Vikan


Vikan - 12.10.1972, Page 10

Vikan - 12.10.1972, Page 10
ÞÁ KOM HÖN - SEM SÖGD HAFBIHERIB LÁTIN Vandamálin geta verið með ýmsu móti. Nýlega kom Ida Leiter, sem er sextíu og eins árs, til Bökendorf, smáþorps í Westfalen, en þar býr Adam eiginrnaöur hennar, með síðari konu sinni. Ida Leiter var tekin til fanga á stríðsárunum og flutt til Rússlands, með fjórum börnum sínum. Aðeins eitt af börnum þeirra hjóna var í fylgd með henni. Tvö létust af hungri í stríðinu, en önnur dóttirin var um kyrrt í Kasachstan að eigin ósk. í fylgd með þeim mæðgum var tengdasonur Idu og þrír dóttursynir. Farangur þeirra fyllti heilan vöruvagn í lestinni og meðal annars farangurs var Moskwitsch-bifreið. Ef annaðHvort hjónanna er sagt látið og annað kemur ekki í ljós, þá getur það hjónanna, sem eftir er, gengið í löglegt hjónaband. Fyrra hjónabandið leysist þá upp af sjálfu sér, — en ef sá aðilinn, sem sagður var látinn er ennþá á lífi . . . Síðara hjónabandið er og verð- ur löglegt. Lagalega séð þarf Adam Leiter ekki að hafa neinar áhyggjur, en frá mannlegu sjónarmiði á hann við vanda- mál að stríða, sem hann reynir að leysa eftir beztu getu. Saga hans er sönn, enda var töluvert um slík örlög eftir stríðið. Hann átti heima í Wartbriicken í Posen (sem nú heyrir Póllandi til). í síðasta heimfararleyfi sínu frá vígvöll- unum, árið 1944, sá hann Idu, konuna sína og börnin fjögur í síðasta sinn. Svo var hann tekinn til fanga. Eftir stríðið hóf hann leit að fjölskyldu sinni, en hún bar engan ár- angur. Árið 1952 kvæntist Adam Leiter aftur, en til þess að það yrði löglegt hjónaband, varð að lýsa fyrri konuna látna. En tveim árum síðar komst hann að því að fyrri konan var á lífi. Hún bjó í Gurew með tveim dætrúm sínum. Yngri börnin tvö létust á hrakning- unum um Rússland. Adam Leiter er mjög ham- ingjusamur með síðari konunni sinni, en þessi frétt hafði mikil áhrif á hann og honum fannst hann þurfa að gera eitthvað til að liðsinna fyrri konunni. Hann kom því í gegn, með aðstoð Rauða krossins, að fjölskyldan fengi brottfararleyfi frá Rúss- landi. Og svo, eftir átján ára útlegð, kom frú Ida til Bök- endorf í fylgd með dóttur sinni, tengdasyni og þrem dótt- ursonum. Farangur þeirra fyllti heilan farangursvagn og þau höfðu jafnvel bíl meðferðis. — Hin dóttirin varð um kyrrt. Adam Leiter var búinn að útvega fjölskyldunni atvinnu, Philip, tengdasonurinn, er tré- smiður og dóttirin, Martha, hefur fengið vinnu við ræst- ingar. Þau hafa von um að geta bráðlega byggt hús yfir sig. Framhald á bls. 42. Ella og Adam Leiter skála við tengdason Adams og syni hans þrjá og ekki er annað að sjá en að fjölskyldan líti björtum augum á framtíðina. Endurfundir eftir 28 ár: Á brautarstöðinni í Bökendorf heilsar Adam Leiter fyrri konunni, sú síðari horfir á, án nokkurrar afbrýðisemi. 10 VIKAN 41.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.