Vikan - 26.07.1973, Page 8
Ef ma&ur trtiir því sem
hárgreiðslumeistarar segja, þá
eru tveir þriðju allra kvenna
óánægðar með hár sitt á einhvern
hátt. Ert þú ein af þeim? Aö
likindum, því aö hárið er ýmist of
feitt, of þurrt, óviðráðanlegt, of
þunnt, of hrokkið. I stuttu máli
sagt erfitt. Við birtum hér
nokkrar tillögur, ef ske kynni að
það gæti einhverjum hjálpað. Að
sjálfsögðu Iangar allar konur til
að hafa fallegt hár.
ERTU MEÐ FEITT
HAR?
Feitt hár er llklega helzta
vandamál þeirra, sem ekki eru
ánægðar ipeö hár sitt. Þá eru það
fitukirtlarnir, sem framleiða of
mikla fitu, svo að hárið verður
fljótt ósnyrtilegt og glanslaust.
Það hefur ekki tekizt að finna
neitt, sem getur komið i veg fyrir
að hárið verði feitt. Það getur
stafað af því að hormónarnir eru
ekki í réttu jafnvægi, rangri fæðu
og jafnvel af sálrænum orsökum.
Þungun getur lika haft áhrif á
hárið, en það er aðeins tímabund-
ið. Feitt hár á unglingsárum er
llka algengt, en það eldi^t af. En
ef það eldist ekki af^ þá verður að
gera eitthvað til að ráða bót á þvi
og er þá venjulega flúið a náöir
lyfjanna.
Ef þú vilt hafa
krullaðan
ennistopp, þá
skaltu væta
hárið með
lagningavökva
og vefja það
upp á rúllur
sem vafðar eru
í bómull.
ALLAR KONUR DREYMIR UiY
FALLEG
vægt perma
nent lyftir hár
inu.
Notaðu lagn-
ingavökva við
hvern hárþvott.
ef hárið er
nýþvegið
snyrtilegt.
Margt er samt hægt að gera til
aö bæta um.
Fyrst og fremst er nauösynlegt
aö þvo hárið mjög oft, jafnvel
daglega. Það dettur engum i hug
lengur að trúa þeim kerlingabók-
um, að óhollt sé aö þvo hárið oft.
Þvoðu hárið varlega og nudd’aðu
ekki um of hársvörðinn. Vatnið á
að vera volgt, ekki heitt og
sjálfsagt er að nota sjampó, sem
sérstaklega er gert fyrir feitt hár.
Lagningavökvi og hárlakk á lika
aö vera sérstaklega fyrir feitt
hár. Það er lika bezt að þurrka
hárið i fersku lofti, en ef nauðsyn-
legt er aö nota þurrku, þá verður
hún að vera stillt á lágan hita. Ef
alvarleg vandræði eru i þessu
tilviki, þá er lang einfaldast að
ráðgast um við hárgreiðslu-
meistara sinn.
Rétt er að geta þess, aö
mataræðið hefur mikið aö segja.
Sætindi, feitur matuy, mikið
krydd og sterkir ostar eru óhollir
fyrir þá sem hafa of feitt hár.
(Það sama gildir um of feita
húð.) Bezt er að halda sér við fisk,
magurt kjöt, grænmeti og ávexti
og undanrennu, en ekki nýmjólk.
Fersktlofterlika mjöghollt fyrir
hárið. Eins er gott að forðast sem
mest allskonar höfuðföt og
hárkollur.
RÉTT HARGREIÐSLA.
Ráðgastu um það við
hárgreiðslumeistarann hvernig
hárgreiösla henti þér bezt.
Auðveldast er að hafa einfalda
hárgreiöslu fyrir þá, sem hafa of
feitt hár og þurfa þess vegna að
þvo þaö oft.
NOKKUR GÓÐ RAÐ.
Stundum getur veriö gott að
nota þurrsjampó milli hárþvotta.
Duftið sigur I sig nokkuð af
fitunni: En þaö er mjögáriöandi að
bursta það vel úr, annars verður,
háriö grámuskulegt. Duftið er
fyrst þurrkað vandlega úr með
mjúku handklæði, burstað og
greitt með finni greiöu, sem hefir
veriö vafin I bómull. Það er
gamalt og gott húsráð að setja
tvær matskeiðar af 5% ediki i
slðasta skolvatnið.
ERTU MEÐ FINGERT HAR?
Fínt og mjúkt hár er I rauninni
ekki neitt vandræðahár, þaö er
aðeins fíngerðara en venjulegt
má teljast. En þaö er margt hægt
að gera, til að fíngert hár sýnist
þykkra og fyrirferðarmeíra. En
fyrst og fremst verður það að
klippt og helzt stuttklippt. Vel fær
hárgreiðslumeistari getur alltaf
klippt hárið þannig I toppa, að þaö
sýnist þykkra. Vægt permanent
getur lfka veriö til bóta fyrir
flngert hár. Þvolfu hárið að
minnsta kosti einu sinni í viku og
8 VIKAN 30. TBL.