Vikan


Vikan - 12.10.1972, Page 47

Vikan - 12.10.1972, Page 47
konar þjóðarhelgisögn .Og eng- inn getur borið McGovern á brýn að hann hafi slegið slöku við í lífinu. Dugnaðinn hefur hann frá föður sínum, prédik- ara af trúflokki meþódista, sem kom upp sex kirkjum á tveim- ur áratugum. Hann kenndi syni sínum að ótti og freisting væru náskyld, og á báðum mætti sigrast með trú, aga og iðni. Og George þjáðist frá bernsku af ákveðnu formi ótta: feimni. Svo feiminn var hann að fyrstu skólaárin þorði hann naumast að ljúka upp munni; kennari hans taldi það merki um greindarskort. Að ráði föð- ur síns ákvað hann að reyna að sigrast á óttanum með sókn; hann gekk í ræðumennsku- klúbb skólans og varð smátt og smátt einn snjallasti ræðumað- urinn þar í bæ. En utan skól- ans varð hann enn um hríð jafn feiminn og fyrr. Kvenfólk óttaðist hann meira en sjálfan höfuðóvininn, og þegar hann á málfundi nokkrum þurfti að andmæla stúlku, sem troðið hafði upp, varð hann að gjalti. Stúlkan hét Eleanor Stegeberg. Hann vildi þó ekki láta þar við sitja, og skoraði á stúlkuna til annarrar ræðukeppni. Þetta leiddi til nánari kynna, og 1943, tveimur árum eftir að þau deildu í síðara skiptið, gengu þau í hjónaband. Sama ár var McGovern, þá tuttugu og eins árs, sendur til Evrópu sem flugmaður í spr eng j uf lughernum banda- ríska. Hann hafði verið óskap- lega hræddur við að fljúga, og einmitt þess vegna hafði hann boðið sig fram í flugherinn, trúr grundvallarreglum föður síns. Hann stóð sig bærilega — í loftárás sem gerð var á Prag var flugvél hans af gerðinni B-24 skotin næstum í tætlur, en hann komst samt til flug- vallar eins á Ítalíu, sem banda- menn réðu yfir. Fyrir þennan fræknleik fékk hann heiðurs- merki. í stríðslokin var hann sannfærður um, að nú tæki við tímabil eilífs friðar undir yfir- umsjón Sameinuðu þjóðanna. Sjálfur fetaði hann í fótspor föður síns og gerðist meþódista- prédikari. Hann var í engum vandræðum með að koma sam- an ræðum og flytja þær af mátulegum eldmóði, en hins vegar þóttist hann skjótt finna að hann væri ekki nógu sterk- lega sinnaður fyrir þetta hlut- verk. „Mér fannst ég ekki nógu heilagur,“ sagði hann, „til að vígja saman hjón, jarðsetja og hughreysta ungar ekkjur." Hann var örskamma hríð prófessor í sögu við háskóla Suður-Dakóta og tókst síðan á hendur sitt fyrsta pólitíska starf; gerðist framkvæmdastjóri flokks demókrata í ríkinu. Einnig hér fylgdi McGovern trúlega sínum barnsvana að sigra óttann með því að ráðast í hlutverk sem vakti honum ótta. Það var sem sé ekkert barnagaman að vera áberandi demókrati í öðru eins íhalds- bæli og Suður-Dakóta var. Þar var „Middle America" í öllu sínu veldi, sem og víðast hvar í bandarísku dreifbýli; hinn al- menni borgari las Biblíuna á sunnudögum og Reader's Dig- est hvunndags, en svo sem ekk- ert þar fyrir utan. í betri stof- um héngu byssur uppi á vegg, og höfuðóvinurinn í augum íbú- anna voru breytingar, hverju nafni sem nefndust. Suður-Da- kótamenn hötuðu breytingar og framfarir jafn innilega og Indí- ánana, sem feður þeirra og af- ar höfðu barizt við. Sam Anson, sem skrifað hef- ur ævisögu McGoverns, segir að markmið hans í þessu nýja starfi hafi ekki verið svo mjög að efla flokksvél demókrata í ríkinu, heldur að skapa sjálfum sér frama á stjórnmálabraut- inni. f þrjú ár var hann á eilífu flakki um Suður-Dakóta, lofaði bændunum skynsamlegri land- búnaðarpólitík og safnaði fé til baráttu sinnar fyrir sæti á Bandaríkjaþingi. Og dugnaður- inn borgaði sig: í kosningunum 1956 sigraði hann andstæðing sinn úr flokki repúblikana, sem til þessa hafði verið kallaður ósigrandi. „Sennilega þess vegna,“ sagði McGovern, „að ég hef í eigin persónu talað við næstum hvern einasta kjósanda minn síðustu árin.“ Eftir fjögurra ára setu í full- trúadeild þingsins bauð McGo- vern sig fram til setu í öldunga- deildinni, sem pólitískt séð er öllu áhrifameiri. Þá beið hann sinn fyrsta ósigur á stjórn- málabrautinni; tapaði fyrir þýzkættaða repúblikanum Karli Mundt. f kosningunum mælti McGovern með afvopnun, inn- töku Kína í Sameinuðu þjóð- irnar og gegn kynþáttaaðskiln- aði, og repúblikanar stimpluðu hann sendil kommúnista og fullyrtu að hann hyggðist flytja fimmtíu þúsund atvinnulausa negra til Suður-Dakóta. Ofan á þetta spillti það fyrir McGovern að hann barðist fyr- ir kosningu flokksfélaga síns, Johns F. Kennedys, í embætti forseta. En eins og menn vita CANON er mest selda rafeinda-reiknivélin á íslandi í dag. Sendum myndir og verð, eftir beiðni, hvert á land sem er. SKMFIELIN Box 1232 =.CáiK>n UMBOÐIÐ Suðurlandsbraut 12 Reykjavík, sími 19651 var Kennedy kaþólikki og því ekki sem bezt séður í Suður- Dakóta, þar sem menn eru harðir mótmælendur. Kennedy mundi McGovern hins vegar liðveizluna og gerði hann að framkvæmdastjóra Food for Peace-áætlunarinnar, sem gekk út á að útbýta bandarískum matvælum gefins til vanþróuðu ríkjanna. 1962, ári áður en Kennedy var myrtur, tók McGovern öðru sinni upp baráttu fyrir öðru öldungadeildarsætinu fyrir Suður-Dakóta. En í öndverðri kosningabaráttunni veiktist hann af lifrarbólgu, en þá sýndi sig að kona hans var ennþá ekki síður málsnjöll en hann sjálfur. Hún hélt fyrir hann kosningaræðurnar, og niður- staðan var sú að hann komst inn — með naumindum að vísu. Ökukennsla - Helgi K. Sessilíusson - Sími 81349 41.TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.