Vikan


Vikan - 12.10.1972, Side 29

Vikan - 12.10.1972, Side 29
Það virðist þá vera komið á hreint, hvers vegna Gunnar Jökull hættir trommuleik með Trúbroti. En Gunnar Þórðarson hefur einnig sitt hvað að segja um Mandölu. — Okkur tókst engan veginn að gera það sem við ætluðum okkur að gera. Þetta á ekki aðeins við um sönginn heldur einnig undirspilið. Það var t.d. allt of dauft. Við getum spilað miklu betur en þetta, bara andinn var ekki með okkur. Hann var einhvers staðar viðs fjarri. — Nú fer að lita svo út, sem yfir- náttúruleg öfl hafi glapið Trúbrot i ferð sinni til fjarlægri landa og fagurra fyrirheita og hver veit nokkuð um slikt á þessum siðustu og verstu timum? Þá er komið að hinni nýju skipan Trúbrots. 1 stað Gunnars Jökuls hefur Ari f .v. trommuleikari Roof Tops komið. Auk hans hafa bætst i hljómsveitina þeir Engilbert Jensen og Vignir f.v. gitarleikari Roof Tops. Trúbrot er nú orðið sextettog má segja að skammt sé stórra högga á milli i málum Trúbrots. Það hefur einnig komið á daginn, að lengi hefur staðið til, að taka Engilbert Jensen inn i bandið, æn þeir sem fyrir hafa verið i hliómsveitinni hafa ekki Framhald á bls. 23. vegar voru þeir félagar vissir á þvi, að þeir færu ekki út til þess að gera aðra lifun . . ., en á þeirri plötu var það söngurinn, sem dró músikina niður. En sú varð raunin á, að þeir komust aldrei i gang úti. Platan varð þvi, að þeirra mati hálf misheppnuð. En slikar grillur virðast ekki hafa hin minnstu áhrif á vinsældir Man- dölu, þvi hún hefur selst i um 3800 eintökum, sem er meira en nokkur önnur af þeim L.P. plötum sem þeir félagar hafa staðið að. En það er ekki bara Gunnar Jökull, sem hefur eitthvað að segja um liðin ár Trúbrots. Gunnar Þórðarson hefur eins og allir vita verið með Trúbroti frá edvard sverrisson 3m tnúsik með meiru upphafi'. — Já, mér fannst góður kraftur i bandinu þarna eftir að við gerðum lifun . . . ., en siðan hefur þetta verið sifellt á niðurleið. Þetta var að lokum komið út i eintóman bissniss. Mennvoruhættir að æfa. Peninga- hagnaðurinn sat algjörlega i fyrirrúmi. Mórallinn var orðinn slæmur, auk þess sem Gunnar var þvi mótfallinn að spila eins mikið og við gerðum. Ahugaleysi Gunnars varð þess svo valdandi, að hann sýndi æfingum litinn áhuga. Ég vil hins vegar leggja allan minn tima i þetta. Gunnar Jökull hafði einnig gefið i skyn, að hann vildi ekki spila lengur en hálft ár i viðbót, svo það var betra fyrir alla að hann hætti strax. Akvörðun um þetta var tekin seint i ágúst. - 41. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.