Vikan


Vikan - 12.10.1972, Page 45

Vikan - 12.10.1972, Page 45
HANN ÆTLAR AÐ FELLA NIXON Framhald af bls. 9. mennrar yfirstéttar. Það segir stjórnina ljúga því að hún ætli að binda endi á Víetnamstríðið, að hún láti jafnvel sprengja og bendir í því sambandi á, sundur stíflugarða í Norður- Víetnam og fjölgi liði sínu í Taílandi. Stuðningsmenn Mc- Governs benda einnig á, að hungrinu hafi ekki einu sinni verið útrýmt í Bandaríkjunum, heimsins ríkasta landi. Þeir segja að stjórn Nixons hafi svik- ið loforð sitt um að sjá til þess að verðlag og skattar hækkuðu ekki, og að hún geri ekkert til að útrýma atvinnuleysi. Og fjölmörg bandarísk blöð, sem annars eru ekkert sérstak- lega hlynnt McGovern, hjálpa honum með því að birta enda- lausar frásagnir af hneykslis- málum, sem stjórnin er riðin við. Þar skal fyrst frægust telja Pentagon-skjölin, sem leiddu í ljós að þrjár stjórnir Banda- ríkjanna höfðu hver af annarri beitt þjóðina blekkingum um þróun Víetnam-stríðsins. Þá má nefna „ITT-skjölin“, það er að segja áætlun um að steypa stjórn Allendes í Chile, sem bandaríski auðhringurinn ITT, sem þar hefur mikilla hags- muna að gæta, lagði fyrir Hvíta húsið. Andstæðingar kerfisins í Bandaríkjum nútímans eru undarlegt samsafn: hippar og slammbyggjar, menntamenn og handverksmenn, frjálslynt efna- fólk í útborgum og kynþátta- minnihlutar. George McGovern býður þeim upp á róttæka stefnuskrá, sem gengur jafnvel lengra en New Deal Roosevelts á sínum tíma. Ef McGovern verður forseti ætlar hann að binda endi á Ví- etnamstríðið innan níutíu daga, skera útgjöld til hersins niður um þriðjung, lækka skatta á lágtekjumönnum en hækka þá að sama skapi á hátekjufólki og iðnaðarauðvaldinu, útrýma atvinnuleysi og kynþáttamis- rétti. Og umfram allt ætlar hann að endurvekja traust þegnanna á ríkinu. „Come home, America," komdu heim, Ameríka, hrópaði McGovern til þjóðarinnar, þeg- ar hann var valinn frambjóð- andi demókrata til forsetaem- bættisins í miðjum júlí. „Minnstu, Ameríka, sögulegra hugsjóna þinna.“ Og kerfisand- stæðingar um gervallt landið klöppuðu honum lof í lófa. Hann var kominn fram sem heilagur Georg í slag við drek- ann Nixon. George McGovern lítur ekki beinlínis út eins og talið hefur verið til fyrirmyndar um stjórn- málamenn, en það er bara betra í augum kerfisandstæðinga. Þegar hann brosir er engu lík- ara en hann hafi verið að segja sís. Hann er nefmæltur, talar í föðurlegum tón og þykir held- ur leiðinlegur ræðumaður. Þeg- ar hann vill leggja áherzlu á eitthvað, steitir hann vísifing- ur og lyftir honum í hæð við augu. Hann þykir sveitó, ,jnæstum eins og hann sé enn- þá með preríugrasið frá Suður- Dakóta í hárinu“, sagði blaða- maður að nafni Sam Friedman. Nái McGovern kosningu, mun í sannleika hafa rætzt á honum ævintýrið um fátæka drenginn, sem verður billjóneri eða for- seti bara ef hann er nógu ið- inn og duglegur. Þetta er ósvik- inn amerískur draumur, eins ö TJÖLBREYTT g % <ÚRVAL | H QÆRDINUEFNAg ca K3 KJ K3 ia EJ E3 E E3 K3 E1 E3 u ca S CLUGCnURL I |v| Grensasvegi 12 si’mi 36625 IVERÐI-GÆÐUM....OG ÚTLITI. IGNIS þvottavélar þvo torþvott, Bio (leggja í bleyti). Þvo aðalþvott, margskola og þeytivinda. Sér ullar- og nylon-kerfi. IGNIS þvottavélin er samt sem áður ein ódýrasta þvotta- vélin á markaðnum í dag .... Þjónusta hjá eigin verkstæði. Varahlutir fyrirliggjandi. — Þvottadagur án þreytu — dagur þvotta — dagur þæginda. RAFIÐJAN VESTURGOTU 11 SÍMI 19294 RAFTORG V/AUSTURVÖLL SÍMI 26660 41.TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.