Vikan


Vikan - 12.10.1972, Side 21

Vikan - 12.10.1972, Side 21
og ég lagöi ekki viö hlustirnar. Ég hefi alltaf grunaö stjórn- málamenn um aö hafa meiri snúningshraöa I heilanum en mér hefur veriö gefinn. Þegar ég opna blööin og reyni aö fylgjast meö, þá finnst mér þetta allt vera einn hrærigrautur og ég er fyrir löngu hætt aö reyna aö skilja þessi mál. Eftir aö hafa litiö spyrjandi hvor á aöra, ákváöum viö ungfrú Dickman aö draga okkur I hlé, lofa fjölskyldunni aö sitja einni yfir kaffinu. Viö buöum góöa nótt. Claes tók bækurnar sínar og kom meö okkur, en þegar viö komum fram I forsalinn, gekk hann yfir aö dyrunum á skrifstofu Klemens. Ungfrú Dickman, sem var komin alveg aö stiganum, kallaöi: - Hvaöa erindi áttu þangaö inn? Claesopnaöi dyrnar, án þess aö viröa hana viölits. Hrokafulla framkomu sina hlaut hann aö hafa tek^ö eftir einhverjum gömlum ættarmyndum. - Hvaö kemur þaö yöur viö? sagöi hann og reigöi sig. Ungfrú Dickman stokkroönaöi og gekk nokkur skref i áttina til hans. - Þú skalt ekki voga þér aö vera hortugur viö mig. Jafnvel þótt hitt fólkið þoli þér sitt af hverju, þá geri ég þaö ekki. Claes leit I kringum sig I skrautlegum forsalnum. - Þetta er mitt heimili, sagði hann drembilega. - Þér ráöiö ekki yfir mór, ég get fariö hvert sem ég vil. -En þetta er ekki þitt herbergi, þar eru aðeins bækur og skjöl, sem föðurbróöir þinn á. Ég á lika plögg þarna og þú vogar þér ekki aö snerta neitt. Hann sneri I hana baki og gekk inn, lokaöi dyrunum á eftir sér. Hún rak upp hálfkæft óp og ætlaði á eftir honum, en ég gekk I veg fyrir hana. - Ætlið þér raunverulega aö leggja út i svona vonlaust striö? Hún staröi á mig. - Hvaö eigiö þér viö? Ég hefi aldrei kynnst barni, sem eins er i þörf fyrir alvarlega hirtingu. - Ekki ég heldur. En haldið þér virkilega aö fjölskyldan myndi þakka yöur aö veröleikum, ef þér reyniö aö koma i veg fyrir aö hann geti gert þaö sem hann vill? - Nei-i, þér hafiö á réttu aö standa. En búfræöingurinn er ákaflega nákvæmur með öll sin plögg. Ef hann ruglar einhverju, þá kemur þaö niöur á mér. Ég opnaöi dyrnar og gekk mn. Claes stóö viö stóra bókaskápinn og renndi fingri yfir bókakilina. Þetta var stórt og bjart herbergi. Stólarnir leöurklæddir, tvö skrif- borö, skjalaskápar og hillur meö viöskiptabókum. A ööru skrifboröinu var mynd i ramma af dökkhæuftum ungum manni, sem var mjög llkur Klemens. - Er þetta Carl-Jan Renfeldt? spuröi ég. Claes sneri sér viö. - Já, þetta er faðir minn. Hann er dáinn. Hann dró þykkan doörant út úr hillunni og gekk til okkar. - Klemens frændi drap hann. - Claes, stundi ég, en náöi varla andanum. - Hvernig leyfir þú þér aö bera fram svo andstyggilega lygi, sagöi ungfrú Dickman. - Þaö ætti aö flengja þig. - Ef þér snertiö mig, þá drep ég yöur, sagöi Claes hörkulega. Viö heyröum ekki i Klemens, fyrr en hann stóö hjá okkur. -Hvaö er nú um aö vera? spuröi hann og þaö kenndi hvorki reiði né forvitni i rödd hans. - Hann sagöi nokkuö hræöilegt, sagöi ungfrú Dickman. - Herra Renfeldt, þaö er ekki rétt aö láta drenginn tala svona. - Ég er sammála. Ef ég ætti hann, þá myndi ég sannarlega taka I taumana. En hann er ekki sonur minn og ég fæ yfirleitt að heyra þaö. - Aö minnsta kosti ætti einhver aö gera þaö! - Ég held þaö taki enginn mark á þvi sem hann segir. Allir sem þekkja hann, draga aö minnsta kosti niutiu af hundraöi frá. Hvaða hrollvekja var það nú? Ungfrú Dickman kom ekki upp nokkru oröi og hún var eldrauð i kinnum. Ég var, að öllum likindum, náföl. Cláes sagöi ekkert til aö koma okkur úr klipunni. Klemens leit á mig. - 41. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.