Vikan - 12.10.1972, Qupperneq 48
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
Fæst hjá næsta bóksala
Bók með alhliða
upplýsingum
um knattspyrnu
Hann hafði aðeins hundrað at-
kvæði yfir andstæðing sinn
og varð fyrsti senatorinn
úr flokki demókrata, sem Suð-
ur-Dakóta kom sér upp í aldar-
fjórðung.
Fyrstu ræður McGoverns í
öldungadeildinni fjölluðu fyrst
og fremst um stríðið í Víetnam.
Hann fordæmdi hernað Banda-
ríkjanna þar harðari orðum en
nokkur annar, kallaði hann
„tilraun til þjóðarmorðs" og
sagði að þinghúsið „þefjaði af
blóði“. Ræður hans vöktu litla
athygli hjá þorra manna, og
enn er svo að sjó að meirihluti
Bandaríkjamanna láti sér víga-
ferli stjórnar sinnar í Víetnam
sæmilega líka. En að vísu vex
andstaðan gegn stríðinu ár frá
ári.
Sókn sína til Hvíta hússins
byrjaði McGovern snöggtum
fyrr en hann sjálfur hafði ætl-
að. 1968 var Robert Kennedy,
sem var náinn vinur hans,
myrtur meðan á prófkosning-
um stóð. Ráðgjafar Kennedys
fengu McGovern til að gefa sig
fram í stað hans, en hann hafði
aðeins átján daga til kosninga-
baráttunnar. Niðurstaðan varð
því sú að Hubert Humphrey
var valinn frambjóðandi demó-
krata, og hann beið rækilegan
ósigur fyrir Nixon.
Enginn frambjóðandi til
valdamesta embættis í heimi
hefur búið sig eins vel undir
baráttuna og McGovern í þetta
sinn. Hann réð til sín hóp póli-
tískra hugmyndasmiða, og höfðu
flestir þeirra áður þjónað
Kennedy-bræðrum. Hann tók
upp nýtízkulegan klæðaburð,
breið hálsbindi og föt eftir því.
Hann keypti sér háfjallasól, til
að geta alltaf verið brúnn og
hraustlegur. í Bandaríkjunum
þykir það mikið hrós fyrir.
stjórnmálaleiðtoga að þeir séu
kraftamenn, og vinir McGo-
verns breiddu nú út um hann
þann orðróm, að hann hefði
eitt sinn í gremju handleggs-
brotið ókunnan mann, sem sýnt
hefði honum áleitni.
Pólitískt kom hann sér einn-
ig upp nýrri ímynd. Vegna
harðra ádeilna hans á Víetnam-
hernaðinn hafði hann fengið á
sig það orð að hafa ekki áhuga
á neinu öðru, og til að bæta úr
því lét hann róðgjafa sína
semja mjög álitlega stefnuskrá
um atvinnumál og þjóðfélags-
legar umbætur.
Þetta hefur allt tekizt svo vel
að fullyrt er að McGovern falli
dável í geð þeim sívaxandi hópi
kjósenda, sem . vill fá ný og
óbrúkuð andlit fram á pólitíska
sviðið í Washington. Æskulýðs-
og kynþáttaóeirðirnar á sjöunda
áratugnum vöktu pólitískan
áhuga hjá fjölda fólks, sem áð-
ur hafði aldrei neitt um póli-
tík skeytt. Kröfur jukust um
að bundinn yrði endir á Víet-
namstríðið, að skattakerfið yrði
gert réttlátara og dregið úr af-
skiptum Bandaríkjanna af öll-
um mögulegum málum á al-
þjóðavettvangi.
Samt sem áður blés ekki byr-
lega fyrir McGovern í upphafi
prófkosninganna fyrir í hönd
farandi forsetakosningar.
Stefnuskrá hans þótti yfirleitt
of róttæk, og skoðanakannanir
bentu til þess að hann hefði
lítið fylgi meðal almennings.
íhaldssamari foringjar demó-
krata og raunar sjálf flokksvél-
in var honum andstæð; þeim
leizt betur á Edmund Muskie.
En sókn McGoverns varð ekki
stöðvuð og flokksþingið í Mi-
ami kaus þessa hetju kerfisand-
stæðinga til að fara fram á móti
Nixon.
En þegar á flokksþinginu
byrjaði McGovern að draga i
land sum sín róttækustu um-
mæli og yfirlýsingar. Nú varð
hann allt í einu á móti fóstur-
eyðingum nema með ákveðn-
um skilyrðum, hann andmælti
því að marijúana yrði gefið
frjálst og vildi að bandarískur
her yrði áfram í Suðaustur-
Asíu svo lengi sem nokkur
bandarískur stríðsfangi væri
enn í klóm Norður-Víetnama.
Þessar hagræðingar á stefnu-
skránni eru vitaskuld gerðar
með atkvæðadorg fyrir augum.
Því að meirihluti kjósenda eru
ekki fátæklingarnir, mennta-
fólkið, æskulýðurinn og kyn-
þáttaminnihlutarnir, sem til
þessa hafa verið helztu stuðn-
ingsmenn McGoverns. Meiri-
hluti kjósenda er úr millistétt-
unum, og eru að vísu lítt eða
ekki hrifnir af hernaði stjórn-
ar sinnar í Víetnam, en þola þó
enn síður síðhærða andmæl-
endur þess stríðs. Þeir vilja
fegnir endurbætur á skatta-
kerfinu, en líka að dregið sé
úr fjórveitingum til velferðar.
Þeir hafa litla eða enga trú á
stjórnarbákninu, en verða samt
skelfingu lostnir við þá tilhugs-
un að Bandaríkin hætti að
verða fremsta stórveldi verald-
ar.
Þau eru mörg veðrin, sem
mæða á McGovern. En það hef-
ur alltaf verið hans háttur að
harðna í hlutfalli við andstöð-
una.
☆
48 VIKAN 41. TBL.