan - 12.10.1972, Qupperneq 5
PHILIPS og CARAVELL frystikistur stórkostlegt urval-allar stærdir HEIMiLISTÆKI SF. Verið velkomin í verzlanir okkar Sætúni 8 og Hafnarstræti 3 símar 15655 - 24000 - 20455. Enginn getur hætt — nema hann vilji það sjálfur Kaeri Póstur! Ég vil byrja á því að þakka fyrir Vikuna, en hún hefur alltaf kom- ið inn á mitt heimili í mörg ár. Reyndar finnst mér efni hennar of mikið miðað við blessað kven- fólkið, og mætti hugsa meira um okkur karlmennina. Ég vil þakka fyrir greinar Jónasar stýri- manns og eins greinina eftir Gísla Kolbeinsson um Kína. Enn- fremur hafði ég gaman af frá- sögninni um fyrstu þátttöku okk- ar í Olympíuleikunum. Þá finnst mér smásögurnar að undanförnu hafa verið sérstaklega góðar og minna um ástarvellur en oft áð- ur. En þá er bezt að koma sér að efninu. Mig langar til að biðja þig að veita mér svolitlar upp- lýsingar um AA-samtökin og Bláa-bandið. Hvaða skilyrði þurfa menn að uppfylla til að fá inngöngu í þau? Er það rétt, að samtökin reki ekki lengur Bláa- bandið? Með fyrirfram þakklæti fyrir birtinguna og beztu kveðjur. H.S.H. ----------^ \r-----—A————^ Nýlega er komin út bók, sem heitir „Afengisvarnir" og er tek- in saman af Jónasi Guðmunds- syni. ÞaS vill svo vel til, að við höfum þessa bók við höndina og ætlum að verða við bón þinni með því að birta örlítinn kafla úr henni, þar sem AA-samtökin eru kynnt: „AA-samtökin nefnist félags- skapur fyrrverandi drykkjufólks, sem vill vinna að því í samfé- lögum að bjarga einstaklingum frá ofdrykkju. Barst þessi félags- skapur hingað frá Bandaríkjun- um. AA-samtökin eru sjálfstæS og óháS hvers kyns félagsskap öSrum. Þau halda sig utan við þras og þrætur um almennar eSa einstakar lausnir áfengismála og taka ekki afstöðu til opinberra máia. Tilgangur þeirra, sem í þessi samtök fara, er að vera ódrukkinn og stySja aSra drykkjumenn til hins sama. AA- samtökin starfa í deildum, og aðallega starfa þau í Reykjavík. Það háir mjög starfsemi sam- takanna, aS ekki eru til upp- tökustöSvar, sem geta tekiS viS fólki, sem til þeirra leitar í vand- ræðum sínum vegna ofdrykkju, ef fjarlægja þarf það af heimil- um. AA-samtökin hafa hvorki lög né félagsgjöld, og engin inn- tökuskilyrði eru í samtökin né brottfararskilyrði úr þeim. Þang- að geta allir komið, sem finna, að drykkjuskapur þeirra er orð- inn of mikill og verður að hætta. Útgjöld viS fundarhöld og aðra starfsemi eru greidd með samskotum. Þau taka ekki við opinberum styrkjum, nema til ákveðinnar starfsemi, svo sem bókaútgáfu. — Þau starfa undir kjörorðinu: Enginn getur hætt drykkjuskap, nema hann vilji það sjálfur." AA-samtökin höfðu athvarf fyrir skjólstæðinga sína á Bláa-band- inu á árunum 1955—1963. Þá tók ríkið hins vegar við rekstri þess og er það nú ein deild frá Kleppi. Lafðin og Lúðvík Kæri Póstur! Ég tek alveg eindregið undir bréfið frá einum lesenda um daginn, sem vildi endurvekja vísnaþáttinn. Sérstaklega fannst mér gaman, þegar þið voruð með botnakeppnina og sting því upp á, að þið byrjið aftur að leyfa bögubósunum að spreyta sig. Það er þjóðþrifaverk að efla áhuga fólksins á ferskeytlunni, þessari stórskemmtilegu þjóðar- íþrótt, sem alls ekki má deyja út. Ég gæti tvinnað saman miklu fleiri hástemmd lýsingarorð um ágæti ferskeytlunnar, en læt þetta nægja að sinni. Erindið var að koma á framfæri fyrriparti um landhelgismálið, sem mig langar til, að lesendur Vikunnar spreyti sig á. Hann er svona: Lafðin fína lafhrædd er, Lúðvík brýnir skærin. Ég skora á ykkur að birta þenn- an fyrripart og síðan botnana, ef einhverjir berast. Með fyrirfram þakklæti. Bögubósi. ÞaS mun vera i undirbúningi að endurvekja vísnaþáttinn, en þar sem fyrripartur „Bögubósa" fjall- ar um landhelgismálið, sem nú er efst i hugum allra lands- manna, hleypum við honum af stokkunum strax. Pósturinn tek- ur við botnunum og birtir síðar þá þeirra, sem honum þykja beztir. 41. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.