Vikan


Vikan - 12.10.1972, Page 6

Vikan - 12.10.1972, Page 6
r r SIÐAN SIÐAST NUREJEV ( NÝJUM FÖTUM HÚN ER LlKA LISTA- MAÐUR I MATARGERÐ Á Ítalíu er árlega úthlutað verðlaun- um til þeirra sem hafa lagt eitthvað af mörkum til umbóta í matargerð. í ár var það Sophia Loren, sem fékk þessi eftirsóttu verðlaun, en sá sem þau hlýt- ur fær „barónstitil“, heiðursmerki og heiðursskjal. Sophia gaf nefnilega út matreiðslubók, sem hefur hlotið mjög góða dóma og hér á myndinni sést þegar hún tekur á móti verðlaununum. Þegar ballettstjarnan Rudolf Nurejev fór síðast í bíó, — en það gerir hann ekki oft, þá var hann klæddur nýjum Hróa Hattar klæðnaði með tilheyrandi stígvélum úr mýksta skinni. Hann var líka nýklipptur. En þetta var líka kon- ungleg hátíðasýning á kvikmyndinni „Ég er dansari" og hann leikur þar sjálfur. Það voru vinir hans, Margaret prinsessa og Tony hennar, sem settu konunglegan svip á sýninguna. Nú eru liðin ellefu ár, síðan hann stökk inn í vestrænan heim á flugvellinum í París og síðan hefur hann aðallega búið í London, þar sem hann kann vel við sig. MARIA DEL CARMEN SITUR FYRIR HJÁ HINUM „GUÐDÖMLEGA" DALI Maria del Carmen og Alfonso prins, sem er sendiherra Spánar í Stokk- hólmi, voru nýlega í fríi á Costa Brava. Þau hittu þar Salvador Dali á hinu glæsilega heimili hans í Cadaques. Al- fonso prins stakk upp á því að hann málaði mynd af konu hans og það stóð ekki á því, hinn „guðdómlegi“ var strax til í það.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.